Skessuhorn - 30.03.2016, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2016 5
Pípulagningaþjónustan Hilmir B
ehf hefur verið starfrækt frá árinu
2011. Nýlega var verkstæði og lag-
er þjónustunnar opnaður í Brák-
arey í Borgarnesi. Hilmir B. Auð-
unsson pípulagningameistari er
eigandi fyrirtækisins. Þegar hann
hóf rekstur þess árið 2011 var
hann með verkstæði í bílskúrn-
um við heimili sitt á Akranesi en
kvest alla tíð hafa fengist mest við
pípulagnir í Borgarnesi og Borgar-
firði. „Frá því ég stofnaði fyrirtæk-
ið hefur mesta umfangið alltaf ver-
ið hér í Borgarnesi og nágrenni,
gróflega áætlað um 90% allra okk-
ar verkefna. Það var því eina vitið
að opna verkstæðið hér og gera út
héðan,“ segir Hilmir. Síðastliðið
haust fékk fyrirtækið svo húsnæði
í Brákarey, í gamla stórgripaslát-
urhúsinu. „Þess vegna er mynd
af kusu á hlið hússins,“ útskýrir
Hilmir léttur í bragði. Undir eins
var ráðist í að koma verkstæðinu í
gagnið en samhliða því var kom-
ið upp lager. „Við munum keyra
á lagerhaldi þannig að við eigum
allt það helsta á staðnum. Þannig
sparast tími sem annars færi í búð-
arferðir og leit að vörum. Verkin
ættu að ganga hraðar fyrir vikið,“
segir hann.
Auk Hilmis starfa tveir fastir
starfsmenn hjá fyrirtækinu, Finn-
ur Guðmundsson pípulagninga-
meistari og Ingi Sigurður Ólafsson
nemi. Annast þeir allar almenn-
ar pípulagningar, frá viðhaldi og
viðgerðum til pípulagna í nýbygg-
ingum. Þar að auki hefur Hilm-
ir sótt sér réttindi til plastsuðu og
uppsetningar vatnsúðakerfa. Seg-
ir hann ekki síst plastsuðuréttindin
hafa komið sér vel. „Ég hef nokk-
uð verið að sjóða fyrir Borgarverk
og Orkuveituna í gegnum tíðina,
það hefur verið ágætt að gera í
plastsuðunni,“ segir hann. Raunar
segir hann að verkefnastaðan hafi
almennt verið góð í gegnum tíð-
ina. „Það gekk vel eftir að ég byrj-
aði og verkefnunum fór að fjölga.
Það hefur bara verið fínt að gera
alla tíð og stöðugt, sem er ekki
endilega viðbúið í þessum geira,“
segir Hilmir og Finnur tekur und-
ir með honum. „Einhvern veginn
hefur aldrei fallið mikið út þrátt
fyrir að stundum hafi litið út fyr-
ir að það væri öðruvísi. Það hefur
gengið mjög vel og viðskiptavinir
okkar hafa almennt verið ánægð-
ir,“ segir Finnur.
Vantar fleiri pípara
Sökum þess að á verkstæðinu í
Borgarnesi eru samankomnar þrjár
kynslóðir pípara, það er meistara
og nema, ef svo má að orði kom-
ast, stenst blaðamaður ekki mátið
að spyrja þá hvers vegna þeir lögðu
iðngreinina fyrir sig. „Ég man nú
bara ekki af hverju ég gerðist píp-
ari, ég er búinn að vera svo lengi,“
segir Finnur og hlær við. „Ég lærði
til pípara ´68. Byrjaði að vinna hjá
pabba og festist og ég er enn í
þessu,“ segir hann en bætir því við
að honum hafi alltaf líkað vel og
aldrei íhugað af neinni alvöru að
breyta til.
Hilmir kveðst hafa lagt pípu-
lagningar fyrir sig eftir að hann
hætti á sjónum. „Ég var togarasjó-
maður frá 17 ára aldri en hætti 24
ára gamall og fór fljótlega í píp-
arann eftir það. Ég fann fljótt að
þetta væri það sem ég ætlaði að fást
við um ókomna tíð. Mér fannst
pípulagnir skemmtilegasta vinna
sem ég hafði unnið við á ævinni og
mér finnst það enn,“ segir Hilmir.
