Skessuhorn - 09.09.2015, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 20156
Stofnfundur Vest-
urlandsdeildar
Blindrafélagsins
AKRANES: Blindrafélagið,
samtök blindra og sjónskertra
á Íslandi, ætlar að stofna Vest-
urlandsdeild félagsins í Bóka-
safni Akraness við Dalbraut 1
fimmtudaginn 10. september
klukkan 17. Á fundinum verð-
ur kynning á starfsemi Blindra-
félagsins og sömuleiðis kynning
á þjónustunni sem Þjónustu- og
þekkingarmiðstöðin fyrir blinda,
sjónskerta og daufblinda einstak-
linga veitir um land allt. Berg-
vin Oddsson formaður Blindra-
félagsins segir að markmið Vest-
urlandsdeildarinnar sé að skapa
vettvang fyrir blinda og sjón-
skerta einstaklinga á Vestur-
landi til að geta sótt sér fræðslu
og stuðning á vegum félagsins
ásamt því að kynna fyrir þeim
alla þá fjölbreyttu þjónustu sem
Miðstöðin veitir. Sömuleið-
is er markmið stofnfundarins
að finna einstaklinga sem eru
með aldurstengda augnbotna-
hrörnun (AMD) en Bergvin seg-
ir að sú deild hafi verið stofnuð
síðastliðið vor og hafi sá stofn-
fundur og fundir á vegum AMD
deildarinnar verið mjög fjölsótt-
ir. Enda eru einstaklingar með
AMD mörg þúsund á Íslandi og
mikilvægt sé að þeir sem eru að
missa sjónina fái bæði stuðning
og fræðslu svo hægt sé að grípa
fyrr inn í áður en sjónskerðing-
in verði enn alvarlegri. Berg-
vin segir að um 70 einstakling-
ar séu á skrá hjá Miðstöðinni á
Vesturlandi og þá eru ófáir ein-
staklingarnir sem eru með AMD
og hafa ekki þegið neina aðstoð
eða stuðning á vegum Miðstöðv-
arinnar. Bergvin hvetur alla þá
sem eru blindir, sjónskertir eða
með byrjun á AMD að koma á
stofnfundinn á fimmtudaginn
og kynna sér um leið starfsemi
Blindrafélagsins og Miðstöðvar-
innar. Aðstandendur eru sérstak-
lega hvattir til að mæta því þeir
þurfa ekki síður á stuðningnum
og fræðslunni að halda líkt og
þeir sem eru að glíma við AMD
eða alvarlega sjónskerðingu seg-
ir Bergvin. -mm
Útsvar án
AkraBorgar
RUV: Fyrsti þáttur Útsvars,
spurningakeppni sveitarfélaga
á RUV hefst 11. september
nk. klukkan 20 með viðureign
Hafnarfjarðar og Árborgar.
Umsjónarmenn verða Sigmar
Guðmundsson og Þóra Arn-
órsdóttir. Talverðar breytingar
verða að þessu sinni sem snerta
Vesturland. Borgarbyggð og
Akraneskaupstaður munu sitja
hjá í vetur auk fjögurra annarra
liða. Snæfellsbær mun hins veg-
ar taka þátt að nýju. Þá verður
Reykhólahreppur meðal kepp-
enda, eins og fram kom í frétt
Skessuhorns nýverið.
–mm
Edduveröld lokað
BORGARNES: Starfsemi
Edduveraldar í Englendingavík
í Borgarnesi hefur verið hætt
eftir tæplega þriggja ára rekstur.
Það voru Guðrún Kristjánsdótt-
ir og Jóhanna Erla Jónsdóttir
sem stofnuðu einkahlutafélag-
ið Þyngslalöpp ehf. um rekst-
ur veitingahússins Edduverald-
ar og leigðu þær húseignirn-
ar í Englendingavík af Byggða-
stofnun. Húseignirnar hafa nú
verið seldar og var Edduveröld
lokað 28. ágúst sl. „Við erum
hættar rekstri og höfum snúið
okkur að öðrum störfum, báð-
ar farnar að vinna annað. Við
viljum nota tækifærið og þakka
þeim kærlega sem komu til okk-
ar í Edduveröld,“ segir Guðrún
í samtali við Skessuhorn.
-grþ
Vilja taka við
flóttafólki
SNÆFELLSBÆR: Bæjar-
stjórn Snæfellsbæjar hefur sam-
þykkt að senda viljayfirlýsingu
til velferðarráðuneytisins um að
Snæfellsbær bjóði fram aðstoð
sína til að taka á móti flótta-
mönnum. Þetta kemur fram
í bókun í fundargerð bæjar-
stjórnar frá 3. september sl. „Í
Snæfellsbæ er til húsnæði í eigu
Íbúðalánasjóðs, sem hægt væri
að standsetja fyrir flóttafólk.
