Skessuhorn - 30.03.2016, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2016 21
Konunglegt og glæsilegt antik
sófasett
Þetta fallega sófasett er til sölu.
Það er danskt með mjög fallegu
vínrauðu pluss áklæði sem sér ekki
á. Settið saman stendur af sófa og
2 stólum með örmum og 2 minni
stólum án arma. Verð 220 þús.
Uppl. í S: 696-2334 eða ispostur@
yahoo.com.
Ert þú að leita að fólki eins og
okkur?
Við mæðgur (37 og 4 ára) viljum
flýja borgina og leitum því að hús-
næði í Stykkishólmi. Erum með
eindæmum þrifalegar, hófstilltar,
reglusamar, heimakærar, gáfaðar,
uppátækjasamar og glaðlegar.
Eigum helling af dóti sem myndi
varla fylla meira en þrjú herbergi,
ekki væri verra ef herbergi væru
fjögur svo amma geti heimsótt.
drifapalin@gmail.com.
Óska eftir leiguíbúð á Akranesi
24 ára einstaklingur úti á landi
óskar eftir íbúð til leigu á Akranesi
í a.m.k 1 ár, hugsanlega lengur, til í
að skoða allt. Reyklaus, engin dýr.
johann91@gmail.com.
Íbúð í Borgarnesi til leigu
107 fermetrar íbúð á jarðhæð á
Kveldúlfsgötu 18 er til leigu frá 1.
maí eða 1. sept. Þrjú svefnherbergi,
geymsla í kjallara, nýtt eldhús.
Leiga 140 þúsund. gkarlbjarnason@
gmail.com
Ungt par leitar að leiguhúsnæði
á Akranesi
Leitum að litlu leiguhúsnæði
á Akranesi fyrir næsta vetur
(ágúst - maí), erum reyklaus. S:
661-5849/659-0278.
Húsnæði óskast til leigu
Fjölskylda óskar eftir 4ja til 5 her-
bergja húsnæði til leigu í Borgar-
nesi eða nágrenni. Erum skilvís,
reglusöm og bráðskemmtileg.
Meðmæli geta fylgt sé þess óskað.
irisbaldvins@gmail.com
Húsnæði óskast í Stykkishólmi
5 manna fjölskylda óskar eftir hús-
næði til leigu í Stykkishólmi ekki
seinna en frá 1.júlí n.k.. Þarf helst
að vera 4+ svefnherbergi , skoða
einnig húsnæði sem inniheldur 3
svefnherbergjum. Guðrún Svana, s:
861-8066.
Par óskar eftir húsnæði í
Stykkishólmi
Við erum par á aldrinum 24-25
ára að leita að húsnæði til lang-
tímaleigu í Stykkishólmi. Við erum
reyklaus, reglusöm og erum ekki
með nein gæludýr. Okkur vantar
húsnæði sem fyrst. Aron og Karen,
s. 849-4210 og 845-8529.
Stykkishólmur -
miðvikudagur 30. mars
Snæfell og Valur leika kl. 19:15
í úrslitakeppni kvenna í körfu-
knattleik í Stykkishólmi.
Grundarfjörður -
miðvikudagur 30. mars
Sólstöðukaffi í Suður - Bár
frá kl. 19 - 21. Stefnumót við
ferðaþjónustubónda og gesti
hans. Sólin sest milli kl. 19:30
og 20:30. Svæðisgarðurinn
kynnir samvinnuverkefni. Gef-
um samveru. Kaffi, vöfflur og
andlegt fóður. Allir velkomnir,
aðgangur ókeypis.
Stykkishólmur -
fimmtudagur 31. mars
Bæjarstjórnarfundur í Ráðhús-
loftinu kl. 17.
Borgarbyggð -
fimmtudagur 31. mars
Blessað barnalán kl. 20:30.
Ungmennafélagið Skallagrím-
ur sýnir gamanleikinn Blessað
barnalán eftir Kjartan Ragnars-
son. Sýnt er í félagsheimilinu
Lyngbrekku. Miðapantanir í
síma 846-2293.
Borgarbyggð -
fimmtudagur 31. mars
Félagsvist í safnaðarheimilinu
Félagsbæ, Borgarnesi kl. 20.
Fyrsta kvöldið í þriggja kvölda
keppni, sem dreifist á fjögur
kvöld. Góð verðlaun, veitingar í
hléi. Allir velkomnir.
