Skessuhorn - 29.06.2016, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 20162
Íslendingar gengu að kjörborð-
inu laugardaginn 25. júní og kusu
sér nýjan forseta. Þegar síðustu at-
kvæði höfðu verið talin á níunda
tímanum á sunnudagsmorni kom
í ljós að Guðni Th Jóhannesson
sagnfræðingur hlaut flest atkvæði
þeirra níu frambjóðenda sem í
kjöri voru. Fékk hann alls 71.356
atkvæði, eða 39,1% fylgi. Kjör-
sókn á landinu var venju frem-
ur góð í þessum forsetakosning-
um. 75,7% nýttu atkvæðisréttinn,
eða 185.390 manns. Í öðru sæti
varð Halla Tómasdóttir en hún
hlaut 27,9% atkvæða. Andri Snær
Magnason hlaut 14,3%, Davíð
Oddsson 13,7% og Sturla Jónsson
3,5%. Hinir fjórir frambjóðend-
urnir hlutu innan við eitt prósent
atkvæða hver.
Síðustu tölur í forsetakosning-
unum bárust úr Norðvesturkjör-
dæmi á níunda tímanum. Þar voru
21.424 á kjörskrá en 16.798 kusu.
Kjörsókn var því 78,4%. Í Norð-
vesturkjördæmi urðu úrslit þau að
Andri Snær Magnason hlaut 7,2%
atkvæða, Ástþór Magnússon 0,5%,
Davíð Oddsson 14,1%, Elísabet
Jökulsdóttir 0,7%, Guðni Th Jó-
hannesson 42,1%, Guðrún Mar-
grét Pálsdóttir 0,3%, Halla Tóm-
asdóttir 32%, Hildur Þórðardóttir
0,2% og Sturla Jónsson 3,5%.
Úrslit þessara kosninga og kjör
Guðna Th Jóhannessonar verð-
ur að teljast afgerandi. Í framboði
voru níu. Hlaut Guðni upp undir
sama atkvæðavægi og Ólafur Ragn-
ar Grímsson forseti Íslands fékk
fyrst þegar hann var kjörinn forseti
árið 1996 og mun meira fylgi en
Vigdís Finnbogadóttir hlaut þegar
hún var kjörin árið 1980. Engu að
síður höfðu skoðanakannanir sýnt
fylgi Guðna Jóhannessonar meira
á framboðstímanum, eða allt upp
í tæp 70%. Miðað við þróun skoð-
anakannana var það Halla Tómas-
dóttir sem vann langmest fylgi á
síðustu dögunum fyrir kosningar.
Guðni Th Jóhannesson sjötti
forseti Íslands er 48 ára sagnfræð-
ingur og fimm barna faðir. Hann er
giftur Elizu Reid og eiga þau sam-
an fjögur börn. Fyrir átti Guðni
eldri dóttur. Guðni tekur við emb-
ætti forseta 1. ágúst næstkomandi
og mun hann, eiginkonan og börn
þeirra flytja búferlum af Seltjarn-
arnesi og á Bessastaði á Álftanesi.
Skessuhorn óskar nýkjörnum
forseta og fjölskyldu hans til ham-
ingju með kjörið og velfarnaðar í
starfi þjóðhöfðingja Íslands.
mm
Ævintýri Íslands halda áfram í Frakklandi og
er karlaliðið komið í 8 – liða úrslit mótsins
þar sem það mun keppa við heimamenn.
Leikurinn fer fram á sunnudaginn klukkan
19:00. Íslendingar munu sameinast víða til
þess að horfa saman á leikinn.
Á morgun verður norðaustan 5-10 m/sek
og skúrir. Hiti 10 – 15 stig. Á föstudag; norð-
an 8 – 13 m/sek, skýjað með köflum og hiti
8 – 12 stig. Á laugardag verður norðan 5 –
13 m/sek. Skýjað með köflum og yfirleitt
þurrt. Hiti 6 – 12 stig. Á sunnudag og mánu-
dag má búast við norðan 5 – 10 m/sek og
líkur á síðdegisskúrum. Hiti 7 – 17 stig. Á
þriðjudag er spáð hægviðri, skýjað verður
með köflum og hiti 7 – 17 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns
„Hvernig væri að baða sig upp úr dögginni
á Jónsmessunótt?“ Flestum Vestlending-
um þótti þetta vera góð hugmynd því 60%
kusu „Mjög góð hugmynd“, öðrum þótti
þetta ekki eins góð hugmynd því 23% kusu
að þetta væri „Afleit hugmynd“ og 17% „Dá-
lítið hallærislegt.“
Ætlar þú að fylgjast með
leik Íslands og Frakklands á EM?
Tveir stórir viðburðir fóru fram á Vestur-
landi um helgina. Annars vegar Brákarhátíð-
in í Borgarnesi og hins vegar Aldursflokka-
meistaramót Íslands í sundi á Akranesi. Vest-
lendingar vikunnar eru þeir fjölmörgu ein-
staklingar sem standa að viðburðum sem
þessum og gera það með sóma.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Á annað þúsund
hraðakstursbrot
VESTURLAND: Óvenju
mörg hraðakstursbrot komu
upp hjá Lögreglunni á Vest-
urlandi í liðinni viku. Frá því
á mánudag í síðustu viku voru
1.310 hraðakstursbrot skráð á
landinu, sem er liðlega helm-
ingi meira en venjulegt er.
