Skessuhorn - 09.09.2015, Side 33
MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015 33
Pennagrein
Eldvarnir eru í brennidepli hjá
Akraneskaupstað og starfsfólki
hans um þessar mundir. Í samræmi
við samkomulag Akraneskaupstað-
ar og Eldvarnabandalagsins um efl-
ingu eldvarna fær allt starfsfólk bæj-
arins nú fræðslu um eldvarnir bæði
á vinnustað og heima. Afar ánægju-
legt er að upplifa góðar undirtektir
starfsmanna við þessu. Fyrir dyrum
stendur jafnframt innleiðing eigin
eldvarnaeftirlits hjá öllum stofnun-
um bæjarins. Þar gegna eldvarna-
fulltrúar lykilhlutverki. Vaskur
hópur karla og kvenna hefur þegar
tekið að sér hlutverk eldvarnafull-
trúa og munu Eldvarnabandalag-
ið og Slökkvilið Akraness og Hval-
fjarðarsveitar veita þeim nauðsyn-
lega fræðslu og þjálfun.
Akraneskaupstaður hefur fullan
hug á að standa mun betur að eld-
vörnum og öryggismálum en gert
hefur verið til þessa. Í innleiðingu
eigin eldvarnaeftirlits felst einmitt
skýr yfirlýsing um að efla eldvarn-
ir með reglulegu eftirliti og við-
haldi. Markmiðið er að auka ör-
yggi starfsfólks, nemenda og við-
skiptavina og draga úr líkum á tjóni
á rekstri og eignum.
Innleiðing eigin eldvarnaeftirlits
hjá fyrirtækjum og stofnunum er
eitt af áhersluverkefnum Eldvarna-
bandalagsins en það er samstarfs-
vettvangur tíu fyrirtækja, félaga-
samtaka og stofnana um að auka
eldvarnir á heimilum og í fyrirtækj-
um og stofnunum. Eldvarnabanda-
lagið hefur útbúið fræðsluefni um
eldvarnir heimilisins og eigið eld-
varnaeftirlit og er stuðst við það í
samstarfinu við Akraneskaupstað.
Eldvarnir í
leiguhúsnæði
Rannsóknir Eldvarnabandalagsins
og Landssambands slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna sýna að eld-
varnir í leiguhúsnæði eru almennt
mun lakari en hjá þeim sem búa í
eigin húsnæði. Liður í samstarfi
Akraneskaupstaðar og Eldvarna-
bandalagsins er að efla sérstaklega
eldvarnir hjá þeim sem búa í leigu-
húsnæði. Það verður gert með
hvatningu og fræðslu í tengslum
við umsóknir um húsaleigubæt-
ur hjá Akraneskaupstað í byrjun
næsta árs. Þeir sem sækja um húsa-
leigubætur munu fá afhenta hand-
bók Eldvarnabandalagsins um eld-
varnir heimilisins með hvatningu
um að fara yfir eldvarnir á heim-
ilinu og bæta úr ef þörf krefur.
Megináhersla er í því sambandi
lögð á að hafa nægilega marga
virka reykskynjara svo íbúar geti
sem fyrst orðið varir við eld og
gert viðeigandi ráðstafanir til að
vernda líf, heilsu og eignir.
Samstillt átak
Eldvarnir hjá Akraneskaupstað
verða ekki óaðfinnanlegar á einni
nóttu. Við bindum hins vegar
miklar vonir við að með réttu hug-
arfari og samstilltu átaki stjórn-
enda og starfsmanna Akranes-
kaupstaðar, Eldvarnabandalagsins
og Slökkviliðs Akraness og Hval-
fjarðarsveitar megi efla eldvarn-
ir til muna á næstu mánuðum og
misserum. Jafnframt væntum við
þess að reynslan af samstarfinu á
Skaganum geti nýst öðrum sveit-
arfélögum og fyrirtækjum við inn-
leiðingu eigin eldvarnaeftirlits og
í því skyni að auka vitund starfs-
manna og annarra um mikilvægi
eldvarna á heimilum og vinnu-
stöðum.