Ingi kveðst hins vegar ekki
ákveðinn í að leggja pípulagning-
ar fyrir sig til frambúðar. Hann
sé á leið í verkfræðinám. Engu að
síður hafi hann langað að öðlast
reynslu af pípulagningum og ber
hann starfinu vel söguna. „Þetta
er starf sem krefst einhvers af
manni, ólíkt sumum störfum þar
sem maður lærir allt sem í starf-
inu felst á fyrstu tveimur vikun-
um. Ég er enn að læra nýja hluti
hérna nánast á hverjum degi,“ seg-
ir hann. „Þetta er fjölbreytt starf
og það vantar fleiri pípara,“ bætir
Hilmir við og Finnur vekur máls á
því að starfsöryggi pípara sé gott.
„Þó ekki sé alltaf á vísan að róa í
þessum geira þá man ég ekki eft-
ir pípara sem hefur orðið atvinnu-
laus. Hvorki hef ég sjálfur misst
vinnuna né þeir sem ég hef starfað
með og þekki til, þrátt fyrir að ým-
islegt hafi gengið á í gegnum tíð-
ina,“ segir Finnur. „Það er einmitt
málið, það er alls staðar hægt að fá
vinnu sem pípari. Alls staðar eru
launin prýðileg, píparar eru eftir-
sóttir í vinnu og ég myndi glaður
taka á móti fleiri mönnum,“ segir
Hilmir.
kgk
Pípulagningaverkstæði og lager
Hilmis B ehf. opnaður í Borgarnesi
Hilmir fyrir utan nýopnað verkstæðið og lagerinn í Brákarey í Borgarnesi.
Þrír fastir starfsmenn vinna hjá pípulagningaþjónustunni Hilmir B ehf. F.v. Finnur Guðmundsson pípulagningameistari,
Hilmir B Auðunsson pípulagningameistari og Ingi Sigurður Ólafsson nemi.
Um þessar mundir verða breyting-
ar á starfsmannahaldi Landbún-
aðarsafns Íslands á Hvanneyri. Jó-
hannes Ellertsson lætur af störfum
sökum aldurs, en hann hefur unnið
á safninu um þrettán ára skeið. Jó-
hannes mun þó áfram leggja safn-
inu lið og grípa í verk, einkum varð-
andi lagfæringar og forvörslu mik-
ilvægra gripa. „Hefur safnið notið
hagleiks hans, vandvirkni og verk-
þekkingar,“ segir í frétt á vef safns-
ins. „Landbúnaðarsafnið þakkar Jó-
hannesi trausta liðveislu um árabil.
Þá mun Ragnhildur Helga Jóns-
dóttir, land- og umhverfisfræðing-
ur, kennari við LbhÍ og bóndi í
Ausu, koma í starfshluta við safnið.
„Ragnhildur Helga er gjörkunnug
safninu, hefur um árabil komið þar
að kynningu og móttöku gesta, en
það verður aðalviðfangsefni henn-
ar nú fyrst í stað. Ragnhildur Helga
hefur einnig unnið rannsóknaverk-
efni á vegum safnsins, bæði um
engjanýtingu í Borgarfirði og rækt-
unarminjar í Ólafsdal.“
Hlutur Bjarna Guðmundsson-
ar verkefnisstjóra mun minnka, en
hann mun þó áfram sinna nokkrum
störfum varðandi daglegan rekstur
safnsins. kgk
Breytingar á starfsliði
Landbúnaðarsafns
Jóhannes Ellertsson (t.v.) lætur af störfum eftir þrettán ár á Landbúnaðarsafninu.
Hér er hann ásamt Bjarna Guðmundssyni verkefnisstjóra safnsins.
Mynd úr safni Skessuhorns.
Eins og Skessuhorn hefur áður greint
frá munu tökur á stórmyndinni Fast
8 fara fram á Akranesi nú á vormán-
uðum. Myndin verður sú áttunda í
röð Fast and the Furious myndanna
sem margir kannast við og hafa gam-
an af.
Senn líður að tökum myndarinnar
og ýmiss konar farartæki hafa skot-
ið upp kollinum á Akranesi. Í gær
óku vörubílar á vegum framleiðslu-
fyrirtækisins inn í bæinn með bíla á
vagni sem að öllum líkindum munu
sjást í myndinni. Skagamenn ráku
þar augun í Rússajeppa, Lödur og
snjótroðara, ýmist í felulitum eður
ei, við höfnina á Akranesi áður en
farartækjunum var snarlega ekið inn
í skemmu þar sem þau munu bíða
tökudags. kgk
Fararskjótar úr Fast 8 fluttir á Akranes
Ef vel er að gáð má sjá snjótroðara í felulitum á myndinni.
Ljósm. grþ.
Rússajeppi sem breytt hefur verið í snjótroðara.
Ljósm. ki.
Meðal annars mátti sjá Lödu Sport og Rússajeppa. Ljósm. Hilmar Sigvaldason.