Skessuhorn - 21.10.2015, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 2015 19
Eftirtaldar helgar verðum við með dýrindis jólahlaðborð á
Hótel Bifröst: 20. - 21. nóv., 27. - 28. nóv. og 4. - 5. des.
Sími 433 3030 hotelbifrost.is hotel@bifrost.is
Jólahlaðborð á Hótel Bifröst 2015
Jólahlaðborð 7.900 kr. á
mann.
Jólahlaðborð með gistingu
og morgunverði 14.500 kr.
á mann.
Geiturnar á Bjarteyjarsandi höfðu forystu þegar norsku konurnar
fóru í fjárhúsin að skoða féð.
Ferðir með mikla
möguleika
Sjálf er Githa Kristensen ekki í
neinum vafa um að þessi hugmynd
þar sem prjónakonum er boðið upp
á Íslandsferðir til að kynnast betur
íslensku ullinni, Íslandi og menn-
ingu þess um leið og tækifæri gef-
ist til að versla, sé nokkuð sem á
mikla möguleika í ferðaþjónust-
unni. „Ég held að það mætti mark-
aðssetja svona ferðir víðar en í Nor-
egi og þá einkum á Norðurlöndun-
um. Það var reyndar ein kona með
frá Stokkhólmi í Svíþjóð í síðustu
ferð. Við eigum alveg eftir að kynna
svona ferðir víðar en í Noregi. Við
höfum fengið fyrirspurnir frá Dan-
mörku. Familien-tímaritið er mjög
útbreitt í Noregi og fer víða, meðal
annars til Danmerkur og Svíþjóðar
svo þetta spyrst út. Við notum líka
Facebook mjög mikið til kynningar.
Fólk sem hefur áhuga á prjónaskap
er mjög virkt í ýmsum prjónahópum
á Facebook. Fólk skiptist þar á upp-
lýsingum, sýnir verk sín og spjallar
saman. Það kom þægilega á óvart að
sjá viðbrögin þar þegar við kynnt-
um fyrstu ferðina til Íslands.“
Githa segir að þetta sé þó kannski
ekki nema eðlilegt. „Íslenskur lopi
og garn er eftirsóttur varningur sem
hefur sérstöðu. Ullin á Íslandi er af
sauðfé sem er af hreinum stofni sem
upphaflega kom frá Noregi fyr-
ir rúmum þúsund árum síðan. Þið
hafið ekki blandað ykkar fé með er-
lendum stofnum og það má segja
að Íslendingar séu með upphaflega
norska fjárstofninn.“
Íslensku ullarafurðirnar
einstakar
Að sögn Githu skiptir þó mestu að
ullin og lopinn á Íslandi hefur sér-
staka eiginleika sem norsku prjóna-
konurnar finni ekki annars staðar.
Úr lopanum megi gera flíkur sem
eru næstum vatns- og vindþéttar.
„Konurnar sem ferðast með okkur
í þessum hópum hafa mikla þekk-
ingu á prjónaskap og garntegund-
um. Þær eru sérfræðingar sem vita
upp á hár að hverju þær eru að leita
og eru mjög vel meðvitaðar um eig-
inleika íslensku ullarinnar og lop-
ans. Af þessum sökum er mjög
áhugavert fyrir þær að koma hingað
til Íslands, sjá íslenskan landbúnað,
kynnast framleiðslunni á lopanum
og garninu og síðan versla þennan
varning hér. Íslenskt garn og lopi er
líka all nokkuð ódýrara hér á landi
en komið í verslanir heima í Nor-
egi. Svo er það líka svo að það er
mikill áhugi á Íslandi í Noregi nú
um stundir. Ísland er í tísku. Þess-
ar ferðir okkar snúast líka um fleira
en prjónaskap og garnhnykla. Við
skoðum okkur um á Íslandi, bæði í
þéttbýli og dreifbýli, og kynnumst
landi og þjóð,“ sagði Githa.
Norsku konurnar sem fóru um
Vesturland á sunnudaginn voru
himinlifandi yfir þeim móttökum
sem þær fengu, bæði á Bjarteyjar-
sandi, Hvanneyri og í Borgarnesi.
Alls staðar beið þeirra bæði fræðsla
og veitingar af ýmsu tagi, þar sem
nefna má bæði íslenska kjötsúpu og
íslenskt kaffihlaðborð með pönnu-
kökum, rjómavöfflum og kleinum.
Á Bjarteyjarsandi var aukin heldur
boðið upp á tónlist þar sem María
Jónsdóttir söng á íslensku og norsku
konurnar svöruðu með fjöldasöng á
sínu tungumáli. Var almælt í norska
hópnum að þessi dagur á Vestur-
landi hefði verið ógleymanleg upp-
lifun.
mþh
Ærnar á Bjarteyjarsandi voru myndaðar í bak og fyrir enda
framleiða þær ull í hinn eftirsótta íslenska lopa.
Það var mikið að gera í afgreiðslunni í Ullarselinu þar sem varningnum er pakkað
í poka sem heftaðir eru saman úr gömlum opnum úr Skessuhorni. Ástríður
Sigurðardóttir og Rita Freyja Bach við afgreiðslu. Endurvinnsla af bestu gerð.
Svo geta konurnar stautað sig fram úr innihaldi Vesturlandsblaðsins í fluginu á
leiðinni heim.
Githa Kristensen prjónakona og fararstjóri hefur skipulagt pílagríms-
ferðir norsku prjónakvennanna til Íslands. Þær ferðir eru heldur betur
að slá í gegn.
Guðrún Bjarnadóttir í Hespuhúsinu á Hvanneyri tók á móti norsku konunum í
íþróttahúsinu þar og sagði þeim frá því hvernig hún litar garnið með náttúrlegum
aðferðum úr íslenskum hráefnum. Það vakti óskipta athygli norsku kvennanna.