Regína Ásvaldsdóttir,
bæjarstjóri á Akranesi
Garðar H. Guðjónsson, verkefna-
stjóri Eldvarnabandalagsins
Eldvarnir í brennidepli á Skaganum
Dag ur í lífi...
Nafn: Birta Stefánsdóttir.
Fjölskylduhagir/búseta: Ég bý
hjá mömmu og pabba á Akra-
nesi.
Starfsheit/fyrirtæki: Starfs-
maður á Skattstofunni.
Áhugamál: Fótbolti, ferðalög
og tónlist.
Föstudagurinn 4. september
2015
Klukkan hvað vaknaðir þú og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Ég vaknaði kl. 7 og fékk
mér morgunmat.
Hvað borðaðir þú í morgun-
mat? Ristað brauð.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Ég fór í vinnuna kl. 8
á bíl.
Fyrsta verk í vinnunni: Ég
byrjaði á því að gera allt klárt í
afgreiðslunni.
Hvað varstu að gera klukkan
10? Þá var ég að koma úr kaffi.
Hvað gerðir þú í hádeginu?
Ég fór heim og fékk mér hádeg-
ismat
Hvað varstu að gera klukkan
14? Þá var ég að vinna í virðis-
aukaskattinum.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Það
síðasta var að klára póstinn og
svo hætti ég kl. 16.
Hvað gerðir þú eftir vinnu?
Þá fór ég á fótboltaæfingu.
Hvað var í kvöldmatinn og
hver eldaði? Fiskur á pönnu og
grænmeti sem pabbi eldaði.
Hvernig var kvöldið? Kvöld-
ið var mjög rólegt. Ég horfði á
nokkra þætti og fór snemma að
sofa því það var fótboltaæfing
morguninn eftir.
Hvenær fórstu að sofa? Ég fór
að sofa kl. 22:30.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
sofa? Að kíkja smá í tölvuna.
Hvað stendur upp úr eftir
daginn? Skemmtileg fótbolta-
æfing.
Eitthvað að lokum? Áfram ÍA!
Starfsmanns á Skattstofunni
Undanfarna 18 mánuði hefur fjar-
skiptafyrirtækið Vodafone unnið
að því að þétta háhraðaþjónustu-
svæði félagsins vítt og breitt um
landið, þar á meðal í og við Borgar-
byggð. Þetta kemur fram í fréttatil-
kynningu frá fyrirtækinu. „Á dög-
unum var nýr 4G sendir gangsett-
ur á Rauðamelskúlu, ekki síst fyrir
tilstuðlan og hvatningu íbúa og yf-
irvalda á svæðinu enda hafði sam-
band verið takmarkað þar. Við
breytinguna stórefldist háhraða-
samband á hluta sunnanverðs Snæ-
fellsness, þ.e. á Mýrum, í Hnappa-
dal og víðar,“ segir meðal annars
í tilkynningunni. Fyrirtækið hef-
ur einnig gangsett nýja 4G senda
á Strúti og við Bifröst sem gagnast
bæði ferðamönnum á leið við
Langjökul og Arnarvatnsheiði og
háskólanemum í uppsveitum Borg-
arfjarðar. Nýju sendarnir eru góð
viðbót við þá senda sem félagið var
fyrir með á svæðinu en Borgarnes,
Húsafell og uppsveitir Borgarfjarð-
ar í kringum Varmaland hafa notið
háhraðasambands fyrirtækisins frá
því í fyrra. Þá hefur félagið fjölg-
að öðrum sendum á sömu slóðum
undanfarið. Þannig hefur 3G sam-
band verið styrkt bæði í Borgarnesi
og með nýjum sendi við Vegamót.
Farsímaþjónusta efst í Borgarfjarð-
ardölum hefur einnig verið styrkt
verulega með tilkomu nýs 2G far-
símasendis í Lundarreykjadal, segir
í tilkynningunni.
