Skessuhorn - 30.03.2016, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2016 15
Erfitt aðgengi
að fjármagni
Þær stöllur nýttu einnig tímann
til að heimsækja konur sem sótt
höfðu fyrra námskeiðið sem fram
fór árinu áður til að sjá hvernig
þeim hefði reitt af. Ein kvennanna
hafði t.a.m. opnað smáverslun eða
duka með ýmsum nauðsynjavörum
og þrjár höfðu komið á fót sauma-
stofu. Þá hefur hópur kvenna, sem
lauk viðskiptaáætlun á fyrra nám-
skeiðinu, farið á námskeið í sápu-
gerð og framleiða þær nú sápu
og selja til heimamanna. Að sögn
Geirlaugar reynist helsta hindrun-
in vera erfitt aðgengi að fjármagni
til að standa undir stofnkostn-
aði. „Bankaviðskipti eru með öðr-
um hætti en við þekkjum á Íslandi
en fólk þarf til að mynda að greiða
þóknun fyrir að leggja peninga inn
á bankareikning.“ Fjölmargt ann-
að var framandi fyrir Íslendingana
eins og við mátti búast. Átakan-
legast þótti Geirlaugu að kynn-
ast heimilisaðstæðum fólks á þessu
svæði. „Húsakosturinn er afar bág-
borinn, margir búa ennþá í strákof-
um eða hálfbyggðum múrsteins-
húsum og rafmagn er almennt ekki
komið inn á heimilin. Konurnar
elda á hlóðum á gólfinu og bogra
við öll heimilisstörf. Fólkið er
mjög þrifalegt og alls staðar hangir
þvottur á snúrum. Myrkrið í Afríku
er svartara en við þekkjum því úti-
ljós þekkjast varla. Þrátt fyrir erf-
iðar aðstæður er fólkið einstaklega
brosmilt og lífsglatt. Lífið hjá flest-
um gengur út á að eiga í sig og á og
mest um vert er að koma upp ma-
ísplöntunum því maísinn er und-
irstaðan í fæðu fólksins, svokallað
Ugale sem líkist kartöflustöppu.
Fólk er sérstaklega vingjarnlegt og
algengasta orðið sem við heyrðum
var Karibu og Asante sem þýða vel-
komin og takk“ segir Geirlaug.
Gríðarlega þakklátar
Styrktaraðilar að námskeiðinu, auk
Háskólans á Bifröst og Tanzanice
Farm, voru 85 aðilar sem gáfu fé í
hópsöfnun á Karolina fund. Þann-
ig safnaðist um ein milljón króna til
fararinnar sem nægði til að dekka
allan kostnað en konunum stóð
námskeiðið til boða þeim að kostn-
aðarlausu. Öðruvísi myndu þær
ekki geta tekið þátt. Mikilvægt er að
finna framtíðarlausn á fjármögnun-
um verkefnisins svo það geti hald-
ið áfram í framtíðinni. Í lok nám-
skeiðsins var útskriftarhátíð þar
sem konurnar fengu afhent viður-
kenningarskjöl. „Konurnar voru
gríðarlega þakklátar fyrir tækifærið
sem þeim gafst að taka þátt í þessu
námi og margar höfðu orð á því að
þær hefðu fundið kjarkinn til að
stíga skrefið og hefja eigin rekst-
ur. Við vorum leystar út með gjöf-
um sem konurnar höfðu bæði safn-
að fyrir og gert sjálfar, lofsöngvum
og blessunarorðum. Það eru mikil
forréttindi að fá að taka þátt í svona
gefandi verkefni“ segir Geirlaug að
lokum.
grþ/ Ljósm. Geirlaug Jóhannsdóttir.
Túlkurinn Restituda var ómetanlegur hlekkur í kennslunni.
Frídagurinn var nýttur í að fara í safaríferð í Ngorongoro þar sem villt dýr eru í
þúsunda tali. Dýrin í Ngorongoro létu ekki safaríbílana setja sig úr jafnvægi.
Horft ofan í Ngorongoro þar sem villt dýr lifa í sátt og samlyndi í þúsundatali.
Aðalfundur
Aðalfundur Símenntunar-
miðstöðvarinnar á
Vesturlandi verður haldinn,
miðvikudaginn 6. apríl, kl. 10:15
á Hótel Hamri í Borgarnesi.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Önnur mál
Allir velkomnir!
Aðalfundarboð
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
TÆKNIMESSA 2016
KYNNING Á IÐN� OG TÆKNISTÖRFUM
Á VESTURLANDI OG IÐNNÁMI Í FVA
Haldin í FVA
þann 14. apríl
fyrir alla
nemendur í 8.,
9. og 10. bekk á
Vesturlandi
Sjá nánar í fylgiblaði
Skessuhorns í næstu viku
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
SÓKNARÁÆTLUN
VESTURLANDS