Skessuhorn - 09.09.2015, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 20158
Gistinóttum
fjölgaði um
17%
LANDIÐ: Gistinætur á
hótelum landsins í júlí voru
351.700 sem er 17% aukning
miðað við júlí 2014. Gisti-
nætur erlendra gesta voru
92% af heildarfjölda gisti-
nátta í mánuðinum en þeim
fjölgaði um 19% frá sama
tíma í fyrra á meðan gisti-
nóttum Íslendinga fækkaði
um 3%. Flestar gistinætur á
hótelum í júlí voru á höfuð-
borgarsvæðinu eða 193.200
sem er 18% aukning mið-
að við júlí 2014. Næstflestar
voru gistinætur á Suðurlandi
eða um 61.700. Gistinætur
á samanlögðu svæði Vest-
urlands og Vestfjarða voru
22.261 í júlí sem er 14%
aukning frá sama mánuði í
fyrra. Þegar tólf mánuðir eru
taldir, frá ágúst í fyrra til júlí
í ár, voru gistinætur samtals
114.836 sem er 24% aukn-
ing milli ára. Ekki er hægt
að sjá í tölum Hagstofunn-
ar hvort ástæðan er sú að
gistirými séu nánast fullnýtt
í júlí, eða hvort ástæðan er
að ferðaþjónustufyrirtækj-
um í landshlutanum gengur
betur að auka nýtingu gisti-
rýmis yfir jaðartíma ferða-
þjónustunnar en yfir háönn.
Á landsvísu voru erlendir
gestir með flestar gistinætur
í júlí. Þjóðverjar voru flest-
ir, með 77.300 gistinætur,
Bandaríkjamenn með 62.000
og Bretar með 32.200 gisti-
nætur. Á tólf mánaða tíma-
bili ágúst 2014 til júlí 2015
voru gistinætur á hótelum
2.556.990 sem er fjölgun um
17% miðað við sama tímabil
ári fyrr.
-mm
Lögregla fylgist
með skotveiði-
mönnum
VESTURLAND: Lögregl-
an á Vesturlandi verður með
virkt eftirlit með skotveið-
um á næstu vikum nú þegar
gæsaveiðitímabilið er kom-
ið í gang. Í því eftirliti verða
m.a. réttindi veiðimanna
könnuð ásamt því að kannað
verður hvort byssur séu lög-
legar til veiða. Bendir lög-
regla á að ekki er t.d. heim-
ilt að nota við veiðar byssur
sem taka fleiri en þrjú skot
(pumpur). Lögreglan mun
einnig huga sérstaklega að
utanvegaakstri. Í tilkynningu
lögreglu segir jafnframt: „Ef
réttindi og búnaður veiði-
manna er ekki í lagi má búast
við því að að lögregla leggi
hald á byssu viðkomandi og
að viðurlögum verði beitt.
Nú þegar skotveiðin er kom-
in í fullan gang þykir rétt að
minna veiðimenn á að nauð-
synlegt er að þeir hafi með-
ferðis, við veiðar, bæði skot-
vopnaskírteini og veiðikort. Í
þeim tilfellum sem notuð er
byssa sem lánuð er frá öðr-
um þarf einnig að hafa með-
ferðis skriflegt leyfi eiganda
byssunnar þar sem hann
heimilar veiðimanninum
notkun á henni.“
–mm
Skógarbændur
koma saman
STYKKISH: Átjándi aðalfund-
ur Landssamtaka skógareigenda
verður haldinn á Hótel Stykkis-
hólmi dagana 2.-3. október næst-
komandi. Fundurinn er hald-
inn í samstarfi við Félag skóg-
arbænda á Vesturlandi. Málþing
verður haldið í tengslum við að-
alfundinn sem hefst klukkan 16 á
föstudeginum. Fjallað verður um
skógarnytjar á Vesturlandi og
um úttektir á árangri í skógrækt
og leiðir til úrbóta. Ársfundur
jólatrjáaræktenda verður um
kvöldið þar sem m.a verður boð-
ið upp á fræðsluerindi um rækt-
un fjallaþins sem jólatrés. Félag
skógarbænda á Vesturlandi býð-
ur fundargestum í skógargöngu
með leiðsögn á laugardeginum,
og að endingu njóta allir góðr-
ar samveru á árshátíð skógar-
bænda. –mm
Ráðin
móttökufulltrúi
STYKKISH: Umsóknarfrest-
ur um stöðu móttökufulltrúa hjá
Stykkishólmsbæ rann út 1. sept-
ember. Tvær umsóknir bárust
og var ákveðið að ráða Ragn-
heiði Valdimarsdóttur í starf-
ið. Hún hefur lokið BSc gráðu
í náttúrufræðilegri forvörslu og
starfað sem stöðvarstjóri hjá Ís-
landspósti og síðar sem kennari
hjá FSN. Ragnheiður er búsett í
Stykkishólmi. Þetta kom fram á
vef Stykkishólmsbæjar. –mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
29. ágúst - 4. september
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 10 bátar.
