Skessuhorn - 21.10.2015, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 201514
Síðastliðinn laugardag var ekin loka-
umferðin í Íslandsmótinu í rallý.
Eknar voru fjórar sérleiðir um Skjald-
breiðarveg og Kaldadal. Spennan var
mikil því ljóst var að í lok dags myndu
úrslit um Íslandsmeistaratitla ráðast í
þremur flokkum; jeppaflokki, flokki
bíla án túrbínu og heildarkeppn-
inni, en í þeim flokki teljast allir þeir
bílar sem keppa, óháð afli og útbún-
aði. Mikið hafði rignt dagana fyrir
keppni og sama var uppi á teningn-
um á keppnisdaginn, auk þess sem
allhvasst var meðan keppni stóð yfir.
Aðstæður voru því erfiðar, vegir bæði
mjúkir og ósléttir en keppendur létu
það þó ekki á sig fá enda dýrmæt stig
í boði. Barist var af öllu afli en and-
stætt síðustu umferð var einungis ein
áhöfn sem ekki lauk keppni.
Úrslit í umferðinni urðu þau að
Daníel og Ásta Sigurðarbörn sigr-
uðu með yfirburðamun. Þau óku nú
í fyrsta skipti á nýjum Subaru bíl sín-
um en í öðru sæti urðu Baldur Har-
aldsson og Aðalsteinn Símonarson. Í
því þriðja lentu Henning Ólafsson og
Árni Gunnlaugsson en þeir hafa lent
í miklum hrakföllum í sumar. Ljóst
var í lok dags hverjir hömpuðu Ís-
landsmeistaratitlum. Í jeppaflokki
urðu þeir Þorkell Símonarson, Keli
vert, og Anna María Sighvatsdóttir
stigahæst og því meistarar. Má þess
geta að þetta var fyrsta keppnissum-
ar Önnu Maríu sem verður að telj-
ast mjög góður árangur. Keli hefur í
sumar keppt ásamt Þórarni K. Þórs-
syni á Toyota Hilux bifreið. Hafa þeir
nýtt ýmsa hluti til endurbóta á bíln-
um svo sem golfkúlu sem hnúð á gír-
stöngina. Í flokki bíla án túrbínu sigr-
uðu þau Baldur Arnar Hlöðversson
og Hanna Rún Ragnarsdóttir eft-
ir harða baráttu við hjónin Ólaf Þór
Ólafsson og Tinnu Rós Vilhjálms-
dóttur. Draumur Óla og Tinnu varð
að engu eftir að dekk sprakk á þriðju
sérleið.
Í heildarkeppni urðu Baldur Har-
aldsson frá Sauðárkróki og Aðal-
steinn Símonarson úr Borgarnesi í
forystu fyrir umferðina. Var ljóst út
frá stigagjöf að þeim myndi nægja
sjötta sætið í lok dag. Örlaði á tauga-
titringi í þeirra liðsbúðum eftir hrak-
farir síðustu umferðar á Skjaldbreið-
arvegi en þessir þaulreyndu ökumenn
óku af skynsemi í bland við góðan
hraða, allar fjórar leiðirnar og upp-
skáru þannig annað sætið. Sýndu þeir
enn og aftur að ekki skal eingöngu
leggja áherslu á hraðan akstur held-
ur þarf skynsemi og útsjónarsemi að
vera með í för. Með þetta í farteskinu
tryggðu þeir sér Íslandsmeistaratitil-
inn, annað árið í röð. mm/gjg
Tveir Íslandsmeistaratitlar á Vesturland
Baldur og Aðalsteinn á fleygiferð í lokaumferð mótsins. Annað sætið dugði þeim til
sigurs á Íslandsmótinu og verja þeir því titil sinn frá síðasta ári. Keli vert og Anna María sigruðu í jeppaflokki.
