Skessuhorn - 30.03.2016, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2016 11
eins skemmtilegri en dansinn. Ég
er orðinn svo vanur honum,“ bætti
hann við. Rósa Kristín er einnig að
æfa fimleika samhliða dansinum en
handleggsbrotnaði nýverið. „Mér
finnst samt mikið skemmtilegra í
dansi.“ Þau eru öll sammála um að
dansinn sé skemmtileg íþrótt. „Það
er skemmtilegast að geta dansað við
einhvern og að kynnast nýju fólki,
að hitta nýja krakka,“ segja þau.
„Mér finnst líka gaman að keppa en
uppáhalds parturinn minn er að sýna
öðru fólki eins og við gerðum á sýn-
ingunni í Tónbergi,“ sagði Demi og
brosti. Sýningin heppnaðist vel, vel
var mætt og söfnuðust yfir hundrað
þúsund krónur í ferðasjóðinn. „Það
var samt rosalega skrítið hvað það
var klappað mikið fyrir okkur þeg-
ar við komum á sviðið,“ sögðu Rósa
Kristín og Almar Kári.
Brúnkukrem og
gervineglur
Dansmót í Blackpool hefur ver-
ið haldið árlega allt frá árinu 1947.
Á mótinu keppa ungir dansarar alls
staðar að úr heiminum. Keppt er í
tveimur aldursflokkum; „juveniles“
frá sex til tólf ára, og „juniors“ sem
eru á aldrinum tólf til sextán ára.
Krakkarnir frá Akranesi keppa því í
yngri aldursflokkinum, þar sem þau
eru á aldrinum tíu til ellefu ára. „Við
keppum í níu dönsum - Ballroom og
Latin. Það eru alveg svakalega mörg
pör sem taka þátt og úti í Blackpool
er keppt í höll,“ sögðu þau spennt.
Þau eru þó ekki alls kostar óvön að
keppa í dansi og náðu til að mynda
góðum árangri á almennu grunn-
sporamóti nýverið sem haldið var
samhliða Íslandsmeistaramótinu.
Þar sigruðu Rósa Kristín og Trist-
an Sölvi bæði í standard- og lat-
indönsum en Demi og Almar Kári
hrepptu annað sætið í sömu döns-
um. Þau eru því pollróleg yfir ferð-
inni. „Við erum ekkert stressuð núna
en kannski verðum við það þegar við
erum komin út,“ segja þau. „Þetta
er líka dálítið skrítið fyrir okkur. Úti
megum við nota brúnkukrem, gervi-
neglur og vera málaðar. Það má ekki
hérna á Íslandi, hér eru mikið stíf-
ari reglur,“ sagði Rósa Kristín. Þau
ræddu aðeins um hefðirnar í dans-
inum og muninn á reglunum milli
landa. Þau sögðu meðal annars frá
því að kjólarnir mættu ekki vera of
stuttir og að buxur herranna þyrftu
að vera í réttri sídd. „Við erum líka
með varakjól til að taka með, ef það
má ekki nota aðalkjólinn.“ Krakk-
arnir eiga allir sína uppáhalds dansa
en eiga erfitt með að gera upp á
milli. Flest nefna þau þó að tangó
og vals séu skemmtilegustu ball-
roomdansarnir og samba er vinsæl-
astur af latindönsunum. Umrædd
ferð til Blackpool tekur átta daga og
fara fimm dagar í keppni. „Við fáum
svo frí í tvo daga. Þá ætlum við í tív-
olí og sund,“ sögðu þau spennt fyrir
ferðalaginu. grþ
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
ÖLL ALMENN GARÐVINNA
• Fjarlægjum tré og kurlum
• Útvegum sand, mold og möl
• Leggjum dren- og frárennslislagnir
Sumarstarf á Bókasafni Akraness
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Laust er til umsóknar 50% starf
bókavarðar frá 1. júní til 20. ágúst.
Nánari upplýsingar um fyrrgreint starf er að finna á
heimasíðu Akraneskaupstaðar, www.akranes.is en
þar skal jafnframt sækja um starfið rafrænt á
þar til gerðu eyðublaði.
Umsóknarfrestur er til og með 17. apríl.
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
Tvenn ung danspör frá Akranesi
lögðu land undir fót síðastliðinn
laugardag þegar þau ferðuðust til
Blackpool í Englandi til að keppa
í dansi. Um er að ræða danspör-
in Rósu Kristínu Hafsteinsdóttur
og Tristan Sölva Jóhannsson ann-
ars vegar og Demi van den Berg og
Almar Kára Ásgeirsson hins veg-
ar. Áður en út var haldið héldu þau
glæsilega danssýningu í Tónbergi til
að safna fyrir ferðinni. Krakkarnir
eru allir að keppa á erlendri grundu
í fyrsta sinn og voru öll sammála
um að þau væru mjög spennt fyrir
ferðinni. Þau æfa öll dans hjá Dans-
íþróttafélagi Hafnarfjarðar og und-
anfarið hafa þau æft stíft fyrir mótið
í Blackpool. „Jú, við þurfum að æfa
rosalega mikið. Við erum eiginlega
á hverjum degi í einkatíma,“ sögðu
þau í samtali við blaðamann. Að-
spurð um hvort það væri ekki erfitt
að sækja æfingar í Hafnarfjörð þeg-
ar maður býr á Akranesi sögðust þau
vera orðin vön vegalengdinni og
tímanum sem fer í að koma sér til og
frá æfingum. „Mér fannst þetta taka
alveg heila eilífð fyrst en núna finnst
mér þetta ekkert mál,“ sagði Demi.
„Foreldrar okkar skiptast á að skutla
okkur á æfingarnar,“ bæta hin við.
Sýningin vel heppnuð
Krakkarnir hafa allir æft dans frá því
á unga aldri. Rósa Kristín og Trist-
an Sölvi hafa dansað saman frá fimm
ára aldri en Demi og Almar Kári
síðastliðin þrjú ár. Demi æfir fim-
leika samhliða dansinum og getur
ekki gert upp á milli íþróttanna. Al-
mar Kári er að læra á gítar og hef-
ur einnig gaman að hvoru tveggja.
„Ég er í fótbolta, dansi, badminton
og motocross,“ sagði Tristan Sölvi.
„Mér finnst hinar íþróttirnar að-
Ung danspör frá Akranesi
keppa í Blackpool
Rósa Kristín Hafsteinsdóttir Tristan Sölvi Jóhannsson, Demi van den Berg, Almar
Kári Ásgeirsson, héldu nýverið til Blackpool til að keppa í samkvæmisdönsum.
Dansararnir á góðri stundu.
Hárgreiðsla er fastur liður í lokaundirbúningi fyrir danskeppnir.