Skessuhorn - 30.03.2016, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 201618
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir sem
vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfang-
ið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánu-
dögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að
fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að
tölvupósti sendi lausnir á Kirkjubraut 56, 300 Akra-
nesi (athugið að póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi
á föstudegi). Dregið verður úr réttum innsendum
lausnum og fær vinningshafinn bókargjöf frá Skessu-
horni.
Alls bárust 62 lausnir við krossgátunni í blaðinu í
síðustu viku. Lausnarorðið var: „Dægradvöl.“ Vinn-
ingshafi er: Hrafnkell Alexandersson, Skólastíg 14a,
340 Stykkishólmi.
Fengur
Köggull
Ár-
dagur
Leiði
Hærast
Neyttu
Fjöldi
Afar
Öskrar
Þátt-
taka
Orka
Skal
Hug-
rakkur
Korn
Laut
Urgar
Skip-
herra
Ónæði
Gestur
4
Egg-
vopn
Ræða
6
Ótti
Skíma
Ofsi
Ófrýni-
legur
Einatt
Planta
Skjáta
Gráta
Eins
um U
Brodd-
ar
Muldra
10
Pár
Rösk
Ótti
Fruma
2
Slökkv-
ari
Umsvif
Leyfist
Fé
Ögn
Hóf
Könnun
Öslaði
Elfur
Bumba
Samhlj.
Harður
Op
Romsa
Málm-
ur
Sósa
3 Korn
Geð
Iða
8 Reiði-
hljóð
Læti
Þófar
Reifi
51
Mjóa
Þungi
Rolla
Ógilt
Neyta
Söngl
Kyn
Frá
Gripur
Reim
Áhald
Dvelur
Ofnar
Stía
Gáta
Mynni
Laðaði
Brún
Pers-
fornafn
Skessu
Vökvi
Ólmir
Kvað
Hófdýr
Jötunn
Flýtir
5 7 Hætta
Sverta
Æstar
Sérhlj.
Spil
Flan
Málm-
þráður
Duft
Planta
Hæðir
Fingur
1
Ikt
Sjá
eftir
Hníf-
inn
9
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
Gylfi Sigurðsson
fékk verðlaun fyr-
ir bestu hugmynd
að heiti á málmiðn-
greinaátak í Fjöl-
brautaskóla Vest-
urlands. Sérstök
nefnd, skipuð helstu
h a g s m u n a a ð i l -
um, valdi hugmynd
Gylfa ,,Málmur er
málið“ úr hópi fjöl-
margra hugmynda.
Gylfi hefur verið í
námi í einstökum
áföngum í FVA frá
því 2011 en frá þeim tíma voru um
30 ár síðan hann var síðast í FVA.
Hann stundaði nám í vélvirkjun með
vinnu og útskrifaðist sem vélvirki frá
FVA á vorönn 2014. Gylfi er enn að
því núna er hann í meistaranámi í
sinni grein í FVA. Aðspurður segir
Gylfi að nám í málmiðngreinum sé
mjög fjölbreytt og gefi mikla mögu-
leika til frekara náms. Sóknarfæri séu
í þessum iðnaði fyrir skólann og nær-
samfélagið en brýnt sé að endurnýja
tækjabúnað og aðstöðu málmiðn-
greinadeildar FVA. Gylfa er óskað til
hamingju með verðlaunin.
-tilkynning
Málmur er málið
Pennagrein
Hún hentar bara ekki okkur! Við
þurfum sveigjanleika í fjárfesting-
um og búsetu. Það hentar okkur
ekki að sæta takmörkunum sem
þessi „besti gjaldmiðill“ í heimi
leiðir afsér. Við þurfum sveigj-
anleika, svigrúm til athafna, lága
vext, lága skatta og áhættuleysi
fyrir gengisfellingu krónunnar,
verðbólgu og lélegri stjórn efn-
hagsmála.
Þetta er viðhorf
allra helstu sjáv-
arútvegsfyrirtækja
landsins sem og forsætisráðherra,
hans spúsu sem og helstu fylgi-
ssveina hans.
Er ekki eitthvað við þetta að at-
huga?
Borgarnesi, 28. mars 2016,
Guðsteinn Einarsson
Krónan er góð,
besta mynt í heimi!
Fermingarbarns á
pálmasunnudegi
Dag ur í lífi...
Nafn: Brynhildur Björk Magn-
úsdóttir.
Fjölskylduhagir/búseta: Bý
með foreldrum mínum og
hundinum Perlu á Akranesi.
Starfsheiti/fyrirtæki: Nemandi
í Grundaskóla.
Áhugamál: Söngur og píanó.
Fermingardagurinn: Pálma-
sunnudagur 20. mars 2016.
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Ég vaknaði klukkan 7
og fékk mér að borða.
Hvað borðaðirðu í morgun-
mat? Kornflex með mjólk.
Fyrstu verk eftir morgun-
mat: Ég fór í hárgreiðslu klukk-
an 8:30 og var þar í klukkutíma.
Svo fór ég heim og fór í ferm-
ingarkjólinn og gerði mig klára
fyrir fermingarathöfnina.
Hvað varstu að gera klukkan
10? Þá fór ég í Akraneskirkju
og fór í kirtilinn í Hvíta húsinu,
sem er við Safnaðarheimilið
Vinaminni. Athöfnin í kirkjunni
byrjaði svo klukkan 10:30.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Þá var ég í myndatöku hjá Guð-
mundi Bjarka Halldórssyni í
húsnæði Vitans við Suðurgötu.
Ég fór þangað með fjölskyld-
unni; mömmu, pabba, systkin-
um mínum og mágkonu.
Hvað varstu að gera klukkan
14: Þá var ég í veislunni með
ættingjum og vinum. Veislan
var haldin á Galito á Akranesi
og byrjaði klukkan 13. Hún var
svo búin um klukkan 16.
Hvað gerðirðu eftir veisluna?
Þá fór ég heim og opnaði ferm-
ingargjafirnar sem ég fékk. Það
tók dálítið langan tíma að opna
öll umslögin!
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Það var kjúklingasúpa
í kvöldmat, afgangur frá því í
veislunni. Galito sá um veiting-
arnar í veislunni þannig að þeir
elduðu súpuna.
Hvernig var kvöldið? Það var
gaman. Kvöldið var rólegt, ég
var að tala við ömmu og afa frá
Svalbarðseyri því þau gistu hjá
okkur.
Hvenær fórstu að sofa? Ég fór
að sofa um klukkan 12, ég var
mjög þreytt eftir daginn.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Bauð góða nótt.
Hvað stendur uppúr eftir
daginn? Allt fólkið sem kom og
hvað allt gekk vel. Dagurinn var
fljótur að líða og þetta var mjög
skemmtilegt.
Eitthvað að lokum? Mig lang-
ar bara að þakka fyrir mig. Þetta
var góður dagur.
U-17 ára landsliðið í knattspyrnu
karla er nú farið til Frakklands þar
sem liðið mun keppa í milliriðli á
Evrópumótinu. Ísland mætir Aust-
urríki á þriðjudag, Frakklandi á
fimmtudag og Grikklandi á sunnu-
dag. Með liðinu leika Vestlending-
arnir Helgi Guðjónsson úr Fram
og Arnór Sigurðsson úr ÍA.
Keppa í
Frakklandi
U-17 ára landslið Íslands. Vestlendingarnir eru í fremri röð, Arnór lengst til vinstri
og Helgi lengst til hægri.