Skessuhorn - 30.03.2016, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 20166
Eyða meiru í
vín með
aldrinum
LANDIÐ: Íslendingar
eyða hærri upphæð í áfengi
á hverjum mánuði eft-
ir því sem þeir eldast. Frá
þessu var greint í frétt á vef
Kjarnans. „Samkvæmt töl-
um frá Meniga, sem byggja
á neysluhegðun um 50 þús-
und Íslendinga, eyðir eldra
fólk, 66 og yfir, um 11.700
krónum í Vínbúðinni á
mánuði að meðaltali. Eng-
inn aldurshópur eyðir eins
miklu og neysla eykst eftir
því sem fólk verður eldra,“
segir í fréttinni. Þar segir að
auki: „Gögn Meniga byggja
á fjárhagslegum 16 milljón
færslum 50 þúsund notenda
sem veltu um 84 milljörð-
um króna árið 2015. Me-
niga greinir ekki eftir heim-
ilum, heldur meðaltalsnokt-
un einstaklinga.“
Yngsti aldurshópurinn, 16 til
25 ára, eyðir lægstu upphæð
allra aldurshópa á mánuði
hverjum í Vínbúðinni, eða
fimm þúsund krónum. Þar
telja vitanlega ekki þeir sem
eru undir tvítugu og ekki
hafa náð áfengiskaupaaldri.
Næst lægstri mánaðarlegri
upphæð eyða þeir í áfengi
sem eru 26 til 35 ára, þá ald-
urshópurinn 36 til 45 ára og
svo koll af kolli. „Þetta er
einn af fáum vöruflokkum
þar sem útgjöld aukast jafnt
og þétt með aldrinum,“ seg-
ir í fréttinni.
-kgk
Breytingar
á forystu LK
LANDIÐ: Útlit er fyrir mikl-
ar breytingar á forystu Lands-
sambands kúabænda á kom-
andi aðalfundi sambandsins sem
haldinn verður um mánaðamót-
in. Sigurður Loftsson í Steins-
holti, sem setið hefur í stjórn sl.
14 ár, fyrstu sjö sem varaformað-
ur og síðan formaður, hefur líst
því yfir að hann muni ekki gefa
kost á sér til endurkjörs. Slíkt hið
sama gerði Guðný Helga Björns-
dóttir á Bessastöðum, sem setið
hefur í stjórn sl. ellefu ár og síð-
ustu sjö sem varaformaður. Þá
hefur Baldur Helgi Benjamíns-
son, framkvæmdastjóri LK til
tíu ára, sagt starfi sínu lausu frá
og með 1. apríl nk. Þegar hafa
tveir boðið sig fram til formanns.
Það eru þeir Jóhann Nikulásson
á Stóru-Hildisey II í A-Landeyj-
um, stjórnarmaður LK til 14 ára
og Arnar Árnason á Hranastöð-
um í Eyjafirði. Allir félagsmenn
eru í framboði til stjórnar á kom-
andi aðalfundi. Nýrri stjórn bíður
síðan það verkefni að ráða nýjan
framkvæmdastjóra. -kgk
Snæfellsbær áfram
í Útsvari
SNÆFELLSB: Miðvikudag-
inn 23. mars hófst á ný keppni í
Útsvari, spurningakeppni sveit-
arfélaganna á RÚV, en keppnin
hefur sem kunnugt er verið í hléi
vegna Gettu Betur. Þar mættust
Snæfellsbær og Rangárþing ytra í
síðustu viðureigninni í 16 liða úr-
slitum.
Jafnt var á með liðunum frá fyrstu
mínútu og viðureignin jöfn og
spennandi. Fór svo að lokum að
lið Snæfellsbæjar hafði betur með
43 stigum gegn 39. Þeir Sigfús
Almarsson, Guðmundur Reynir
Gunnarsson og Örvar Marteins-
son eru því komnir áfram í átta
liða úrslit þar sem Snæfellsbær
mætir Fljótsdalshéraði. -kgk
Endurnýja tölvu-
búnað skólanna
HVALFJ: Fræðslu- og skóla-
nefnd Hvalfjarðarsveitar lagði
til á fundi sínum 15. mars síðast-
liðinn að fartölvukostur kenn-
ara í leik- og grunnskólum sveit-
arfélagsins yrði endurnýjað-
ur. Áætlaði nefndin að kostnað-
ur vegna endurnýjunar tölvu-
búnaðarins gæti numið allt að
tveimur milljónum krónum.
