Skessuhorn - 29.06.2016, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2016 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Síðastliðið fimmtudagskvöld mætt-
ust lið ÍA og KR í Vesturbænum í
Reykjavík. Bæði lið hafa farið illa af
stað í deildinni og leikurinn því mik-
ilvægur fyrir þau bæði. Fyrir leikinn
var KR í áttunda sæti með níu stig
en Skagamenn voru í næst-neðsta
með fjögur stig. Skagamenn unnu
leikinn á dramatískan hátt á loka-
sekúndunni með glæsilegu marki
Garðars Gunnlaugssonar og komu
þeir sér upp um eitt sæti. Þróttur
sem nú eru í næst-neðsta sæti á leik
til góða.
Það voru Skagamenn sem voru
frískari aðilinn í upphafi leiks. Skaga-
menn fengu aukaspyrnu á góðum
stað á 13. mínútu; Garðar Gunn-
laugsson tók spyrnuna en skot hans
fór yfir markið. Besta færi fyrri hálf-
leiks átti Óskar Örn Hauksson á 21.
mínútu leiksins. Þessi fimi og snöggi
leikmaður fékk boltann við miðlín-
una. Þar hafði hann nægt svæði til
að athafna sig og kom sér í gott skot-
færi við vítateiginn, skot hans var
virkilega gott en fór framhjá mark-
inu. Leiðinlegt atvik átti sér stað á
26. mínútu þegar Hallur Flosason
var kominn á fleygiferð með bolt-
ann og stefndi í átt að markteigi KR.
Hann stakk boltanum framhjá Præst
í vörninni. Þegar Hallur reyndi að
komast framhjá Præst skullu þeir
harkalega saman svo að báðir lágu
eftir. Hallur stóð fljótlega á fætur en
Præst var borinn útaf og spilaði ekki
meira í leiknum. Lítið var um færi
það sem eftir lifði hálfleiks. Þegar
Guðmundur Ársæll, dómari leiks-
ins, flautaði til leikhlés var staðan 0
– 0.
Það virtist vera sem allt ann-
að KR-lið hafi mætt til leiks í síð-
ari hálfleik. Þeir mættu dýrvitlausir
til leiks. Óskar Örn fékk fínt skot-
færi strax á 46. mínútu sem endaði
í varnarmanni en boltinn barst aftur
á Óskar sem átti fínt skot sem Árni
varði í horn.
Fyrsta mark leiksins kom á 53.
mínútu. Daninn Kennie Chopart
fékk boltann við miðlínuna vinstra
megin. Hann tók á sprettinn inn
völlinn og í átt að vítateignum þar
sem hann kom sér í skotfæri, lét vaða
á markið og boltinn endaði í netinu
neðarlega hægra megin. Glæsilegt
mark hjá Chopart, 1 - 0.
Skagamenn voru ekki mjög hættu-
legir eftir þetta og ekki margt sem
benti til þess að þeir myndu skora
mark. Það gerðist þó á 83. mín-
útu þegar Skagamenn fengu víti.
Garðar Gunnlaugsson hafði gert
vel á vinstri kantinum og náð fyr-
irgjöf inn í sem Ásgeir Marteinsson
tók á móti og skaut að marki. Bolt-
inn fór af stuttu færi í hönd Gunn-
ars Þórs Gunnarssonar og víti rétti-
lega dæmt. Úr vítinu skoraði Garð-
ar Gunnlaugsson 1 - 1.
Á lokasekúndu leiksins upplifðu
stuðningsmenn ÍA augnablik sem
mun líklega seint renna þeim úr
minni. Árni Snær Ólafsson negldi
boltanum fram völlinn í átt að
Tryggva Hrafni Haraldssyni. Stef-
án Logi, markmaður KR, kom út úr
markinu og skallaði boltann í burtu.
Boltinn barst á Garðar Gunnlaugs-
son sem negldi honum upp í hornið
á markinu með viðstöðulausu skoti.
Lokatölur 1 – 2 fyrir ÍA og von-
brigði KR halda því áfram. Í kjölfar
úrslita þessa leiks og undanfarinna
leikja ákvað stjórn KR síðan að segja
Bjarna Guðjónssyni þjálfara upp
störfum sem þjálfara. Á sunnudag-
inn var Willum Þór Þórsson alþing-
ismaður og fyrrum þjálfari ráðinn til
KR og mun Arnar Gunnlaugsson
verða honum til aðtoðar við þjálf-
unina. bþb
Skagamenn unnu KR á lokasekúndu leiksins
Svipmynd frá upphafi leiks á KR vellinum. Ljósm. Halldór Jónsson.
