Skessuhorn


Skessuhorn - 29.06.2016, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 29.06.2016, Blaðsíða 11
ÍRSKIR DAGAR Á AKRANESI 29. júní - 3. júlí 2016 Freisting vikunnar Í tilefni Írskra daga er tilvalið að deila með lesendum Skessuhorns einfaldri uppskrift af vöfflum, sem auðvelt er að færa í írskan búning. Margir fá til sín góða gesti á bæj- arhátíðum og þá er ekki úr vegi að bjóða upp á góðar vöfflur í réttu lit- unum. Auðvitað má bjóða upp á vöfflurnar hvenær sem er og ekki er nauðsynlegt að lita þær með írsk- um fánalitum. Uppskriftin er með eindæmum fljótleg og einföld, það þarf ekki nema fjögur hráefni ásamt matarlit. Í uppskriftina er notaður einn pakki af Betty Crocker van- illukökumixi og uppskriftinni aftan á pakkanum fylgt. Vöfflurnar eru sér- lega flottar og skrautlegar og ekki spillir að þær eru einstaklega bragð- góðar. Írskar vöfflur 1 pakki Betty Crocker vanillukökumix 3 meðalstór egg 180 ml vatn 60 ml ISO4 olía Aðferð: Olíu, vatni og eggjum er blandað saman við vanillukökumixið. Hrært varlega saman í ca. 2-3 mínútur. Skiptið deiginu því næst í þrjá hluta. Setjið appelsínugulan matarlit í eina skálina og grænan í aðra. Slepp- ið því að lita síðasta hluta deigsins. Hitið vöfflujárnið og smyrjið. Setjið eina rönd af appelsínugulu deigi, því næst þetta ólitaða þar við hlið og að lokum græna deigið. Lokið vöfflu- járninu og leyfið vöfflunni að bakast. Berið fram með þeyttum rjóma, van- illuís og sultu. Einfaldar vöfflur í írskum búningi Vöfflurnar eru sérlega flottar og bragðgóðar. Ljósm. Hjördís Dögg Grímarsdóttir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.