Hér er góð félagsþjónusta, góð-
ur skóli og leikskóli sem hefur í
gegnum tíðina unnið með fólki
af mörgum þjóðernum. Hér
ættu allir að geta fengið vinnu,“
segir í tillögunni. Þar kemur
einnig fram að Snæfellsbær er
tiltölulega lítið samfélag og þar
búi fólk af mörgum þjóðernum
sem ætti að auðvelda flóttafólki
að kynnast og aðlagast.
–grþ
Tvær sölur á dag
VESTURLAND: Á Vestur-
landi var þinglýst 60 samning-
um um fasteignir í ágústmán-
uði. Þar af voru 26 samningar
um eignir í fjölbýli, 24 samn-
ingar um eignir í sérbýli og tíu
samningar um annars konar
eignir. Heildarveltan var 1.244
milljónir króna í þessum við-
skiptum og meðalupphæð á
samning 20,7 milljónir króna.
Af þessum 60 var 31 samning-
ur um eignir á Akranesi. Þar af
voru 22 samningar um eignir í
fjölbýli, sjö samningar um eign-
ir í sérbýli og tveir samningar
um annars konar eignir. Heild-
arveltan var 632 milljónir króna
og meðalupphæð á samning
20,4 milljónir króna.
-mm
Undanfarið hafa staðið yfir fram-
kvæmdir við Saxhól á vegum Þjóð-
garðsins Snæfellsjökuls. Verið er að
bæta aðgengið upp á Saxhól með
því að laga stíginn og setja tröpp-
ur á miðri leið. Verður settur upp
pallur og þar settur bekkur. Notuð
var mínígrafa sem fór upp á topp
til að slétta og laga fyrir tröppurn-
ar. Verður aðgengi að Saxhól lok-
að í nokkra daga á meðan á fram-
kvæmdum stendur og ferðafólki
bent á að skoða Rauðhól í staðinn.
Það er verktakafyrirtækið Kvist-
fell sem vinnur verkið en áætluð
verklok eru um miðjan september.
Vegna veðurs hefur verkið tafist lít-
illega. þa
Eftir nýlegar vaxtahækkanir Seðla-
banka Íslands hafa stóru viðskipta-
bankarnir ákveðið að hækka útláns-
vexti sína um hálft pró-
sentustig, eða að jafnaði
um tæp 8%. „Hagsmuna-
samtök heimilanna gagn-
rýndu síðustu tvær hækk-
anir Seðlabankans harð-
lega og vöruðu við því að
þær myndu einungis leiða
til hærri kostnaðar fyrir
heimilin og atvinnulífið,
sem hefur nú ræst. Seðla-
bankinn hefur þannig raunverulega
hellt eldsneyti á glæður verðbólgu-
bálsins, sem hafði þó fram að því
verið í rénun,“ segir í tilkynningu
frá samtökunum.
Þá segir að samkvæmt nýbirt-
um uppgjörum hafa bankarnir þrír
hagnast um 42,5 milljarða króna á
fyrri helmingi ársins. „Frá stofn-
un þeirra á grundvelli brunarústa
föllnu bankanna, hafa þeir jafn-
framt getað hagnast um samtals
422,5 milljarða, sem er fullkomlega
óeðlilegt í ljósi þeirrar efnahags-
kreppu sem staðið hefur yfir stærst-
an hluta tímabilsins. Ætla mætti því
að þeir hefðu nægjanlegt svigrúm
til að lækka vexti og létta þar með
greiðslubyrði og draga úr hvata til
hækkunar á vörum og þjónustu.“
Einnig taka Hags-
munasamtök heimilanna
undir þau sjónarmið sem
komu fram í grein Þráins
Halldórssonar, sérfræð-
ings á eftirlitssviði FME
í nýjasta vefriti stofn-
unarinnar, um verðskr-
ár banka og áhrif þeirra á
verðvitund neytenda. Þar
segir að stóru bankarnir
þrír gefi samtals út 12 verðskrár og
vaxtatöflur, alls um 45 síður, í mörg
hundruð liðum. „Slíkt flækjustig er
ógegnsætt og hindrar neytendur
í að bera saman verð, sem hamlar
samkeppni á fjármálamarkaði.“
mm
Gagnrýna harðlega
vaxtahækkanir bankanna
Aðgengið
bætt að
Saxhóli