Heildarlöndun: 67.746 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 38.317
kg í fjórum löndunum.
Arnarstapi 3 bátar.
Heildarlöndun: 6.400 kg.
Mestur afli: Bárður SH: 4.672
kg í tveimur löndunum.
Grundarfjörður 8 bátar.
Heildarlöndun: 229.667 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
62.453 kg í einni löndun.
Ólafsvík 19 bátar.
Heildarlöndun: 123.138 kg.
Mestur afli: Guðmundur Jens-
son SH: 25.164 kg í þremur
löndunum.
Rif 15 bátar.
Heildarlöndun: 191.411 kg.
Mestur afli: Örvar SH: 42.882
kg í einni löndun.
Stykkishólmur 3 bátar.
Heildarlöndun: 10.950 kg.
Mestur afli: Blíða SH: 8.054 kg
í fjórum löndunum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Hringur SH - GRU:
62.453 kg. 2. september.
2. Örvar SH - RIF:
42.882 kg. 31. ágúst.
3. Páll Jónsson GK - GRU:
41.140 kg. 31. ágúst.
4. Helgi SH - GRU:
40.463 kg. 31. ágúst.
5. Tjaldur SH - RIF:
39.542 kg. 29. ágúst.
grþ
Ársfundur Bjartrar framtíðar fór
fram um helgina. Ný forysta var
þar kjörin. Óttarr Proppé var sjálf-
kjörinn formaður. Brynhildur
S. Björnsdóttir varaþingkona
og gjaldkeri flokksins varð efst
í kjöri stjórnarformanns en hún
hlaut 61% greiddra atkvæða af
122 sem þátt tóku í kosning-
unni. Í framboði auk Brynhild-
ar voru Guðlaug Kristjánsdótt-
ir, Matthías Freyr Matthíasson
og Preben Pétursson. Einnig
var tilkynnt að Brynhildur Pét-
ursdóttir tekur við sem þing-
flokksformaður. Að auki var kos-
ið um 40 einstaklinga í 80 manna
stjórn Bjartrar framtíðar, en kosið
er til tveggja ára í senn.
Í tilkynningu frá flokknum seg-
ir um önnur verkefni fundarins:
„Stefna í heilbrigðis- og umhverf-
ismálum var kynnt af málefnahóp-
um og samþykkt á fundinum eftir
líflegar umræður. Að auki var sam-
þykkt lagabreytingatillaga sem lýt-
ur að skipulagi flokksins, um for-
mennsku í framkvæmdastjórn.
Stjórnarformaður mun héðan í frá
stjórna framkvæmdastjórnar-
fundum. Tillaga um að stofn-
uð verður laganefnd um end-
urskoðun laga flokksins var
samþykkt, sem og tillaga um að
stofna ungliðahreyfingu Bjartr-
ar framtíðar. Auk þess voru tvær
ályktanir samþykktar, annars-
vegar um breytingar á stjórnar-
skrá og hinsvegar um að Ísland
taki á móti fleira flóttafólki.
Fundinn sóttu um 60 manns en
honum var að auki varpað beint á
netinu og rafrænar kosningar voru
um helstu málefni.“
mm
Sjálfboðaliðar á vegum Skógrækt-
arfélags Íslands hafa lagt stíg upp
brekkuna í Lundinum í Arnar-
holti að stóra lerkitrénu sem val-
ið var tré ársins 2014 hér á landi.