Tillaga fræðslu- og skólanefnd-
ar var tekin fyrir á fundi sveitar-
stjórnar þriðjudaginn 22. mars
síðstliðinn þar sem hún var sam-
þykkt samhljóða. „Sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar samþykkir
framkomna tillögu fræðslu- og
skólanefndar um endurnýjun á
fartölvum í leik- og grunnskóla
að fjárhæð allt að kr. 2.000.000-.
Sveitarstjóra falið að leggja fram
viðauka vegna samþykktarinn-
ar á næsta fundi sveitarstjórnar“,
segir í fundargerð. -kgk
Í fjögurra ára framkvæmdaáætl-
un Borgarbyggðar kemur fram að
180 milljónum verði varið í fram-
kvæmdir og fjárfestingar á árinu
2016. Stærsta framkvæmdin í ár
snýr að Grunnskólanum í Borg-
arnesi en ráðgert er að verja 90
milljónum í hönnun, endurbætur
og viðbyggingu skólans. Að sögn
Björns Bjarka Þorsteinssonar for-
seta sveitarstjórnar er ekki kom-
in nákvæm tímasetning á fram-
kvæmdirnar við skólann. „Það er
búið að fara í þarfagreiningu og
hönnuðir eru að vinna frumdrög
núna út frá henni í samstarfi við
byggingarnefnd og starfsfólk. Við
bindum vonir við að hægt verði
að fara í hluta af endurbótaþætt-
inum á þessu ári. Það er kom-
inn tími á endurbætur á húsnæð-
inu og samhliða verður unnið að
hönnun á viðbyggingu í fram-
haldinu. Á þessu stigi er erfitt að
segja eitthvað nánar um tímasetn-
ingar en vonandi verður komin
skýrari mynd á þetta um og upp
úr miðjum næsta mánaðar,“ seg-
ir Björn Bjarki. Samkvæmt fram-
kvæmdaáætluninni er gert ráð fyr-
ir því að settar verði 330 milljón-
ir í verkefnið til ársins 2018. „Við
erum með töluverða fjármuni í
verkefnið og mikill vilji til að gera
þetta vel. Það tekur tíma að hanna
og láta þetta spila saman við eldra
húsnæðið, að ná samhengi í hlut-
ina. Við stefnum á að koma upp
samkomusal sem gæti nýst fyrir
mötuneyti þannig að börnin geti
matast í skólanum. Svo erum við
einnig að horfa til þess að Tónlist-
arskóli Borgarfjarðar fái aðstöðu í
húsnæðinu.“
40 milljónir
í Hnoðraból
Þá er einnig ráðgert að tíu milljón-
um verði varið í malbikun Kveld-
úlfsgötu í Borgarnesi og að 20
milljónir verði settar í malbikun
gangstétta beggja megin við þá
götu. Þá verður 40 milljónum var-
ið í framkvæmdir tengdar leikskól-
anum Hnoðrabóli í Reykholts-
dal, þó ekki hafi enn verið ákveðið
hvernig sú framkvæmd verður út-
færð. „Starfshópur vinnur núna að
því að færa Hnoðraból að Klepp-
járnsreykjum og horfa á þá mögu-
leika að koma honum annaðhvort
fyrir í grunnskólanum eða að nýta
annað húsnæði á Kleppjárnsreykj-
um. Núverandi húsnæði ber ekki
þann fjölda sem í því er og aðstað-
an kannski eins góð og við viljum
bjóða uppá, bæði börnum og ekki
síður starfsfólki, við viljum vinna
bragarbót á aðstöðunni sem fyrst
og koma í veg fyrir að biðlistar
myndist. Við vonumst því til þess
að fara af stað með þetta verkefni á
árinu og vonandi að klára það líka
innan ársins,“ segir Björn Bjarki
Þorsteinsson. grþ
180 milljónir í framkvæmdir
og fjárfestingar
Björn Bjarki Þorsteinsson, forseti
sveitarstjórnar Borgarbyggðar.
Í framkvæmdaáætlun Borgarbyggðar kemur fram að 180 milljónum verði varið í framkvæmdir og fjárfestingar á árinu 2016.
Stærsta framkvæmdin í ár snýr að Grunnskólanum í Borgarnesi.