Skessuhorn - 09.09.2015, Blaðsíða 15
„Þetta er bara geggjuð tilfinning,“ sagði Guðmundur Reyn-
ir Gunnarsson, fyrirliði Víkings Ólafsvíkur, eftir ótrúlegan leik
liðsins á móti Grindavík þriðjudaginn 1. september síðastliðinn.
Leiknum lauk með 2-7 sigri Víkings sem tryggðu sér þar með
efsta sæti 1. deildar og sæti í úrvalsdeild að ári, þrátt fyrir að þá
væru enn þrjár umferðir eftir af deildarkeppninni.
„Það er ótrúlega skrýtið að vinna þetta í svona leik og með
svona mikið eftir af mótinu. Ég hélt þetta myndi bara verða bar-
áttuleikur á útivelli í Grindavík, sem er með sterkt lið. Svo bara
einhvern veginn opnuðust allar flóðgáttir og við vorum allt í
einu komnir í 4-1 í hálfleik,“ sagði hann og bætti því við að hann
teldi liðið vel að fyrsta sætinu komið. „Ég myndi segja að við
eigum þetta skilið. Ef það eru þrír leikir eftir og við erum búnir
að vinna núna þá held ég að það sé lítið hægt að segja annað en
það,“ sagði Guðmundur að lokum.
Í Skessuhorni í dag er þessum góða árangri Snæfellinga gerð
skil og þeim verkefnum sem nú taka við hjá liði í deild þeirra
bestu. kgk
Víkingur Ólafsvík hefur
tryggt sér sæti í úrvalsdeild
Emir Dokara hægri bakvörður
Víkings er hér í þann mund
að gefa fast skot fram völlinn
í stemningsleik gegn Þór
norður á Akureyri fyrr í sumar.
Ljósm. af.