Grunnstoðir fjarskipta á
svæðinu styrktar
Uppbygging og styrking fjarskipta-
kerfis Vodafone í Borgarbyggð
undanfarið hefur ekki einungis tak-
markast við farsímaþjónustu, að
því er kemur fram í fréttatilkynn-
ingunni. Grunnstoðir fjarskipta í
ofanverðum Borgarfirði hafa ver-
ið styrktar verulega, meðal annars
með ljósleiðaratengingu á helstu
fjarskiptastaði sem þjóna stærri
byggðakjörnum, svo sem Skáneyj-
arbungu, Bifröst og Hvanneyri.
Uppitími á varaafli á lykilfjarskipta-
stöðum hefur einnig verið efldur,
ekki síst í kjölfar mikilla truflana á
orkuafhendingu í ofsaveðri í mars
2015. „Stafræn sjónvarpsdreifing í
lofti hefur líka verið efld til muna
á svæðinu undanfarna 18 mánuði,
ekki síst með innkomu nýrra send-
istaða, meðal annars í tengslum
við uppbyggingu félagsins á nýju
dreifikerfi RÚV. Frá og með júlí
2015 hefur RÚV í háskerpu m.a.
verið dreift frá öllum sendistöðum
Vodafone í Borgarfirði.“
grþ
Kort sem sýnir
móttökustyrk 4G
sambands á
þjónustusvæði
Vodafone.
Vodafone styrkir 4G
samband í Borgarbyggð
Félagar í Björgunarfélagi Akraness
vinna enn að standsetningu nýja
björgunarbátsins sem keyptur var í
fyrra. Báturinn kom til Akraness í
nóvember á síðasta ári og var ljóst
frá upphafi að ýmislegt þyrfti að
gera í bátnum áður en hann yrði til-
búinn til notkunar. Í hann vantaði
meðal annars allan björgunarbún-
að og siglingatæki. Að sögn Guðna
Haraldssonar, formanns sjóflokks
BA er nánast allur búnaður kominn
um borð en ýmis frágangsvinna eft-
ir. „Við gerðum alltaf ráð fyrir að
þetta tæki langan tíma. Verkefni er
unnið í sjálfboðaliðastarfi og vinn-
an því unnin á þeim tíma sem menn
geta gefið sér í það. Það hefur líka
verið svolítið að gera í hinum og
þessum útköllum hjá okkur und-
anfarið. Þessa dagana erum við að
byrja aftur eftir sumarfrí og erum
að sanka að okkur sjálfboðaliðum
og iðnaðarmönnum til að klára
verkefnið,“ segir Guðni. „Það væri
gaman að geta sagt til um hvenær
verkinu lýkur en það fer alveg eft-
ir því hvernig menn mæta og hvað
við eigum mikið af peningum. Það
er ekki ókeypis að koma öllu þessu
fyrir,“ bætir hann við.
Nýi báturinn er mun fullkomn-
ara og stærra björgunarskip en nú-
verandi Margrét Guðbrandsdóttir
sem hann mun leysa af hólmi. Bát-
urinn var smíðaður árið 1955 og
áður notaður sem sjómælingabátur
hjá breska hernum. Hann var meðal
annars fjármagnaður með peninga-
gjöf sem BA fékk þegar Minningar-
sjóður hjónanna Guðlaugar Gunn-
laugsdóttur og Jóns Gunnlaugs-
sonar frá Bræðraparti var formlega
lagður niður í fyrra. Bróðurparti
sjóðsins var úthlutað til björgun-
armála á Akranesi. Báturinn hefur
ekki enn verið nefndur en að sögn
Guðna mun nafn hans verða opin-
berað þegar hann er tilbúinn og
verður sjósettur. grþ
Enn er unnið í nýja
björgunarbátnum
Báturinn á hafnarbakkanum á Grundartanga, þaðan sem hann var fluttur á
Akranes í nóvember sl.