Skessuhorn - 30.03.2016, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 201620
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
Vélsmiðja BA
Nýsmíði • Vélaviðgerðir
Breytingar • Viðhald
Vélsmiðja BA • Sólbakka 25 • Borgarnesi • bhk@vortex.is
Björn Kristjánsson 894 – 3336
Arnar Björnsson 849 – 9341
Pennagrein
Þegar kemur að umræðunni varð-
andi eignir eiginkonu forsætisráð-
herra langar mig að halda því fram
að reiði fólks snúist að mestu leiti
að þeirri ábyrgð sem forsætisráð-
herra beri að axla gagnvart kjós-
endum sínum og í raun lands-
mönnum öllum, þar sem hann tók
þá ákvörðun að halda þessum eign-
um leyndum. Svo má vera að fólk
vilji taka þá umræðu hvað varð-
ar ákvörðun eiginkonu hans að
geyma fjármuni í erlendum bönk-
um frekar en Íslenskum, en hana
ætlum við ekki að taka hér.
Sigmundur Davíð tók þá ákvörð-
un að fara í stjórnmál, bjóða sig
fram til alþingiskosninga sem end-
aði með að hann tekur stöðu for-
sætisráðherra. Honum hefði átt
að vera ljóst að ráðherrastöðunni
fylgir rík ábyrgð gagnvart lands-
mönnum öllum hvort sem lög
kveða svo á um eður ei. En svo
virðist vera að sá sem gegnir stöðu
ráðherra þurfi ekki að bera, né axla
ábyrgð gangvart einu né neinu.
Samkvæmt lögum og reglum virð-
ist ráðherra geta gert það sem hon-
um sýnist og engin þörf á að spyrja
kóng né prest.
Í Fréttablaðinu þann 24. mars
síðastliðin bendir Sigmundur
Davíð á að honum hafi ekki bor-
ið nein bein skylda, né sé til þess
ætlast að menn skrái eignir maka í
þessari hagsmunaskráningu. Þessi
ágæti drengur segist byggja sitt
„siðferði á lögum og reglum“. Þá
segir hann jafnframt að „siðferðis-
leg skylda hjá mér sem stjórnmála-
manni snýst um skyldur mínar við
samfélagið og að hámarka árangur
minn fyrir það“. Þá er hér vert að
spyrja hvort að háttvirtur forsætis-
ráðherra telji sig ekki hafa brugð-
ist sinni siðferðislegri skyldu sem
stjórnmálamaður við samfélagið
að halda þessum eignum leyndum?
Bar honum ekki siðferðisleg skylda
til að tilkynna kjósendum þessa
hagsmuni áður en þeir gengu inn
í kjörklefana? Ef svo er að hon-
um hafi borið siðferðisleg skylda
til þess er þá ekki lágmarkskrafa að
hann axli ábyrgð á sínum skyldum
og víki sem forsætisráðherra? Eru
ekki líkur á því að eitthvað af at-
kvæðum sem fóru til Framsóknar-
flokksins í síðustu alþingiskosning-
um hefðu farið annað, ef kjósend-
ur hefðu vitað af því að eiginkona
eins frambjóð-
enda flokksins
ætti fjármuni í
erlendu skatta-
skjóli?
Líkt og við
vitum öll þá
ríkir ráðherra-
ræði hér á Ís-
landi, þeir virð-
ast hafa heim-
ild í lögum og
reglum til að
haga sér eins
og þeim sýn-
ist, þeir virð-
ast ekki þurfa
að svara fyr-
ir eitt né neitt.
Svo vilja margir
halda því fram
að þessir að-
ilar sem sitja í
stöðu ráðherra
séu heilagir, enda fara þeir með
framkvæmdarvaldið og löggjafar-
valdið. Því er kannski ekki skrýtið
að þeir komist upp með að hugsa
ég geri það sem ég vil og spyr eng-
an að því.
Samkvæmt Lögfræðiorðabók
með skýringum sem útgefin var
af Bókaútgáfunni Codex og Laga-
stofnun Háskóla Íslands undir rit-
stjórn Dr. Páls Sigurðssonar pró-
fessor, segir að með hagsmuna-
tengslum sé átt við að fjárhags-
legir eða persónulegir hagsmun-
ir tveggja eða fleiri manna teng-
ist t.d. af fjölskylduástæðum eða
vegna sameignar eða annars kon-
ar sameiginlegra fjármunaréttinda.
