Skessuhorn - 09.09.2015, Síða 27
MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015 27
Búið er að sjó-
setja hið nýja upp-
sjávarveiðiskip HB
Granda, Víking AK,
sem er í smíðum í
Tyrklandi. Skipið
var sjósett í Hats-
an skipasmíðastöð-
inni þar sem skrokk-
urinn var smíðaður
og er það nú í Ce-
líktrans Denís Ísaa-
at Ltd. skipasmíða-
stöðinni í Istan-
bul í Tyrklandi þar sem lokið verð-
ur við smíðina. Frá þessu er greint
á vef HB Granda, kaupanda skips-
ins. Víkingur er systurskip Venusar
NS sem tyrkneska skipasmíðastöð-
in afhenti HB Granda í maí á þessu
ári. „Það er stefnt að því að afhenda
Víking um mánaðamótin nóvember
og desember og að skipið haldi frá
Tyrklandi áleiðis heim í fyrstu viku
desembermánaðar,“ segir Þórarinn
Sigurbjörnsson sem hefur haft eftir-
lit með smíðinni í Tyrklandi.
Þórarinn segir að allri stálvinnu
við skipið sé lokið og málningar-
vinnan sé langt komin. Þessa dag-
ana er verið að ganga frá lögnum
fyrir spilkerfið, leggja rafmagns-
kapla, setja upp startskápa fyrir tæki
og vinna við innréttingar í klef-
um, borðsal og brú. ,,Það er búið
að álagsprófa allar ljósavélar og það
verið að ganga frá aðalvél, gír og
ásrafali auk þess sem unnið er við
undirbúning fyrir gangsetningar á
tækjum og kerfum skipsins,“ segir
Þórarinn en hann hefur einnig eftir-
lit með smiði þriggja nýrra ísfisktog-
ara sem HB Grandi er með í smíð-
um hjá Celíktrans skipasmíðastöð-
inni. „Stálblokkasmíði fyrir togar-
ana miðar ágætlega og nú er verið
að smíða blokkir fyrir tvö skipanna.
Engey RE, sem er fyrst í röðinni, er
að taka á sig mynd því verið er að
raða blokkunum saman. Það búið
að koma fyrir aðalvél skipsins, gír,
ásrafali og ljósavél í vélarrúminu og
stefnt er að því skuturinn verði sett-
ur á fljótlega,“ segir Þórarinn Sigur-
björnsson á vef HB Granda.
mm
Víkingur heim fyrir jól
Víkingur AK sjósettur.
Netabáturinn Hafnartindur
sem gerir út á skötusel hef-
ur í sumar fengið í net sín tvö
stykki af sjaldgæfri krabba-
tegund, svokölluðum norna-
krabba (Paromola cuvi-
eri). Var öðrum þeirra kom-
ið til Sjávarrannsóknaseturs-
ins Varar í Ólafsvík. Að sögn
Kristmundar Sigurðsson-
ar skipstjóra veiddist krabb-
inn á um 30 faðma dýpi út
af Hellissandi. Nornakrabbi
er sjaldgæf tegund sem lifir á
100-800 metra dýpi í austan-
verðu Atlantshafi, frá strönd-
um Afríku, í Miðjarðarhafi
og upp til Noregs og Íslands.
Stærstu krabbar af þessari
tegund geta orðið 22 cm að
lengd og er nornakrabbi því
með stórvöxnustu krabba-
tegundum við Ísland. Hann
finnst á mjúkum botni þar
sem hann er talinn nota lang-
ar gripklær til að grafa eft-
ir æti. Vitað er að á matseðli
hans eru m.a. skrápdýr, fisk-
ar, krabbadýr og skeljar.
Skjöldur nornakrabbans sem
barst til Varar er 12,5 cm langur og
11 cm breiður. Eins og hjá kröbb-
um þessarar tegundar er skjöldurinn
ljós á lit, ferkantaður, hár og kúpt-
ur með marga litla beitta brodda.