Í tilefni Bleika dagsins var rætt
við Þórhildi Þorsteinsdótt-
ur bóndi á Brekku í Norðurár-
dal. Hún hefur kynnst krabba-
meini og afleiðingum þess meira
en hún hefði kosið, horfði á eft-
ir fjórum sér nákomnum yfir
móðuna miklu á einungis tveim-
ur árum. Sjálf hefur hún greinst
með frumubreytingu á byrjunar-
stigi og er undir eftirliti af þeim
sökum. „Ég horfði á eftir móður
minni, tengdaföður, mákonu og
frænku yfir í sumarlandið vegna
krabbameins. Ég fylgdi þeim öll-
um á innan við tveimur árum,“
skrifar Þórhildur. „Ég horfa upp
á sársaukann, vanlíðanina, von-
leysið og að geta ekkert gert
nema verið til staðar. Það var
óendanlega sárt.“
Þórhildur segir að sínu mati sé
mjög svo heimskulegt að fresta
því að fara í krabbameinsskoð-
un sé maður boðaður. „Kannski
er maður jú hræddur við að það
sé eitthvað að, ég var alveg í þeim
pakka þegar ég var yngri. Það er
nefnilega mjög auðvelt að vera
í einhverjum blekkingarleik við
sjálfan sig. Það er nauðsynlegt
að fá greiningu sem fyrst ef eitt-
hvað reynist að, þá eru batalík-
urnar jú mun meiri, segir sig eig-
inlega sjálft. Því er nauðsynlegt
að standa saman um öflugt heil-
brigðiskerfi, sem býður fólki upp
á öflug og árangursrík meðferð-
arúrræði. Það gerist ekki með
flótta lækna úr landi, biluðum
og gömlum tækjum og lélegum
launum og óhófslegs álags á þá
sem fólk vill og langar að starfi í
íslensku heilbrigðiskerfi og með
endalausum verkföllum. Ég vil
ekki lenda í því að þurfa að vera
hrædd við að ef ég greinist, að þá
fái ég ekki þá þjónustu sem mér
ber og vill fá, vegna niðurskurðar.
Leitarstöð Krabbameinsfélagsins
vinnur virkilega gott starf og að
sjálfsögðu á maður að mæta þeg-
ar maður fær bréf, maður á að
bera virðingu fyrir sér og lífinu,
þú ein/einn berð ábyrgð á þínu
lífi og maður fær aðeins eitt tæki-
færi.“
Þórhildur segist alltaf hafa
mætt í krabbameinsrannsókn-
ir og hún hafi verið heppin. „Ég
fékk greiningu á breytingum á
frumstigi og er undir góðu eft-
irliti. Ég er ein af þeim heppnu.
Njótum dagsins saman og vekj-
um um leið athygli á árvekniátaki
Bleiku slaufunnar og baráttunni
gegn krabbameinum hjá kon-
um,“ segir Þórhildur Þorsteins-
dóttir á Brekku.
mm
Hefur kynnst
sjúkdómnum í návígi
Þórhildur Þorsteinsdóttir á Brekku.
Bleiki dagurinn var föstudaginn
16. október en hann er eins og
flestir vita tileinkaður árvekniá-
taki bleiku slaufunnar í baráttunni
gegn krabbameini í konum. Dags-
ins var víða um land minnst með
ólíkum hætti. Skagamenn þjóf-
störtuðu deginum áður með því
að mála bæinn bleikan á fimmtu-
dagskvöldið. Krabbameinsfélag
Akraness og nágrennis gekkst fyr-
ir göngu sem endaði með fræðslu-
og skemmtidagskrá á Akratorgi.
Þar var dagskrá þar sem slaufuberi
félagsins var kynntur, ávarp bar-
áttukonu var flutt, happdrætti og
kakósala til stuðnings félaginu og
tónlist var flutt. Á föstudeginum
var síðan ýmislegt í gangi. Nefna
má að Geirabakarí í Borgarnesi
kynnti til sölu bleikar hnallþórur
sem seldar voru í bakaríinu. Rann
fimmtungur af verði hverrar seldr-
ar kökur til Krabbameinsfélagsins.
Þá voru víða starfsmenn á vinnu-
stöðum klæddir í bleikt í tilefni
dagsins.
mm
Bleiki dagurinn var á föstudaginn
Starfsfólk Geirabakarís hefur selt margar kökur í tilefni
dagsins, en hluti söluandvirðis rennur til Krabbameins-
félagsins. Ljósm. Geirabakarí á Facebook.
Arndís Halla Jóhannesdóttir flutti opnunarerindi á Akratorgi
þegar dagskrá í tilefni árvekniátaksins fór þar fram.
Ljósm. hs.
Karlmenn í Stjórnsýsluhúsinu í Borgarnesi stilltu sér upp til
myndatöku. Ljósm. gbf.
Prúðbúið starfsfólk á bæjarskrifstofunum á Akranesi. Ljósm. sas.
Á leikskólanum Krílakoti í Ólafsvík voru þessar bleiku
kræsingar á boðstólnum í morgunsárið, þar á meðal þessi
glæsilega bleika slaufukaka, en bleika slaufan er einmitt
tákn Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameini
hjá konum. Ljósm. Snæfellsbær á Facebook.
Á leið þingmanna Framsóknarflokks á
fjórðungsþing sveitarfélaga á Norður-
landi vestra, komu þeir við í Borgar-
nesi. Þar fengu þeir morgunkaffi og
bleika ástarpunga í tilefni dagsins. F.v.
Elsa Lára Arnardóttir, Árni Guðjónsson
og Ásmundur Einar Daðason.