Skagakonur hafa ekki náð að safna
mörgum stigum í Pepsi deild kvenna
það sem af er sumri og sitja á botni
deildarinnar með aðeins eitt stig. Á
laugardaginn mætti liðið ÍBV í Vest-
mannaeyjum en heimamenn þar hafa
einnig verið í vandræðum með stiga-
söfnun og voru fyrir leikinn með þrjú
stig. ÍBV byrjaði leikinn betur en gest-
irnir og sköpuðu sér nokkur hættuleg
færi sem þær náðu ekki að klára. Því
lengur sem leið á hálfleikinn því bet-
ur komust Skagakonur inn í leikinn
og náðu að skapa sér nokkur fín færi.
Það sást greinilega á leik beggja liða
að mikið var undir og hvorugt liðið
ætlaði að tapa; það var því mikil bar-
átta allan leikinn af hálfu leikmanna
beggja liða.
Á 42. mínútu rétt áður en flaut-
að var til leikhlés komust Eyjakon-
ur í 1-0. Þar var á ferðinni Natasha
Moraa Anasi sem skoraði en boltinn
átti viðkomu í varnarmanni Skaga-
manna áður en hann fór í markið. Í
síðari hálfleik hélt baráttan áfram og
bæði lið fengu fín færi. Skagakonur
hafa verið í miklum erfiðleikum að
skora mörk í sumar og var þessi leikur
engin undantekning þar á. Á 77. mín-
útu skoraði Lisa-Marie Woods fyr-
ir ÍBV og róðurinn því orðinn þung-
ur fyrir Skagakonur. Þær reyndu allt
hvað þær gátu að minnka muninn en
allt kom fyrir ekki og lauk leiknum 2
– 0 ÍBV í vil.
Skagakonur sitja því enn á botnin-
um með eitt stig og eiga leik gegn efsta
liði Stjörnunnar á morgun fimmtudag
klukkan 19:15 í Garðabæ. bþb
ÍA tapaði í Vestmannaeyjum
Frá leik ÍA fyrr í sumar. Ljósm. úr safni.
Úrvalsdeildarliðin Víkingur
Reykjavík og Víkingur Ólafsvík
mættust í Fossvoginum síðastliðið
föstudagskvöld í áttundu umferð
Pepsi deild karla í knattspyrnu.
Víkingur Ólafsvík hefur farið vel af
stað í deildinni og var fyrir leikinn
í fjórða sæti með 14 stig á meðan
Reykvíkingar hafa farið heldur ró-
legar af stað og voru fyrir leikinn í
níunda sæti með átta sig. Víkingur
Reykjavík sigraði leikinn engu að
síður nokkuð örugglega 2 – 0.
Það voru heimamenn sem fóru
betur af stað og voru mjög kraft-
miklir í upphafi leiks. Áhorfendur
þurftu ekki að bíða lengi eftir fyrsta
markinu. Eftir hornspyrnu Reyk-
víkinga var brotið á Arnþóri Inga
Kristinssyni og Ívar Orri, dóm-
ari leiksins, dæmdi vítaspyrnu við
litla hrifningu Ólsara. Vítaspyrn-
una tók Englendingurinn Gary
John Martin og skoraði af gríðar-
lega miklu öryggi. Aðeins tveim-
ur mínútum síðar skoraði Gary
Martin annað mark. Eftir prýði-
lega sókn Reykvíkinga barst bolt-
inn inn í vítateiginn og datt fyrir
fætur Garys sem hamraði honum
í markið. Staðan orðin 2 – 0 eftir
tólf mínútna leik. Eftir þetta róað-
ist leikurinn töluvert. Hrvoje To-
kic átti þó ákaflega skemmtileg til-
þrif á 28. mínútu þegar hann skaut
boltanum með hjólhestaspyrnu
að marki en Róbert Örn í mark-
inu náði að verja í horn. Ekki voru
fleiri mörk skoruð í fyrri hálfleik
og staðan því 2 – 0 þegar leikmenn
gengu til búningsklefa.