Brekkan var erfið uppgöngu ekki
síst ef blautt var á. Nýi stígurinn er
ekki brattur og sveigist um brekk-
una og er lagður trjákurli. Þegar
komið er upp að trénu má sjá skilt-
ið með áletruninni um Tré árs-
ins 2014. Einnig er þar bekkur úr
lerki úr Lundinum sem verkstjóri
sjálfboðaliðanna, Gabriel Pic, bjó
til. Sjálfboðaliðarnir eru frá EVS
(European Volunteer Service) sem
er hluti af Erasmus+ verkefni Evr-
ópusambandsins. Skógræktarfé-
lag Íslands er viðurkenndur gest-
gjafi fyrir EVS og mun árlega taka
við fimm sjálfboðaliðum til vinnu í
fimm mánuði í skógum landsins.
lbh
Sunnudagaskóli Akranekirkju hefst
næstkomandi sunnudag. Vetrar-
starfið að þessu sinni hefst með
leiksýningunni Hafdís og Klemmi
- og leyndardómar háaloftsins,
sem er sýning fyrir börn á öllum
aldri. Persónur í sýningunni eru
þau Hafdís og Klemmi sem eru
jafnframt aðalpersónur þátta-
seríunnar Daginn í dag en sýning-
in er sjálfstætt framhald þáttanna.
Sýningin fjallar um ævintýri vin-
anna tveggja sem finna dularfullt
tæki uppi á háalofti heima hjá ömmu
Hafdísar. Umfjöllunarefni sýning-
arinnar eru hæfileikar. Hverjir hafa
hæfileika og hvernig getur maður
nýtt hæfileika sína til góðs? Gert er
mikið úr þátttöku barnanna í áhorf-
endasalnum og gaman er að fylgjast
með viðbrögðum þeirra.
„Sýningin var framsýnd í Nor-
egi og hefur verið sýnd á nokkrum
stöðum á Íslandi. Þetta er einstak-
lega skemmtileg sýning fyrir alla
fjölskylduna og allir eru velkomnir.
Sýningin fer fram í Safnaðarheim-
ilinu Vinaminni og hefst kl. 11.
Sýningin markar upphaf af barna-
starfi Akraneskirkju þennan vetur-
inn en börn á grunnskólaaldri hafa
fengið bréf til kynningar á starfinu.
Við erum spennt á taka á móti leik-
hópnum og vonumst til að sjá sem
flesta á sunnudaginn,“ segir Þráinn
Haraldsson prestur Akraneskirkju.
-fréttatilkynning
Kór Kalmans undir leiðsögn Sveins
Arnars Sæmundssonar organista og
söngstjóra hefur verið valinn ásamt
fimm öðrum íslenskum kórum og
sönghópum til að taka þátt í nám-
skeiði hjá hinum virta breska söng-
hópi, The King´s Singers. Nám-
skeiðið fer fram í Hörpu 16. sept-
ember en sama dag halda þeir tón-
leika í Eldborgarsal Hörpu. Nám-
skeiðið verður haldið í tveimur söl-
um Hörpu frá klukkan 11.00 til
13.30. Hver hópur fær 40 mínút-
ur með meðlimum King’s Singers
og lögð verður áhersla á raddtækni,
stíl, tónlistarflutning og framkomu.
Í lok námskeiðisins mun hver hóp-
ur koma fram og syngja fyrir áheyr-
endur í Norðuljósasalnum. „Það
er ekki hægt að segja annað en að
þetta sé frábært tækifæri fyrir kór-
hópana að fá að vinna með þess-
um frábæru listamönnum og mikill
heiður,“ segir Sveinn Arnar.
The King’s Singers er margverð-
launaður sönghópur sem hefur
verið starfandi frá 1968 en af þeim
sex sem skipa hópinn nú hefur Da-
vid Hurley, fyrsti tenór, sungið
lengst með hópnum, eða frá árinu
1989. Á þessum tíma sem hópur-
inn hefur verið starfræktur hef-
ur hann sent frá sér yfir 150 diska
og hlotið tvenn Grammy-verð-
laun, árin 2009 og 2012, og sungið
á yfir hundrað tónleikum um all-
an heim árlega. Þeir eru gríðar-
lega fjölhæfir og syngja allar gerð-
ir tónlistar. Þarna er allt frá klass-
ík, endurreisnartónlist, barokki og
yfir í popp. Árið 2013 sendu þeir
frá sér Great American Songbook
og eru því með djassslagara á efn-
isskránni.
Námskeiðið í Hörpu er mið-
vikudaginn 16. september frá kl.
11-13:30 og er hægt að kaupa
áheyrnargjald á það. Miðasala er á
tix.is -fréttatilkynning
Hefja sunnudagaskólann með leiksýningu
Kammerkór frá Akranesi á
námskeiði hjá The King‘s Singers
Björt framtíð kaus nýja forystu
Sjálfboðaliðarnir neðan við hið aldna
lerkitré sem hlaut sæmdarheitið Tré
ársins 2014.
Bætt aðgengi að Tré ársins 2014
í Lundinum í Arnarholti