Fram úr skildinum ganga þrír beitt-
ir tindar. Augu eru á stilkum, útlim-
ir dökkrauðir og gripklær svarblá-
ar. Aftasta fótapar liggur ofarlega
nálægt skildinum og er áberandi
Með fyrstu nornakröbbum úr
sjó við Snæfellsnes
minnst og er líklega ekki
notað til gangs en vitað
er að sumar krabbateg-
undir nota öftustu útlim-
ina til að grípa svamp og
aðrar lífverur og halda
yfir skildinum, e.t.v. sem
einskonar huliðshjálm.
Samkvæmt grein í
Náttúrufræðingjum frá
árinu 2005 höfðu þá ein-
ungis nokkur eintök af
þessari krabbategund
fundist hér við land, öll á
130—170m dýpi í vörp-
ur humar- og fiskibáta
undan suðurströndinni.
Síðustu ár hefur orð-
ið algengara að bátar fái
þessa krabba í veiðar-
færi sín og hafa meðal
annars örfá eintök fund-
ist í Breiðafirði. Fjölgun
krabba af þessari tegund
og aukna útbreiðslu má
ef til vill rekja til hlýrri
sjávar við landið undan-
farin ár.
Sjómenn við Breiðafjörð eru ein-
dregið hvattir til að koma forvitni-
legum og ef til vill nýjum tegundum
sem þeir veiða til Sjávarrannsókna-
setursins í Ólafsvík, en þannig má
fylgjast með útbreiðslu sjávardýra í
hafinu við landið. Að sögn Kristins
Ólafs Kristinssonar líffræðings hjá
Vör er fyrirhugað að stoppa norna-
krabbann upp og vera með hann til
sýnis í Vör.
af
Nornakrabbinn.
Kristinn Ólafur Kristinsson með nornakrabbann.
Bókasafn Akraness • Dalbraut 1 • s. 433 1200 • bokasafn.akranes.is • bokasafn@akranes.is
Vetrarstarfið er að hefjast á Bókasafni Akraness
Verið velkomin að taka þátt í vetrarstarfi bókasafnsins. Hvetjum hópa sem
vantar aðstöðu til að hittast að hafa samband í síma 433-1200 eða senda
póst á bokasafn@akranes.is.
Annan þriðjudag í mánuði verða Dúllustundir, fundir handavinnufólks. Næsti fundur verður
þriðjudaginn 13. október og síðan 10. nóvember og 8. desember. Það verður rjúkandi heitt á
könnunni og kósíheit að vanda. Hlökkum til að sjá þig.
Þriðja fimmtudag í mánuði verða fundir hjá . Fyrsti fundur verður
fimmtudaginn 17. september kl. 16:15 – 17:15. Á fyrsta fundi verða ræddar bækur
sem lesnar voru í sumar.
leshring bókasafnsins
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | bifrost@bifrost.is | bifrost.is
Húsnæði í boði á hagstæðu verði.
Háskólinn á Bifröst óskar eftir ræstitækni
raesting@bifrost.is
Umsóknarfrestur er til 21. september 2015.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Snorrastofa í Reykholti
Fyrirlestrar í héraði
Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur
í Reykholti
Sími 433 8000
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
Þriðjudagurinn 15. sept. 2015
kl. 20:30
í Bókhlöðu Snorrastofu
Listamaður á söguslóðum
Johannes Larsen á ferð um Ísland 1927 og 1930
Vibeke Nørgaard Nielsen og Sigurlín Sveinbjarnardóttir flytja
Umræður og kaffiveitingar
Aðgangur kr. 500
Danski listmálarinn Johannes
Larsen túlkaði sögusvið Íslend-
inga sagna í veglegri útgáfu
þeirra í Danmörku árið 1930.
Hann fór í ferðum sínum um
Borgarfjarðarhérað og raunar
allt Vesturland, teiknaði fjölda
mynda og kynntist samfélaginu.
Fjallað verður um verk Larsens
í þágu íslenskrar menningar og
honum fylgt um söguslóðirnar
með frásögn og myndum.
Teikning Larsens af Snorralaug árið 1927