Borgarbyggð -
fimmtudagur 31. mars
Prjóna-bóka-kaffi í Bókhlöðu
Snorrastofu kl. 20. Nú er komið
að sjötta kvöldinu á þessu
ári. Kvöldstund við hann-
yrðir, spjall og kaffisopa í bók-
hlöðunni. Allir velkomnir og
munið að bókasafnið er opið
til útlána þessi kvöld! Fullt af
nýjum bókum! Hlökkum til að
sjá ykkur.
Borgarbyggð - 1. apríl
Skallagrímur og Valur mætast
í úrslitakeppni 1. deildar karla
í körfuknattleik í Borgarnesi.
Leikurinn hefst kl. 19:15.
Akranes - 1. apríl
ÍA mætir Fjölni í úrslitakeppni
1. deildar karla í körfuknattleik.
Leikið verður í íþróttahúsinu
við Vesturgötu á Akranesi kl.
19:15.
Borgarbyggð -
föstudagur 1. apríl
Óþarfa offarsi, AUKASÝNING
í Logalandi kl. 20. Umf. Reyk-
dæla sýnir átta hurða farsa
eftir Paul Slade Smith. Leik-
stjóri Ármann Guðmundsson.
Illskiljanlegur leigumorðingi,
góðgjarn borgarstjóri, frekar
tregar en ákaflega viljugar
löggur, kynsveltur endurskoð-
andi, dauðhræddur yfirmaður
öryggismála, gæðaleg borgar-
stjórafrú. Hvernig fer þetta
saman? Það er ekkert víst að
neitt klikki! Miðapantanir í
síma 435-1182/691-1182. Allra
síðasta sýning!
Borgarbyggð -
sunnudagur 3. apríl
Egils sögur á Landnámssetrinu
kl. 16. Hinn ástsæli söngvari
og lagasmiður Egill Ólafsson
hefur tekið saman úrval sagna
frá eftirminnilegum atvikum
úr sínu viðburðaríka lífi og sett
saman í tveggja tíma sýningu.
Með frásögninni fléttar Egill
lög við eigin undirleik. Sjálfur
segist Egill ætla að segja okkur
sögur af samtíð, fortíð og
framtíð og ferðast í tímahulstri
eigin tónlistar. Nánari upplýs-
ingar og miðapantanir í síma
437-1600.
Dalabyggð -
laugardagur 2. apríl
„Gróðurfar á Vestfjörðum og í
Dölum“ á Laugum í Sælingsdal
kl. 15. Hafdís Sturlaugsdóttir
mun flytja erindi um gróður-
far á Vestfjörðum og í Dölum
á Byggðasafni Dalamanna á
Laugum í Sælingsdal. Hafdís
er bóndi í Húsavík á Ströndum
og landnýtingarfræðingur hjá
Náttúrustofu Vestfjarða. Sögu-
stundin hefst kl. 15, en safnið
er opið kl. 14-18. Aðgangseyrir
er 500 kr. fyrir fullorðna og kaffi
á könnunni. Frítt er fyrir börn
yngri en 18 ára.
Nýfæddir Vestlendingar
Á döfinni
Markaðstorg Vesturlands
HÚSBÚNAÐIR / HEIMILISTÆKI
LEIGUMARKAÐUR
Markaðstorg
Vesturlands
Skráðu SMáauglýSinguna
á www.SkeSSuhorn.iS
fyrir klukkan 12.00 á
þriðjudöguM
PISTILL
Eftir að hafa verið hjúp-
aður lambakjöti og súkk-
ulaði eins og gulur páska-
ungi er ég upprisinn líkt og
Kristur, nema ég hræddi
engar konur í leiðinni og
venjulegt líf tekið við aftur.
Dymbilvikan, helgasta vika
ársins, virtist fara ágætlega
fram að mínu mati þó ef-
laust séu einhverjir ósam-
mála þessari staðhæfingu.