[...].(bls. 180). Þó þarna sé vísað til
náinna tengsla milli aðila stjórn-
sýslumáls og manns sem fer með
stjórnvald í því máli, sem og milli
dómara og málsaðila, hljótum við
að geta gengið að því vísu að gerðar
séu álíka kröfur til þingmanna, en
svo er því miður ekki.
Ég verð að viðurkenna að ég er
orðin afar þreyttur á að þurfa að
sitja og horfa upp á þá staðreynd
að ráðherrar geti hagað sér nánast
eins og þeim sýnist, þeir þurfi nán-
ast ekki að lúta neinum lögum eða
reglum. Svona háttsemi er ekki að
koma fram í fyrsta skipti og mun
án efa ekki verða það síðasta, verði
ekki farið í verulegar breytingar á
stjórnskipun Íslands. Þessir flokk-
ar hafa fengið mörg tækifæri til að
sýna fyrir hverja þeir eru mættir á
þing til að vinna og í flestum ef ekki
öllum tilfellum hafa þeir ekki ver-
ið að vinna fyrir fólkið, heldur nán-
ast eingöngu fyrir atvinnurekendur
og fjárfesta, hvort sem eru innlend-
ir eða erlendir.
Hvort sem til eru skráðar lög og
reglur eða ekki þá er ekki flókið að
sjá að ég ber skyldu til að haga mín-
um málum á ákveðin hátt gegni ég
stöðu ráðherra eða þingmanns.
Háttvirtur forsætisráðherra Sig-
mundur Davíð ákvað að halda
leyndu frá kjósendum þeim fjár-
hagslegum hagsmunum sem eig-
inkona hans á í svokölluðu erlendu
skattaskjóli, sem má ætla að séu
einnig hans eigin hagsmunir t.d. út
frá lögum um hjúskap. Því má ætla
að staða Framsóknarflokksins eft-
ir síðustu alþingiskosningar hefði
ekki orðið eins sterk og raun bar
vitni hefðu þessar upplýsingar legið
fyrir. Hvað sem lög og reglur segja
þá ætti háttvirtum forsætisráðherra
að vera það ljóst að líklegt væri
að hann færi ekki með stöðu for-
sætisráðherra ef þessar upplýsing-
ar hefðu legið fyrir við kjör hans.
Þar sem hann virðist vísa frekar oft
til siðferðis ætti það að vera honum
fyllilega ljóst að hann hefur engan
annan kost en að segja af sér.
Hafsteinn Sverrisson,
viðskiptalögfræðingur
Ábyrgð ráðherra?
Á páskum leggja margir Íslending-
ar land undir fót venju samkvæmt
og fara í frí, heimsækja ættingja eða
sækja viðburði fjarri heimahög-
unum. Fylgifiskur þess er jafnan
mikil umferð dagana fyrir og eft-
ir páskahátíðina. Nýliðnir páskar
voru þar engin undantekning.
Leiðinlegt veður gerði á laugar-
dagskvöld á Norðvesturlandi. Skaf-
renningur og blint var á Arnkötlu-
dal (Þröskuldum) í Reykhólasveit
og Fróðárheiði var ófær. Páskahret
þetta virtist ekki hafa mikil áhrif á
umferð um páskana, enda lands-
menn helst á faraldsfæti dagana
beggja vegna hátíðarinnar.
Meðfylgjandi mynd tók Þor-
leifur Geirsson og sýnir hún þétta
bílaumferð yfir Borgarfjarðarbrú í
norðurátt á skírdag.
kgk
Mikil umferð um páskana
Föstudaginn 18. mars síðastliðinn
var haldinn deildarfundur Auð-
humlu í Dalakoti Búðardal. Við það
tækifæri var ábúendum í Miklagarði
í Saurbæ í Dölum, Margréti Guð-
bjartsdóttur og Ásmundi Jóhann-
essyni, veitt viðurkenning fyrir ára-
tuga framleiðslu á úrvalsmjólk. Þau
Margrét og Ásmundur í Miklagarði
hættu mjólkurframleiðlsu um síð-
ustu áramót.
-tilkynning
Úrvalsmjólk frá Miklagarði
Ari Edwald forstjóri MS, Egill Sigurðsson stjórnarformaður, Margrét Guðbjarts-
dóttir bóndi, Garðar Eiríksson framkvæmdarstjóri Auðhumlu, Lúðvík Hermanns-
son mjólkurbússtjóri Búðardal, og Ásmundur Jóhannesson bóndi.