Skessuhorn


Skessuhorn - 09.09.2015, Síða 36

Skessuhorn - 09.09.2015, Síða 36
MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 201536 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is TRÉSMIÐJAN AKUR EHF. Trésmiðjan Akur ehf. • Smiðjuvöllum 9 300 Akranesi Sími 430 6600 • akur@akur.is • www.akur.is ÖLL ALMENN TRÉSMÍÐAÞJÓNUSTA Endurbætur og nýsmíði Þök – Klæðningar – Gluggar – Útihurðir – Sólpallar LAUSNIN HÖFÐASELI Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00 alla virka daga R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Sprautu- og bifreiðaverkstæði Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti Tjónaskoðum fyrir öll tryggingafélög Borgarness Bíldahöfða 12 • Reykjavík • 587 6688 • www.fanntofell.is fanntofell@fanntofell.is • facebook.com/fanntófell-ehf BORÐPLÖTUR - SÓLBEKKIR Framleiðum eftir óskum hvers og eins Mikið úrval efna, áferða og lita SK ES SU H O R N 2 01 4 Vélaviðgerðir • Gírupptektir • Þrif á kælum Rennismíði • Viðgerðarvinna Vélaverkstæði Hillarí Nesvegi 9 340 Stykkishólmi Símar: Sigurður 894-6023 Rúnar 694-9323 Smíðum úr stáli, járni og áli PARKETLIST PARKETSLÍPUN OG LÖKKUN Sigurbjörn Grétarsson GSM 699 7566 parketlist@simnet.isparketlist@parketlist.is Bifreiðaþjónusta Harðar ehf. Smur og dekkjaþjónusta Sala á dekkjum og olíuvörum Borgarbraut 55 - 310 Borgarnesi 437 1192 / 847 8698 - midgardur@vesturland.is SK ES SU H O R N 2 01 4 Hvenær hefst samtalið sveitarstjórn? Pennagrein Miðvikudaginn 2. september síð- astliðinn flutti ég ályktun í nafni stjórnar Íbúasamtaka Hvanneyrar og nágrennis á opnum íbúafundi sem haldinn var í húsakynnum LbhÍ á Hvanneyri að boði sveita- stjórnar. Hátt í tvöhundruð manns sóttu fundinn. Ályktunin er svona: „Fundarmenn lýsa yfir algjöru vantrausti á meirihluta sveitar- stjórnar Borgarbyggðar. Það hefur sýnt sig það sem af er kjörtímabili að meirihlutinn ber ekki hag heild- arinnar fyrir brjósti og er ekki starfi sínu vaxinn. Röð illa ígrundaðra ákvarðanna af hans hálfu hafa kost- að sveitarfélagið mikla fjármuni og mannauð, skapað úlfúð og alvar- legan trúnaðarbrest. Sem dæmi má nefna mannabreytingar í ráðhús- inu, ákvörðunina um lokun grunn- skóladeildar GBF á Hvanneyri og ákvörðun um að draga til baka aug- lýsingu um leikskólastjórastöðu leikskólans Andabæjar. Fundar- menn fara fram á að meirihluti víki úr sveitarstjórn og hleypi fólki að sem er tilbúið til að vinna af heil- indum fyrir íbúa Borgarbyggðar.“ Þetta eru ströng orð. Ályktunin var samþykkt án breytinga með þorra atkvæða; 7 voru á móti. Töluvert þarf að hafa gengið á áður en slík ályktun er flutt. Sam- þykkt hennar staðfestir þunga málsins. Hart er að þurfa að ganga svo langt til að nauðsynlegt samtal verði, raunar hefur enn ekkert gerst þrátt fyrir atburði síðustu daga. Verður þó haldið í vonina um lýð- ræðislegt samtal og framvindu. Hagfræðin er einföld: Sveitar- félagið kastar krónunni og sparar aurinn. Hvanneyri er í sókn. Hing- að flytur ungt fjölskyldufólk og greiðir útsvar. Þetta fólk segir skól- ann hér mikið aðdráttarafl og hafi jafnvel ráðið fjárfestingu þess. Að Hvanneyri fluttu 5 fjölskyldur síð- asta vetur. Þar til 11. júní síðastlið- inn, er ákvörðun sveitarstjórnar var tekin án nokkurs samráðs við íbúa. Var útlit var fyrir enn meiri fólks- fjölgun auk uppbyggingar í nýsköp- un og atvinnulífi sem hefði laðað að enn fleiri íbúa og styrkt samfélagið enn. Sveitarstjórn skellir skollaeyrum við þessu. Sjálfstæðismenn segjast hlusta og hlusta og staðhæfa að þeir heyri, heimamenn eru steinhætt- ir að hafa áhyggjur af heyrnarleysi þeirra en efast nú um skilningsgáf- una. Framsóknarmenn heyra hvorki né vilja skilja. Rök þeirra fyrir nið- urskurði eru engin nema þau sem hrakin voru um leið og umræð- an hófst. Þeir segjast geta sparað 35 milljónir eða þar um bil. Ítrek- að hefur verið óskað eftir töluleg- um gögnum og útreikningum fyrir þessum sparnaði en heimtist seint og illa. Þeir reikna ekki kostnað við breytingarnar inn í dæmið t.d. þann augljósa við skólaakstur sem óum- flýjanlega