Skessuhorn - 30.03.2016, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 201610
Nýverið var komið í Safnahúsið í
Borgarnesi með verðmætar heim-
ildir til handa Héraðsskjalasafni
Borgarfjarðar. Um var að ræða
myndasafn Júlíusar Axelsson-
ar sem búsettur var í Borgarnesi,
en hann lést 4. febrúar sl., hátt á
áttræðisaldri. Hafði hann ánafnað
safninu myndum sínum eftir sinn
dag. Júlíus, eða Júlli eins og hann
var gjarnan kallaður, var góður
ljósmyndari og hafði brennandi
áhuga á að skrásetja sem mest af
samfélagsviðburðum. Var nær-
vera hans með myndavélina orð-
in sjálfsögð þar sem eitthvað var
um að vera í Borgarnesi í gegnum
árin. Hann hélt einnig dagbækur
og var góður frístundamálari þar
sem hugað var vel að heimilda-
skráningu í formi myndlistar.
Við andlát sitt ráðstafaði Júlli
eigum sínum til ýmissa góðra mál-
efna, m.a. til rekstrar Brákarhlíð-
ar. Í minningarorðum um hann í
Skessuhorninu segir Björn Bjarki
Þorsteinsson forstöðumaður: „Við
Júlli vorum nágrannar þegar ég
var barn og ég man vel þegar við
sátum og fylgdumst með gatna-
framkvæmdum við Böðvarsgöt-
una, sennilega í kringum 1973, ég
þá lítill pjakkur að horfa á þessar
stóru vélar og þá kappa sem þeim
stýrðu en Júlli við þá iðju sína
sem mikill fjársjóður er nú í, að
skrá niður minnispunkta og taka
myndir. Júlli fylgdist manna best
með öllum framkvæmdum í Borg-
arnesi í áratugi, festi á filmu og
skrifaði hjá sér minnispunkta um
allar framkvæmdir, hvaða menn
voru við störf, tegundir vinnuvéla
og áfram mætti telja.“
Ljóst er að það er héraðsskjala-
safninu mikill fengur að fá mynda-
safn Júlíusar Axelssonar til sín. Það
er mikið að vöxtum og verður nú
mikið verkefni að búa um frumrit-
in, skanna og skrá í gagnagrunn svo
sem flestir geti notið þeirra í fram-
tíðinni. Enn fremur eru nákvæm-
ar dagbækur Júlla merkar heimild-
ir. Nýtist þetta hvort tveggja strax
við ritun á Sögu Borgarness sem
nú er langt komin.
Þess má í lokin geta að svo vildi
til að komið var með myndasafn-
ið í Safnahús þann 22. mars sl. en
það er einmitt formlegur afmælis-
dagur Borgarness þar sem staður-
inn fékk verslunarleyfi þann dag
árið 1867. Borgarnes á því 150 ára
afmæli á næsta ári og verður þess
minnst með ýmsum hætti.
gj
Heimaleikjahópur meistaraflokks
kvenna hjá ÍA hefur hafið störf á
þessu keppnistímabili þrátt fyrir að
leikir Pepsi deildarinnar séu ekki
hafnir. Hópurinn hefur látið út-
búa fallegar könnur sem seldar eru
til styrktar meistaraflokki kvenna.
Kannan er myndskreytt með verki
eftir Bjarna Þór Bjarnason lista-
mann, sem gaf Heimaleikjahópnum
myndina. Frumgerð myndarinn-
ar var seld á uppboði á konukvöldi
ÍA, ásamt fyrsta bollanum. Heima-
leikjahópurinn er félagsskapur sem
meðal annars sér um kaffiveitingar
í hálfleik á Akranesvelli. „Þetta er
það fyrsta sem við gerum til fjár-
öflunar á þessu tímabili. Í sumar
gefum svo vinninga til bestu leik-
mannanna líkt og í fyrra. Við verð-
um með happadrætti og frítt kaffi
og með því á heimaleikjunum hjá
meistaraflokki kvenna. Það verður
frítt fyrir alla sem mæta á leikina,“
segir Dýrfinna Torfadóttir einn af
forsvarsmönnum Heimaleikjahóps-
ins. Könnurnar kosta 3.500 krónur
stykkið en 4.000 krónur ef þær eru í
gjafaöskju. Þær má nálgast hjá gull-
smíðastofu Dýrfinnu við Stillholt
16 á Akranesi og allur ágóði renn-
ur til meistaraflokks kvenna. Könn-
urnar verða einnig seldar á leikj-
um meistaraflokks kvenna í Pepsi
deildinni í sumar.
grþ
Selja könnur til
styrktar ÍA konum
Hér má sjá myndina sem Bjarni Þór gaf Heimaleikjahópnum ásamt kaffibolla með
áprentaðri mynd. Rammar og myndir römmuðu inn myndina.