Þegar mínúta var liðinn af síðari
hálfleik vildu Víkingar frá Ólafs-
vík fá vítaspyrnu dæmda þegar
Igor Taskovic fyrirliði Reykvík-
inga virtist tækla Þórhall Kára inn
í vítateig en Ívar dæmdi ekkert að
þessu sinni. Gestirnir reyndu hvað
þeir gátu að jafna leikinn í síð-
ari hálfleik en lítið gekk að skapa
hættuleg færi. Víkingar frá Reykja-
vík unnu því sanngjarnan 2 -0 sig-
ur á nöfnum þeirra frá Ólafsvík.
Eftir leikinn er Víkingur Ólafsvík
í fimmta sæti með 14 stig en Vík-
ingur Reykjavík í áttunda sæti með
ellefu stig.
bþb
Víkingar mættust
í Fossvoginum
Svipmynd úr leik Víkingsliðanna. Ljósm. þa.
Leikjaröð liða í Domino‘s deild
karla og kvenna auk fyrstu deildar
karla er orðin ljós. Það er þó enn
langt í mót en fyrsti leikur Dom-
ino‘s deildar karla verður spilað-
ur 5. október en hjá konunum og
fyrstu deild karla hefst mótið degi
síðar. Nýliðarnir í Domino‘s deild
kvenna, Skallagrímur í Borgarnesi,
mæta meisturunum í Snæfelli og
fer leikurinn fram í Borgarnesi. Því
verður sannkallaður Vesturlands-
slagur í fyrstu umferð í deildinni.
Í Domino‘s deild karla mun Snæ-
fell mæta liði ÍR á útivelli í fyrsta
leik og nýliðar Skallagríms spila á
móti Haukum, einnig á útivelli.
Skagamenn leika í fyrstu deild á
komandi leiktíð og hefja leik gegn
FSu á útivelli. bþb
Vesturlandsslagur í fyrsta leik
Domino‘s deildar kvenna
Skallagrímur tekur á móti Snæfelli í
fyrsta leik á komandi leiktíð.
Viktor Marinó fram-
lengir við Snæfell
Viktor Marinó Alexandersson
skrifaði fyrir helgi undir nýjan
samning við Körfuknattleiks-
deild Snæfells. Viktor er bak-
vörður sem stóð sig vel á síðasta
tímabili með 5,2 stig að meðal-
tali í leik. Snæfell leikur í efstu
deild í körfubolta og mætir liði
ÍR í fyrsta leik 6. október. -bþb
Víkingur Ó. tapaði
fyrir HK/Víking
Laugardaginn síðasta var
toppslagur í fyrstu deild kvenna
A – riðli í fótbolta. HK/Vík-
ingur og Víkingur Ó. mættust
á Víkingsvelli en fyrir leikinn
voru bæði lið taplaus. Leikn-
um lauk með 3 – 0 sigri HK/
Víkings sem með sigrinum hélt
efsta sætinu og er liðið nú með
fimmtán stig eftir fimm leiki.
Víkingur Ó. er eftir leikinn í
þriðja sæti með tólf stig. Næsti
leikur Víkings fer fram á morg-
un á heimavelli gegn liði Skín-
anda. -bþb
Kári tapaði í
markaleik
Knattspyrnufélagið Kári á
Akranesi tók á móti liði Ein-
herja síðastliðinn laugardag.
Leikurinn var býsna fjörug-
ur og litu átta mörk dagsins
ljós. Leikurinn endaði með
sigri Einherja 3 – 5 en mörk
Kára skoruðu þeir Sindri Snæ-
fells Kristinsson, Helgi Jóns-
son og Páll Sindri Einarsson.
Með sigrinum lyftu Einherjar
sér upp í fjórða sæti með tólf
stig og fóru þar með upp fyr-
ir Kára sem eru í fimmta sæti
með níu stig en tekið skal fram
að Kári á leik til góða. Næsti
leikur Kára er í kvöld klukk-
an 20:00 gegn Þrótti Vogum á
Vogabæjarvelli. -bþb
Körfuknattleiksdeild Snæfells
samdi fyrir helgi við Andrée Mic-
helsson en hann skrifaði undir eins
árs samning við félagið. Andrée er
fæddur 1997 og uppalinn í Svíþjóð
en á íslenska móður. Hann er 188
cm á hæð og getur bæði leyst stöðu
leikstjórnanda og skotbakvarðar.
Hann hefur leikið með liði Malbas
í Malmö og varð meistari með U19
liði félagsins í fyrra. Á því tímabili var
hann með 15,1 stig, 3,5 fráköst og
6,8 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Andrée var einnig í leikmannahópi
meistaraflokks Malbas en kom lítið
við sögu með þeim. bþb
Snæfell semur
við ungan Svía