bætist við, er víst að það fáist greitt af Jöfnunarsjóði? Þaðan af síður reikna þeir í dæmið skerta samkeppnishæfni Borgarbyggðar til að laða að íbúa þegar skóla í öðru stæsta þéttbýlinu er lokað. Þeir trúa ekki að skóli á staðnum hafi nokkur áhrif þegar fólk velur sér búsetu. Kæru framsóknarmenn - enn og aftur: Grunnskólar eru mikilvæg- ir byggðaþróun. Einmitt þessvegna byrja menn að byggja skóla í nýj- um hverfum þó enn séu engin börn. Einhver eftirsóknarverðustu hverfi höfuðborgarsvæðisins eru einmitt góð skólahverfi. Mikið er bagalegt að félagar ykkar í meirihluta virð- ast ekki átta sig á þessu, eiga þeir ekki að vera sérlegir áhugamenn um samkeppnishæfni? Undantekning- arlaust skoða vinir mínir skólaað- stæður áður en þeir fjárfesta í hús- næði og framtíðarstað. Fólk sem sækir í að setjast að í litlu þorpi úti á landi metur það mikils að börnin þeirra gangi eða hjóli í skólann, klári skóladaginn og fari beint út í leiki með félögum sínum. Þetta er hluti af lífskúnst þess og viðhorfum. Hæfni framsóknarmanna eða vilji til að senda börnin sín í skólabíla langar leiðir kemur málinu hrein- lega ekki við. Við sem veljum okk- ur búsetu á sveitabæ og látum ekki á okkur fá að börnin sitji í bíl - hvort sem það er skólarúta eða okkar eigin bíll eins og í mínu tilfelli, verðum að skilja sjónarmið hinna - annars tap- ar sveitin okkar mikilvægum tekjum í sveitarsjóð! Þá er vert að minnast þess að skólastjórnendur GBf komu með ít- arlegar sparnaðartillögur fyrir rekst- urinn sl. vor sem enn lækka þessa 35 milljón króna órökstuddu tölu sveit- arstjórnar. Mikið fagnaðarefni er að menn skuli loksins gangast við grafalvar- legri fjármálastöðu sveitarfélagsins. Vitaskuld verður að bregðast við og bæta úr og þó fyrr hefði verið. Það verður þó ekki gert með van- hugsuðum niðurskurði og slembi- reikningi og ekki heldur með því að hrekja í burtu íbúa með makalaust ólýðræðislegum vinnubrögðum og lakri stjórnsýslu. Það er gert með: • hnitmiðaðri umræðu og mark- miðasetningu. Þegar stórmál sem varða almannahag koma til kast- anna þá þurfa menn að hafa hug- rekki og kjark til að ræða þau á opinberum vettvangi og komast að niðurstöðu sem sátt er um. • að auka samkeppnishæfni sveit- arfélagsins með tilliti til hversu vel það er í stakk búið að laða að nýja íbúa, markhóparnir eru mis- munandi eftir svæðum. Þetta kall- ar á trausta byggðaþróunarstefnu og grundvallarforsenda er að hægt sé að treysta aðalskipulagi. Sam- keppnishæfni Borgarbyggðar er mikilvæg svo tryggja megi sjálfbæra og varanlega aukningu á almennum lífsgæðum. • að kortleggja styrkleika og kosti byggðarinnar allrar, fara vel með hlunnindin og leita leiða til að virkja mannauð og vannýtt tækifæri. Að mínu viti liggja vannýttu tækifærin ekki síst í landbúnaði, nú þegar samtíðin sýnir jafn afdrátta- lausan og ákafan áhuga á afurðum og ávexti hans. Borgarbyggð ætti að móta stefnu í landbúnaðarmálum. Borgarbyggð ætti ekki að hreyfa við nokkru því er gæti skaðað gæti stöðu LbhÍ í héraðinu. Rektor, pró- fessorar og aðrir háskólamenn hafa margsinnis rætt mikilvægi grunn- skólahalds á staðnum fyrir háskól- ann. Grunnskólinn treystir sam- keppnishæfni hans í að drífa að jafnt starfsfólk sem nemendur. Við verð- um að hafa trú á því að skólanum farnist vel í héraði og treysta starfs- umhverfi hans - ekki síst með að efla aðdráttarafl Hvanneyrar, hækka þar þjónustustig og lífsgæði. Íbú- ar eru reiðubúnir í slík verkefni og vilja vinna markvisst að uppbygg- ingu. Er það virkilega svo að sveit- arstjórn svari því frumkvæði með að slá botnin úr öllu saman og loka grunnskólanum? Fundarmenn miðvikudagsins samþykktu einnig einróma álykt- un um að sveitarstjórn ætti að draga til baka ákvörðun sína um lok- un Hvanneyrardeildar GBF. Dag- inn eftir er haft eftir Birni Bjarka að ákvörðunin standi og ekki hafi ver- ið rætt að hverfa frá henni. Hvenær hefst samtalið sveitarstjórn? Eða verður of lítið og of seint, ekki neitt og aldrei? Bryndís Geirsdóttir.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.