Skessuhorn - 30.03.2016, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2016 17
ÚTBOÐÚTBOÐ
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
81x120 mm
TIL SÖLU
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
15721 - Þjónusta Iðnmeistara
Rammasamningur
Ríkiskaup, fyrir hönd áskrifenda að rammasamningaker ríkisins á
hverjum tíma, standa fyrir þessu útboði á þjónustu iðn meistara á fast-
eignum ríkisins á landsvísu. Heimilt er að bjóða í einstaka iðngreinar
og okka í útboðinu.
Um er að ræða eftirtaldar iðngreinar:
• Blikksmíði
• Dúklagningu
• Málun
• Málmiðnaði (aðra en blikksmíði)
• Múrverki
• Pípulagningu
• Raðnaði
• Skrúðgarðyrkju
• Trésmiði
Nánari upplýsingar er að nna í útboðsgögnum, sem eru aðgengileg
á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is. Tilboð verða opnuð 12. apríl 2016
kl. 14.00 hjá Ríkiskaupum,
Verkefnið Fjármálavit er náms-
efni um fjármál ætlað efstu bekkj-
um grunnskóla. Er verkefnið er á
vegum Samtaka fjármálafyrirtækja
og gengur út á að heimsækja 10.
bekki á öllu landinu með námsefni
Fjármálavits. Starfsmenn fjármála-
fyrirtækja heimsækja skóla í sinni
heimabyggð. Undanfarið hafa að-
standendur Fjármálavits og starfs-
menn fjármálafyrirtækja á Vestur-
landi verið á ferð um landshlutann
þar sem þeir hafa sótt 10. bekkinga
heim.
Kristín Lúðvíksdóttir er verkefn-
isstjóri Fjármálavits. „Í heimsókn-
um okkar í vetur reynum við að fá
nemendur til að hugsa um hvernig
gott er að skipuleggja fjármálin og
setja sér markmið, en það er aldeilis
ekki of snemmt að byrja á því þegar
maður er 16 ára og á allt lífið fram-
undan. Það eru ekki síst kennarar
og foreldrar sem eru þakklátir fyr-
ir að krakkarnir fái fræðslu um pen-
inga. Margir segja að þeim hefði nú
sjálfum ekki veitt af slíkri kennslu
á unglingsárunum. Foreldrarn-
ir eru mjög jákvæðir,“ segir Krist-
ín. „Fjármálavit er þróunarverkefni
með þann tilgang að kennarar og
aðrir áhugasamir geti haft auðveld-
an aðgang að fjölbreyttu námsefni
um fjármál á vefsíðu Fjármálavits.
Liður í þeirri þróun er gott sam-
starf við kennaranema í Háskóla
Íslands um þróun á kennsluefni,“
segir hún. Heimsóknirnar á Vest-
urlandi eru hluti af röð heimsókna í
grunnskóla á öllu landinu og frá því
Fjármálavit var fyrst kynnt til sög-
unnar fyrir ári hafa nálægt fjögur
þúsund nemendur í 10. bekk feng-
ið Fjármálavit í heimsókn og leyst
verkefni, en unnið er með hverjum
bekk fyrir sig.
Krakkarnir mjög
áhugasamir
Bernhard Bernhardsson, svæðis-
stjóri í Arion banka í Borgarnesi,
er einn af tæplega hundrað starfs-
mönnum fjármálafyrirtækja sem
í vetur heimsækja grunnskóla um
land allt með námsefni Fjármála-
vits og eru grunnskólar á Vestur-
landi þar á meðal. Þetta eru grunn-
skólarnir í Snæfellsbæ, Grundar-
firði, Stykkishólmi og Borgarfirði,
Heiðaskóli í Hvalfjarðarsveit og
senn líður að heimsókn í Grunn-
skólann í Borgarnesi. Í heimsókn-
unum hitta Bernhard og fleiri
starfsmenn fjármálafyrirtækja á
Vesturlandi nemendur í 10. bekk,
fræða þá um fjármál og vinna með
þeim verkefni sem miða að því að
fá krakkana til að hugsa um mark-
miðasetningu og hvað sparnaður
skiptir miklu máli til þess að láta
draumana rætast. „Krakkarnir eru
duglegir að spyrja spurninga og eru
almennt mjög áhugasamir. Það sem
kemur þeim mest á óvart er hvað
hver og einn kostar mikið þeg-
ar upp er staðið og hvað það litla
sem þeir eyða í hverri viku verður
mikið þegar það er skoðað til lengri
tíma,“ segir Bernhard.
Það sem honum þykir standa
upp úr eftir svona fræðslu er að sjá
hvað krakkarnir verða meðvitað-
ir um hvað hlutirnir kosta og séu
fljótir að átta sig á því hversu mik-
ilvægt það er að byrja snemma að
spara fyrir því sem mann langar í.
„Þeim finnst þetta mjög skemmti-
legt,“ segir Bernhard.
- tilkynning
Vestlensk ungmenni
fræðast um fjármál
Nemendur Heiðarskóla leysa verkefni um fjármál.
Hlýtt á fræðslu Bernhards Þórs í Grunnskólanum í Stykkishólmi.
Reiknað í Grunnskóla Borgarfjarðar.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
Tilkynning
Föstudaginn 1. apríl næstkomandi verður bæjarskrifstofa
Akraneskaupstaðar lokuð frá kl. 12:00 á hádegi
vegna starfsdags starfsmanna.