Skessuhorn - 30.03.2016, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 20162
og áður sagði er það samdráttur í
síldar- og loðnuafla sem skiptir sköp-
um í þessu samhengi.
Aftur á móti eykst heildarafli botn-
fisks annars vegar og hryggleysingja
og krabbadýra hins vegar. „Á fyrstu
6 mánuðum yfirstandandi fiskveiði-
árs veiddu íslensk skip um 17 þúsund
tonnum meira af þorski (13,4%) og
um 3,5 þúsund tonnum meira af ýsu
(17,8%) en á sama tímabili á fyrra ári.
Þá dróst ufsaaflinn saman á milli ára
um 4 þúsund tonn eða um 18,5%.
Heildaraflinn í botnfiski er um 18,5
þúsund tonnum meiri (8,5%) en
á fyrra ári,“ segir á vef Fiskistofu.
„Helstu tíðindi af afla í hryggleys-
ingjum og krabbadýrum borið sam-
an við sama tímabil fyrra árs er að
aflinn eykst um rúmt eitt þúsund
tonn, þ.e. frá rúmum 3 þúsund tonn-
um í fyrra upp í rúm 4 þúsund tonn
á yfirstandandi fiskveiðiári. Er þessi
aukning mest vegna aukinnar veiði í
rækju (10%), hörpudiski (138%) og
sjæbúgum (138%).“
kgk
Vor er í lofti og af því tilefni hafa margir
dregið fram reiðhjólin. Víðast hvar má sjá
fólk á hjóli, ekki síst börn. Við minnum alla
á að fara varlega í umferðinni og taka tillit
til þeirra sem eru hjólandi og að sjálfsögðu
minnum við hjólreiðafólk á að yfirfara reið-
hjól sín og að nota hjálm.
Á morgun spáir vaxandi austanátt. Stöku él
sunnanlands en bjartviðri verður um land-
ið norðan- og vestanvert. Austan 10 - 20
um kvöldið, hvassast með suðurströndinni
og snjókoma eða slydda á Suðausturlandi.
Hiti um og yfir frostmarki, en frost 1 til 6 stig
norðaustanlands. Á föstudag verður áfram-
haldandi austanátt, víða bilinu 13 til 18 m/s.
Rigning eða slydda sunnan- og austanlands
en úrkomulítið í öðrum landshlutum. Hiti
verður á bilinu 2 til 7 stig og fer að draga
úr vindi seinnipartinn. Um helgina spáir
austan- og suðaustan 5 til 13 með skúrum
eða jafnvel slydduéljum en þurrt að kalla
á Norðurlandi. Hiti 2 til 7 stig yfir daginn. Á
mánudag snýst líklega í norðlæga átt með
kólnandi veðri. Slydda eða snjókoma með
köflum norðan til en bjart syðra.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Hvað hefur þú í matinn á páskadag?“
Langflestir sögðust hafa lambakjöt í mat-
inn, eða 33,62%. „Svínakjöt“ svöruðu 17,94%
en 10,45% svöruðu „Borða bara súkkulaði á
páskadag“. 9,76% borðuðu fisk á páskadag
en 9,06% nautakjöt. 8,01% svarenda borð-
uðu grænmetisrétt á páskunum en 7,84%
villibráð. Fæstir ætluðu að hafa alifuglakjöt í
matinn, eða 3,31% svarenda.
Í næstu viku er spurt:
Hvað er eftirlætis sjónvarpsefnið þitt?
Georg Breiðfjörð í Stykkishólmi er elsti nú-
lifandi Íslendingurinn. Hann fagnaði 107
ára afmæli síðastliðinn laugardag. Georg er
Vestlendingur vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Jafnrétti í
sveitarfélögum
LANDIÐ: Samband íslenskra
sveitarfélaga stendur fyrir mál-
þingi og námskeiði um jafn-
rétti í sveitarfélögum dagana
31. mars og 1. apríl nk. „Þessir
viðburðir eru skipulagðir með
vísun til stefnumörkunar Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga
kjörtímabilið 2014-2018 þar
sem segir að sambandið skuli
hvetja og styðja sveitarfélögin í
því að ná fram jafnrétti kynjanna
í reynd,“ segir í tilkynningu frá
sambandinu. „Sérfræðingar frá
sænska sveitarfélagasamband-
inu, SALAR, munu vera með
kynningu á málþinginu 31.
mars og leiðbeinendur á nám-
skeiðinu 1. apríl. SALAR hef-
ur um nokkra ára skeið, með
fjárstuðningi frá sænska rík-
inu, stutt sænsk sveitarfélög í að
gera jafnréttismál sjálfbær inn-
an sveitarfélaga. Áherslan hefur
verið á að kynjasjónarmið séu
samþætt inn í starfsemi sveit-
arfélaga og aðferðir kynjasam-
þættingar nýttar til að veita íbú-
um betri og skilvirkari þjón-
ustu.“ Bæði málþingið og nám-
skeiðið verður haldið á Grand
hótel í Reykjavík. Skráning fer
fram á vef sambandsins.