Ljósm. Marella Steinsdóttir.
Edda Heiðrún Backman færði St.
Franciskusspítalanum í Stykkis-
hólmi fjögur málverk að gjöf nú á
dögunum, en fyrr í vetur hafði spít-
alinn einnig fengið sent sófasett á
vegum Eddu. „Tilefnið er gest-
ristni starfsfólksins á spítalanum,“
segir Edda, en hún hafði fengið
gistingu á spítalanum síðastliðið
sumar. Edda er bundin í hjólastól
eins og kunnugt er og því er gott
aðgengi henni nauðsynlegt. Hún
dvaldi á spítalanum í viku og fór í
skemmtiferðir út á Nes ásamt vin-
konu sinni.
Sófasettið og málverkin príða nú
friðarherbergi St. Franciskusspít-
ala, en það er gjarnan notað fyr-
ir aðstandengur sjúklinga og þegar
ræða þarf alvarleg mál. „Fólk þarf
að hafa eitthvað fallegt að horfa á,“
segir Edda og á þá við þegar fólk
fær slæmar eða erfiðar fréttir. Mál-
verkin fjögur eru af kríum og heita
Svif, Fæðuöflun, Lending og Klif
en serían heitir Gengilbeinur há-
loftanna. Þær höfðu áður verið til
sýnis bæði hérlendis og erlendis.
Áður hafði Edda komið til Stykk-
ishólms fyrir 40 árum síðan og ætl-
að með ferjunni Baldri út í Flat-
ey þar sem bróðir hennar átti hús.
Hún missti hins vegar af ferjunni
og fékk þá gistingu á sama stað
áður en hún komst í Flatey, þá hjá
St.Franciskussystrum. Kríunni seg-
ist Edda hafa kynnst í Flatey þegar
hún stytti sér leið snemma morguns
yfir kríuvarp. „Þær urðu brjálaðar,“
segir hún. Síðan þá hefur Edda ver-
ið heilluð af kríunni en fuglar eru
vinsælt viðfangsefni hjá henni.
jse
Vegleg gjöf til St. Franciskusspítala
Edda Heiðrún Backman ásamt starfsfólki St. Franciskusspítala.
Málverkin fjögur í sófanum frá Eddu.
Ljósmyndasafn
Júlíusar Axelssonar
fært Safnahúsi að gjöf
Myndin er tekin þegar Júlli kom í heimsókn í Safnahús árið 2013. Hann heldur á einu af málverkum sínum þar sem sjá má
húsið að Borgarbraut 53 í Borgarnesi, húsi Jóns Júlíussonar og Áslaugar Sveinsdóttur. Leitað var í smiðju Heiðars Lind Hans-
sonar sagnfræðings sem vinnur við ritun á sögu Borgarness. Segir hann húsið skráð sem Sveinshús í Örnefnaskrá Bjarna
Bachmann, nefnt eftir Sveini Helgasyni verkamanni (þó ekki föður Áslaugar). Bíllinn á myndinni er olíubíll Jóns Júlíusonar.
Esso bílarnir voru bláir á tímabili og Jón Júl ók olíubíl fyrir Olíufélagið í áratugi. Torfhúsið á myndinni er fjós sem var í eigu
föður Áslaugar, Sveins Skarphéðinssonar. Segir Heiðar þetta vera gott dæmi um mynd sem Júlli málaði af húsum í Borgarnesi,
og að myndir hans sýni glöggt hversu annt honum var um bæinn sinn.
Myndasafn Júlla afhent Safnahúsi Borgarfjarðar 22. mars síðastliðinn. F.v. Heiðar
Lind Hansson, Vignir Sigurþórsson húsvörður í Brákarhlíð, Björn Bjarki Þorsteins-
son framkvæmdastjóri Brákarhlíðar og Jóhanna Skúladóttir héraðsskjalavörður.