Skessuhorn - 09.09.2015, Síða 16
MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 201516
„Ég kom 2003, þannig að ég er bú-
inn að vera hérna svolítið lengi, sér-
staklega á íslenskan mælikvarða,“
sagði Ejub Purisevic, þjálfari Vík-
ings Ólafsvíkur, í samtali við Skessu-
horn í síðustu viku. „Það sem er enn
merkilegra er að Hilmar og Jónas
eru búnir að vera hérna allan tím-
ann líka. Það er ótrúlegt að fólk
geti unnið svona lengi saman því í
fótboltanum er alltaf eitthvað sem
kemur upp á. En við höfum náð að
vinna vel saman,“ bætir hann við.
Víkingur tryggði sér sem kunn-
ugt er sigur í 1. deild karla í knatt-
spyrnu og þar með sæti í efstu deild
að ári með sigri á Grindavík í ótrú-
legum leik þriðjudaginn 1. septem-
ber síðastliðinn, þrátt fyrir að þá
væru þrjár umferðir eftir af Íslands-
mótinu. „Leikurinn í Grindavík var
svo ótrúlegur að ég vissi ekki hvort
ég ætti að trúa þessu. Hugsaðu þér,
7-2 á móti Grindavík sem er með al-
vöru lið. En við vorum svosem bún-
ir að vinna átta leiki í röð og það er
engin tilviljun að við séum komnir
upp. Við eigum þetta alveg skilið.“
Renndu blint í sjóinn í
upphafi móts
Eins og áður kom fram hefur Ejub
þjálfað lið Víkings Ólafsvíkur síðan
2003 og var því einnig við stjórn-
ina þegar liðið vann sér fyrst sæti
í úrvalsdeild karla árið 2012. Þeg-
ar blaðamaður biður hann að bera
saman þessi tvö skipti segir hann
nokkurn mun vera þar á. „Árið 2012
þá sáum við fyrir mót að við gætum
farið upp. Við vorum með mann-
skap sem hafði verið saman í tvö til
þrjú ár og við vissum að við ættum
möguleika á að berjast um toppsæt-
in. Núna höfðu orðið miklar breyt-
ingar á liðinu eftir fall úr úrvals-
deild og okkur vantaði hreinlega
leikmenn. Við vorum í janúar Ís-
landsmeistarar í futsal með átta leik-
menn,“ segir Ejub og brosir. „En við
vorum staðráðnir í að ná í fleiri leik-
menn og það tókst. Liðið kom aft-
ur á móti ekki saman fyrr en í þriðju
umferð þannig að við renndum
nokkurn veginn blint í sjóinn í upp-
hafi móts,“ bætir hann við.
Hann hefur orð á því að þrátt fyr-
ir að Víkingur sé í raun lítið lið frá
litlum stað og liðinu hafi gengið vel
undanfarin ár vænti fólk þess að því
gangi vel áfram. „Það var samt eng-
in pressa eða skýrt markmið knatt-
spyrnustjórnarinnar að fara upp.
En ef færi gæfist þá myndum við
auðvitað reyna.“
Grunnurinn lagður í
upphafi móts
En hvenær rann upp fyrir þjálfar-
anum að liðið gæti farið upp í úr-
valsdeild? „Um miðjan júlí sagði
ég við liðið að nú litum við út eins
og lið sem væri tilbúið að fara upp.
Við skyldum samt sjá hvernig mótið
spilaðist, en við gætum það og það
varð raunin,“ segir Ejub. Úr varð að
á síðari hluta mótsins var liðið nán-
ast óstöðvandi, vann átta leiki í röð
og tryggði sér sæti í úrvalsdeild þeg-
ar þrjár umferðir voru eftir af Ís-
landsmótinu. Ejub vill þó meina
að vísir að því sem koma skyldi hafi
verið sjáanlegur mun fyrr. „Í byrj-
un mótsins, þar er grunnurinn lagð-
ur að því að fara upp. Við spiluðum
vel þar. Eftir 9. umferð vorum við
komnir með 20 stig, búnir að skora
aðeins 10 mörk. Við byggðum þetta
á því að vera agaðir og skipulagðir,
spila góða vörn. Leikmennirnir voru
sáttir við það og skiluðu sínu hlut-
verki mjög vel.“
Þrátt fyrir að liðið hafi komist
á mikið flug á síðari hluta mótsins
og skorað mikið af mörkum, með-
al annars með komu framherjans
Hrvoje Tokic, segir Ejub að leikur
liðsins byggi engu að síður á sterk-
um varnarleik. „Nú síðari hluta móts
erum við komnir með rosalega gott
lið sem skorar fullt af mörkum en
það var langur vegur að búa það til,
það byggist allt á að ná góðu jafnvægi
sóknar og varnar. Tokic kemur og
skorar mikið fyrir okkur af því hann
passar liðinu og liðið passar honum.
Vonast til að liðið geti
haldið sér uppi
Aðspurður segist Ejub ekki vera far-
inn að velta næsta ári fyrir sér af
neinni alvöru, hann sé enn að átta
sig á þessu. „Það er fyrst og fremst
gaman að vera kominn í úrvals-
deild, hvernig sem fer, við höfum
engu að tapa,“ segir hann. „Þetta
er ævintýri. Fyrir svona bæjarfélag
er rosalega erfitt að halda liði í 1.
deild, hvað þá að vera með lið í úr-
valsdeild. Við eigum bara að njóta
þess að vera í úrvalsdeildinni og
fá bestu knattspyrnulið landsins í
heimsókn til Ólafsvíkur. En auð-
vitað vona ég að við getum haldið
okkur uppi,“ segir Ejub Purisevic
að lokum.
kgk
Ejub Purisevic, þjálfari Víkings:
„Við eigum að njóta þess að vera í úrvalsdeild“
Ejub Purisevic þjálfari Víkings Ólafsvíkur.
TIL HAMINGU
VÍKINGUR ÓLAFSVÍK
MEÐ SÆTIÐ Í
PEPSI-DEILDINNI!