Fimm lítilsháttar umferðaró-
höpp urðu í umdæminu í vik-
unni og var einn þeirra sem
lenti í óhappi á Snæfellsnesi
grunaður um ölvun við akst-
ur. Frá því er greint í annarri
frétt hér í blaðinu. Engin slys
urðu á fólki. Á Akranesi var
eitt innbrot í vikunni þegar
brotist var inn í eitt af húsun-
um á Byggðasafninu í Görð-
um. Engu var stolið og ekki
voru neinar teljandi skemmd-
ir unnar á húsinu, fyrir utan
brotna rúðu.
-grþ
Fénu ekið
á afrétt
BORGARFJ: Bændur á Vest-
urlandi hafa síðustu daga
kappkostað að aka fé á afrétti.
Gróður er hvarvetna venju
fremur snemma í sprettu og
landið orðið þurrt yfirferð-
ar og því ekki seinna vænna
að koma fénu á úthagann og
leyfa því að njóta. Meðfylgj-
andi mynd bók Björn Hún-
bogi Sveinsson í Húsafells-
skógi um liðna helgi þar sem
bændur úr Hálsasveit og Reyk-
holtsdal aka með fé sitt áleiðis
á Arnarvatnsheiði. Þar verður
féð fram að göngum eftir tæpa
þrjá mánuði.
-mm
Hvetja orku-
fyrirtækin til að
setja upp
hleðslustöðvar
STYKKISHÓLMUR: Bæj-
arstjórn Stykkishólmsbæjar
hefur óskað eftir því að sett
verði upp rafhleðslustöð fyr-
ir bifreiðar í Stykkishólmi.
Ályktun þess efnis var sam-
þykkt á fundi bæjarstjórnar
23. júní síðastliðinn. Í fram-
haldi af fundinum sendi Sturla
Böðvarsson bæjarstjóri erindi
til Rarik og Orkuveitu Reykja-
víkur þar sem orkusölufyrir-
tækin eru hvött til þess að setja
upp hleðslustöðvar í Stykk-
ishólmi. „Mjög vaxandi um-
ferð um Stykkishólm kallar á
aukna þjónustu á öllum svið-
um. Flest bendir til þess að
rafknúnum ökutækjum muni
fjölga og hafa stjórnvöld hvatt
til þess með ýmsum hætti.
Því er mikilvægt að þau fyr-
irtæki sem sinna raforkusölu í
landinu tryggi sem víðast að-
gang að rafhleðslustöðvum.
Um leið og hvatt er til þess að
komið verði upp rafhleðslu-
stöð í Stykkishólmi lýsa bæjar-
yfirvöld vilja sínum til þess að
eiga samstarf um verkefnið og
leggja til aðstöðu á heppileg-
um stað í bænum,“ segir í bréfi
bæjarstjórans.
- grþ
Guðni Th Jóhannesson verður
næsti forseti Íslands
Guðni Th Jóhannesson verður sjötti forseti lýðveldisins frá stofnun þess 1944. Hér
fagnar hann á svölum heimilis síns á Seltjarnarnesi morguninn eftir kosningarnar.
Ljósm. gó.
Niðurstöður úr Norðvesturkjördæmi. Þar hlaut Guðni Th 42,1% fylgi og Halla
Tómasdóttir 32%. Grafík: ruv.is
Kosið var í Brekkubæjarskóla á Akranesi þar sem bæjarfélaginu var skipt niður í
þrjár kjördeildir. Ljósm. mm.
Háskólinn á Bifröst skrifaði nýver-
ið undir samning við Íbúðalánasjóð
um fjárhagslega endurskipulagn-
ingu á íbúðum á Bifröst. Í fram-
haldinu hafa verið auglýstar til sölu
tvær eignir á Bifröst. Um er að
ræða rétt tæplega hundrað íbúðir,
annars vegar í húsinu Sjónarhól en
hins vegar í Hamragörðum 1. Sjón-
arhóll er fjölbýlishús sem stendur
vestan við skólahúsin en Hamra-
borg 1 hýsir rekstur Hótels Bifrast-
ar. Í auglýsingunni kemur fram að
íbúðirnar verði seldar í einu lagi
til sama aðila, auk möguleika á að
kaupa rekstrarfélag Hótels Bifrast-
ar. Þar er einnig tekið fram að um
sé að ræða frábært tækifæri í ferða-
þjónustu enda sé Bifrastarsvæðið
vel staðsett og umkringt friðsælli
og fallegri náttúru í vaxandi ferða-
þjónustuhéraði. grþ
Fjöldi íbúða á Bifröst settar á sölu
Karlakórinn Fugl-
set frá Molde í Nor-
egi átti viðkomu í
Akranesvita síðastlið-
inn sunnudag. Sungu
kórfélagar nokkur lög
í vitanum og voru afar
ánægðir með hljóm-
burðinn. Talsvert
margir fylgdust með,
en með í för voru
makar kórfélaga og
fjöldi ferðamanna var
staddur við vitann á
sama tíma og fékk því
óvænta tónleika.
mm/ Ljósm. Sella
Andrésdóttir.
Norskur karlakór tók lagið í Akranesvita