Skessuhorn - 08.06.2016, Page 3
17. júní hátíðarhöld í
Borgarbyggð 2016
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Borgarnes
Kl. 10:00 Sautjánda júní hlaupið
Hlaup fyrir fólk á öllum aldri á Skallagrímsvelli og í nágrenni hans.
Nokkrar vegalengdir í boði.
Kl. 10:00 – 13:00 Sund
Sundlaugin opin, frítt í sund.
Kl. 11:00 Akstur fornbíla og bifhjóla
Fornbílaklúbburinn og bifhjólaklúbburinn Raftarnir keyra um
bæinn og stilla bílum sínum og bifhjólum upp.
Kl. 13:00 Hátíðarstund í Borgarneskirkju
Séra Flóki Kristinsson messar.
Kirkjukórinn syngur undir stjórn Steinunnar
Árnadóttur organista.
Kl. 13:00 Andlitsmálning í Óðali
Starfsfólk Sumarfjörs málar andlit og hitar upp fyrir skrúðgöngu.
Kl. 14:00 Skrúðganga
Gengið er frá Borgarneskirkju í Skallagrímsgarð.
Fánaborg á vegum Skátafélags Borgarness.
Trommusláttur á vegum Tónlistarskóla Borgarfjarðar.
Kl. 14:20 Hátíðardagskrá í Skallagrímsgarði
Kynnar hátíðarinnar eru Birta Sif Gunnlaugsdóttir og Snæþór
Bjarki Jónsson.
Hátíðarræða sveitarstjóra, Gunnlaugs A. Júlíussonar.
Ávarp fjallkonunnar.
Eva Margrét Eiríksdóttir flytur lög við undirleik Birnu Kristínar
Ásbjörnsdóttur.
Signý María Völundardóttir flytur lag.
Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Borgarfjarðar.
Skemmtiatriði frá Sumarfjöri.
Á hátíðarsvæðinu í Skallagrímsgarði 14:00 – 16:00
Hoppukastali – stultur og leikföng.
Andlitsmálning.
Candyfloss.
Kaffisala í Skallagrímsgarði 14:00 – 17:00
Kaffisala kvenfélagsins.
Kl. 13:00 – 17:00 Safnahús
Í Safnahúsi eru fjórar sýningar og
aðgangur er ókeypis þennan dag í boði
sveitarfélagsins.
• Börn í 100 ár – grunnsýning, hönnun Snorra
Freys Hilmarssonar.
• Ævintýri fuglanna – grunnsýning, hönnun
Snorra Freys Hilmarssonar.
• Refir og menn – ljósmyndir Sigurjóns
Einarssonar af refaveiðimönnum við vetrarveiði.
• Pourquoi pas – minningarsýning um merkan
viðburð við Mýrar árið 1936.
Íbúar Borgarbyggðar eru hvattir til að mæta í
þjóðbúningi og draga fána að húni
Hvanneyri
UMF Íslendingur stendur fyrir hátíðarhöldum
á Hvanneyri. Lagt verður af stað frá Sverrisvelli
í skrúðgöngu að skjólbeltunum kl. 11:00. Grill á
staðnum og hver grillar fyrir sig og sína. Leikir,
skemmtun, gleði og gaman.
Reykholt
Ungmennafélag Reykdæla stendur fyrir
hátíðarhöldum. Riðið verður til hátíðarmessu í
Reykholti sem hefst kl. 11:00. Farið verður frá Gróf kl.
10:00 og frá Hofsstöðum kl. 10:15. Hangikjötsveisla
og hátíðardagskrá í Logalandi kl. 13:00. Hátíðarræða,
fjallkonan, leikir og karamelluflugvél. Viðurkenningar
til barna er stunda íþróttir og krýning íþróttamanns
UMFR.
Lundarreykjadalur
Ungmennafélagið Dagrenning sér um hátíðardagskrá
sem hefst kl. 14:00 með bátakeppni við ármót
Grímsár og Tunguár. Kaffistund í Brautartungu, leikir
og víðavangshlaup. Kvöldgrill, spil o.fl. skemmtilegt.
Hver og einn leggur eitthvað til á kökuhlaðborðið og
grillið.