Skessuhorn - 09.09.2015, Side 38
MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 201538
Hver er eftirlætis
maturinn þinn?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Alvar Brandur Gunnarsson:
Grjónagrautur.
Anton Máni Jónsson:
Mér finnst best að borða kara-
mellujógúrt.
Yrsa Brynjarsdóttir:
Rækjupasta.
Hjörtur Pétursson:
Pylsupasta, það er best.
Arndís Halla Guðlaugsdóttir:
Mér finnst fiskur besti matur-
inn.
Uppskeruhátíð barna- og ung-
lingastarfs UDN og aðildarfélaga
var haldin á Reykhólum miðviku-
daginn 2. september síðastliðinn.
Iðkendur frá fimm ára aldri og upp
úr voru verðlaunaðir fyrir afrek lið-
ins sumars, persónulegar bætingar
og síðast en ekki síst þátttöku, en að
sögn Pálma Jóhannssonar var þátt-
takan heilt yfir góð í sumar. „Starf-
ið í sumar er búið að vera gott,
skemmtilegur stígandi og ánægju-
leg fjölgun iðkenda. Þetta hefur
verið keyrt á kvöldmótum í frjálsum
íþróttum og það var ótrúleg aukn-
ing í þátttöku frá fyrsta móti og til
þess síðasta,“ segir Pálmi. „Það var
ótrúlega gaman að horfa yfir völl-
inn á síðasta mótinu í Búðardal því
það var alveg fullt af fólki,“ bætir
hann við.
Öll mótin í sumar voru haldin í
Búðardal og að sögn Pálma er það
vegna þess að það er eina aðstaðan
sem UDN hefur til að halda svona
mót. Aðstaðan sé þó langt frá því
að vera nægilega góð. Þátttakend-
um sé að fjölga, það hafi sýnt sig í
sumar, sambandið sendi keppend-
ur á Unglingalandsmót og fleiri
mót og aðstaðan þurfi að vera betri.
„Það var mjög góð mæting frá okk-
ur á Unglingalandsmót, krakkarnir
stóðu sig vel og sumir þeirra unnu
til verðlauna,“ segir Pálmi.
Í vor hófu forsvarsmenn sam-
bandsins að safna fyrir nýjum
íþróttagöllum handa iðkendum.
Fyrirtæki á svæðinu létu fé af hendi
rakna og UDN, ásamt aðildar-
félögum innan sambandsins, styrkti
söfnunina. Fór svo að lokum að það
mikið fé safnaðist til að hægt væri
að niðurgreiða gallana um 40% af
heildsöluverði. UDN gaf svo öllum
grunnskólabörnum og efsta skóla-
hóp leikskóla jakkana. Var almenn
ánægja með framtakið og að sögn
Pálma hafði þetta mjög jákvæð
áhrif á starfið.
Uppsveifluna mátti einnig greina
á góðri mætingu á uppskeruhá-
tíðina sjálfa, en yfir hundrað manns
mættu, iðkendur og foreldrar.
UDN, ásamt fyrirtækjum á svæð-
inu, bauð öllum gestum til grill-
veislu og Solla stirða og Íþróttaálf-
urinn skemmtu krökkunum áður
en viðurkenningarnar voru veittar.
kgk
Uppsveifla í starfi UDN
og fjölgun iðkenda
Þessi hópur fékk viðurkenningar fyrir framúrskarandi þátttöku í starfi sambandsins.
Vignir Smári Valbergsson og Hafdís Inga Ásgeirsdóttir
fengu verðlaun fyrir bestu afrek sumarsins í frjálsum
íþróttum.
Þátttaka var sérstaklega góð hjá yngri iðkendum í sumar.
Fyrirtækjamót Badmintonfélags
Akraness var haldið í fyrsta sinn
sunnudaginn 6. september síðast-
liðinn og gekk að sögn aðstandenda
vonum framar. Alls skráðu 50 kepp-
endur sig til leiks og áttu ánægju-
legan dag í íþróttahúsinu við Vest-
urgötu. Eins og áður hefur kom-
ið fram var bifreiðaumboðið Askja
helsti styrktaraðili mótsins en einn-
ig studdi fjöldi annarra fyrirtækja
og einstaklinga við félagið með því
að leggja til þátttökuvinninga sem
dregið var um úr nöfnum þátttak-
enda. Í keppninni sjálfri voru leikn-
ir tvíliðaleikir og í lok hverrar við-
ureignar var leikin svokölluð spað-
aruna sem gaf eitt aukastig. Í lok
móts var svo keppt í „venjulegri“
runu og þar stóð Edit Ómarsdóttir
uppi sem sigurvegari.
Sigurvegarar mótsins var lið
Öskju, Spaðarnir hrepptu ann-
að sætið og Bílástrukkarnir fengu
verðlaun fyrir flottustu búning-
unum, en þeir skörtuðu gömlum
HV fótboltabúningum sem elstu
menn þekkja. Var það mál manna
að stuttu stuttbuxurnar hefðu gert
útslagið í búningakeppninni. Sig-
urvegararnir hlutu, auk verðlauna-
gripa, gjafabréf í fótboltagólf á Þór-
isstöðum og partíplatta frá Subway.
Mótið var liður í fjáröflunar-
og eflingarstarfi Badmintonfélags
Akraness og vilji er fyrir því hjá fé-
laginu að gera mótið að árlegum
viðburði. Í því sambandi vill félagið
minna á að frítt er á trimmæfing-
ar félagsins vil áramóta en þær eru
haldnar þrisvar sinnum í viku.
-fréttatilkynning
Bílástrukkarnir voru verðlaunaðir fyrir
bestu búningana, en þeir klæddust
gömlu HV fótboltabúningunum.
Var það mál manna að stuttu stutt-
buxurnar hefðu gert útslagið í
búningakeppninni.
Vel heppnað fyrirtækjamót
Badmintonfélags Akraness
Lið Öskju stóð uppi sem sigurvegari á fyrirtækjamóti Badmintonfélags Akraness.