Skemmtilegast fannst mér
að formaður Vantrúar héf
páskavikuna með því að
skrifa Indriðalegasta bréf til
þjóðkirkjunnar og krafðist
ógildingar fermingar sinn-
ar, um þetta varð gerð frétt
á eyjunni og athugasemda-
kerfið tók skemmtilegan
snúning þar sem bréfritar-
inn lagði gildru fyrir hálf-
lesara með því að rífast við
sjálfan sig. Hvað er hálfles-
ari eiginlega? Hálflesari er
einstaklingur sem les bara
fyrirsagnir og fer svo að
rífast í athugasemdakerf-
inu, skýtur fyrst og spyr
svo. Nú hvað annað gerð-
ist, fullt af bronsgylltum
hálfguðum kepptu í vöðva-
keppni og hlutu mikið lof fyrir,
Lóan mætti og Sigmundur vin-
ur Kára DeCode birti eins konar
spurt og svarað færslu á bloggsíð-
unni sinni að morgni Páskadags.
En hvað um það, mig lang-
ar að tala um skegg því Mottum-
ars er liðinn undir lok. Síðastliðnar
tvær vikur hef ég leyft gjöf minni
að vaxa óheft og hlíft kinnbein-
inu við Wilkinson´s Sword rakvél-
arblaðinu við ómælda gleði betri
helmingsins. Mögulega er ég illa
haldinn skeggþoku því skynja ekk-
ert annað en gleði yfir þessu fram-
taki mínu, ég ákvað að sýna húð-
inni þolinmæði og er í miðri upp-
skeru. Óður minn til gleðinnar er
skegglína sem ég vissi ekki að ég
ætti til og hugsa ég um það líkt og
sjáaldur augna minna. Ég fjárfesti
meira segja í einhverjum ítölskum
skeggaáburði sem á að draga úr
vaxtaverkjum og útbrotum. Skegg
er nefnilega eiginlega það
eina sem karlmenn geta
beitt á sjálfa sig til að tóna
andlitið, til eru ógrynni
af vörum fyrir konur til
að tóna grímuna en karl-
menn hafa eiginlega bara
tvo hluti, skegg og tattú. Ef
þú ert ekki stríðsherra eða
Mike Tyson þá held ég að
óheft andlitshár séu ágætis
leið til að skreyta sig í stað
andlitstattús.
Upp hefur risið hálfgerð
hreyfing í kringum skegg-
vöxt karla í hinum vestræna
heimi. Hvar sem ég leita á
netinu koma pistlar skrifað-
ir af karlmönnum um aðra
karlmenn og dásamað yfir
því hversu fallegir menn
með skegg séu. Skeggþokan
liggur yfir öllu og umlyk-
ur kjálkabein karlmann, ég
er ekki undanskilin henni
og hef eytt mörgum mínút-
unum fyrir framan spegil-
inn í að dást að sjálfum mér.
Það hefur nefnilega orðið
sú breyting að samfélagið
er hætt að líta á menn með
skegg sem óhirta húskarla,
í staðinn er litið á þá sem
einskonar nútímútgáfu af Narc-
issus, grísku goðsagnarinnar sem
drukknaði í vatnsbrunninum þeg-
ar hann gleymdi sér í spegilmynd
sinni, því hún var svo falleg. Ég
hugsa að næsta skref í skeggvegferð
minni sé að endurvirkja Instagram
reikninginn minn, safna í hársnúð,
drekka sjaldgæft kaffi úr verklegum
leirbollum í vaff hálsmálsbolnum
mínum og safna hjörtum.
Axel Freyr Eiríksson
Gjöf sem gleður
18. mars. Stúlka. Þyngd 3.605 gr.
Lengd 51 sm. Foreldrar: Hildur
Gunnarsdóttir og Samúel Ágúst
Samúelsson, Akranesi. Ljósmóðir:
Valgerður Ólafsdóttir.
21. mars. Stúlka. Þyngd 3.360 gr.
Lengd 51 sm. Foreldrar: Kolbrún
Ósk Pálsdóttir og Guðjón Hrannar
Björnsson, Hellissandi. Ljósmóðir:
Valgerður Ólafsdóttir / Ólafía S.
Einarsdóttir
23. mars. Drengur. Þyngd 3.235
gr. Lengd 52 sm. Foreldrar: Vordís
Svala Jónsdóttir og Sigurður
Jakob Guðjónsson, Egilsstöðum.
Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir.
18. mars. Stúlka. Þyngd 3.024 gr.
Lengd 47 sm. Foreldrar: Erla Dís
Torfadóttir og Theódór Dagur
Ólafsson, Akranesi. Ljósmóðir:
Lóa Kristinsdóttir / Ólafía S.
Einarsdóttir.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is