-kgk
Leiðrétting vegna
Útlendra
Skagamanna
AKRANES: Í umfjöllun
Skessuhorns 9. mars síðast-
liðinn um fundinn „Útlend-
ir Skagamenn“ sem boðað var
til á Rótarýdeginum á Akranesi
var vegna misskilnings ranglega
greint frá því að Uchechukwu
Michael Eze hefði sagt að mik-
il fátækt væri í Nígeríu. Hvort
sú fullyrðing er sannleikanum
samkvæm er aukaatriði í þessu
samhengi því það voru sannar-
lega ekki orð Uche. Hann sagði
orðrétt á fundinum: „Við höf-
um ekki félagslegt kerfi eins og
hérna. Þar skiptir mestu máli að
eiga góða fjölskyldu sem hjálp-
ar manni þegar eitthvað kemur
fyrir. En öll erum við eins inn
við beinið og viljum bara eiga
nóg fyrir okkur og að heilsan sé
í lagi.“
Enn fremur vakti hann í lok er-
indis síns máls á því að Íslend-
ingar hefðu hefðu tekið sér vel
en blaðamanni láðist að taka
fram að sérstaklega ætti hann
þar við íslensku fjölskyldu sína.
„Íslendingar og þá aðallega ís-
lenska fjölskyldan mín hefur
tekið vel á móti mér og ég er
stoltur af því að vera Íslend-
ingur,“ sagði Uche. Leiðréttist
hvort tveggja hér með og biðst
blaðamaður velvirðingar á að
hafa mistúlkað orð Uche.
-kgk
STYÐJUM
FRAMLEIÐSLU Á
VESTURLANDI
OPIÐ DAGLEGA
12-17
Ljómalind Sveitamarkaður, Brúartorgi 4, Borgarnesi.
Sími 437-1400. Netfang: ljomalind@ljomalind.is
Heildarafli íslenska flotans á fyrstu
sex mánuðum fiskveiðiársins 2015 til
2016, frá 1. september 2015 til loka
febrúar 2016, nam tæpum 472 þús-
und tonnum upp úr sjó. Til saman-
burðar var aflinn á sama tímabili í
fyrra rúm 648 þúsund tonn. Þetta er
samdráttur í heildarafla sem nemur
um 27,2 prósentum eða rúmlega 176
þúsund tonnum. Skýrist samdráttur-
inn að mestu leyti af minni síldar- og
loðnuafla í ár en á sama tíma í fyrra.
Mikill samdráttur er á heildar-
afla uppsjávarfisks. „Borið saman við
sama tímabil á síðasta fiskveiðiári er
nú mikill samdráttur í uppsjávarfiski.
Heildaraflinn fer milli ára úr rúm-
um 423 þúsund tonnum í rúm 227
þúsund tonn og dregst saman um
46,3%,“ segir á vef Fiskistofu. Eins
Rúmlega fjórðungs samdráttur á heildarafla flotans
Loðnu dælt úr Venusi á Akranesi.
Nú um páskana var ruddur sá hluti
á Fróðárheiði þar sem notaður hef-
ur verið vetrarvegur síðan í des-
ember. Voru skaflarnir stórir og
miklir og ruðningarnir sem mynd-
uðust eru líklega vel yfir þrjá metra
á hæð. Ekki þarf þó mikið til að hún
lokist aftur á þessum stað en hann
er mjög snjóþungur. En stutt er í
vorið að vonandi snjóar ekki meira
á næstunni svo þurfi ekki að loka
Fróðárheiði meira þennan vetur-
inn. þa
Fróðárheiði rudd
Michelle Bird fékk rós vikunn-
ar í Vetrar-Kærleik Blómaseturs-
ins – Kaffi kyrrðar í Borgarnesi.
Um Michelle Bird segir í tilnefn-
ingunni: „Þú ert jákvæð og bros-
mild. Þú geislar og gefur af þér
mikla gleði. Það er fallegt hvað þér
er annt um Borgarfjörð og hvað þér
finnst æðislegt að búa í Borgarnesi.
Þú styrkir samfélagið á listrænan
og uppbyggilegan hátt.“ Michelle
er vel að rósinni komin.
kgk
Michelle Bird
er rósarhafi
vikunnar
Um fimmleytið að morgni föstu-
dagsins langa barst Slökkviliði
Akraness og Hvalfjarðarsveitar
útkall. Logaði þá eldur í útikofa í
bakgarði húss við Vitateig á Akra-
nesi. Slökkvistarf gekk hratt og
örugglega og eldurinn hafði að
fullu verið slökktur hálfri klukku-
stund síðar. Engin slys urðu á fólki
en kofinn er gerónýtur.
Eldsupptök eru ekki kunn. Talið
er að jafnvel hafi verið um íkveikju
hafi verið að ræða en málið er til
rannsóknar hjá Lögreglunni á
Vesturlandi.
kgk
Útikofi brann
á Akranesi