Skessuhorn


Skessuhorn - 29.06.2016, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 29.06.2016, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 20164 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.700 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.340. Rafræn áskrift kostar 2.120 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 1.960 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Björn Þór Björnsson bjorn@skessuhorn.is Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Lísbet Sigurðardóttir lisbet@skessuhorn.is Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is Þórarinn Ingi Tómasson toti@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Áfram Ísland! Þjóðin fylgdist með öndina í hálsinum með því þegar íslenska karla- landsliðið í knattspyrnu sigraði það enska á mánudagskvöldið. Þarna sýndi liðið ótrúlegan karakter og getu langt umfram það sem eðlilegt getur talist af smáþjóð norður í höfum. Þeir ensku áttu engin svör við sterkri sókn og óhræddum strákum frá Íslandi sem sýndu sitt besta. Það skemmtilega við þennan leik var að margar milljónir manna voru einn- ig að fylgjast með enda telja margir í hinum fjarlæga heimi okkar hreint með ólíkindum að smáþjóð sem telur ekki fleiri íbúa en miðlungs þorp á Englandi geti það sem strákarnir okkar gátu. Vísbendingar eru þeg- ar um að markaðsleg áhrif þessa árangurs muni vega meira en gosið í Eyjafjallajökli vorið 2010. Strax í kjölfar leiksins á mánudagskvöldið fór ég létta yfirferð um er- lenda fréttavefi, svona til að framlengja gleðina. Skammt var þess að bíða að háðuglegum ummælum tók að rigna yfir vesalings Bretana, sem engan veginn voru búnir að jafna sig á niðurstöðum kosninganna á fimmtudaginn þar sem þeir sögðu bless við ESB. Einn ágætur Breti skrifaði meðal annars á Tvitter þetta kvöld: „Ég hef ekki skammast mín eins mikið fyrir að vera Breti síðan ...á föstudagsmorgun!“ Ég viður- kenni að ég íhuga að endurskoða árlega helgarferð til Bretlands í haust, treysti því alls ekki að vera jafn velkominn þar og áður. Skiptir þá engu hvort breska pundið verður í sögulegri lægð miðað við krónugreyið. En hvað veldur því að smáríki nái slíkum árangri á einu stærsta knatt- spyrnumóti sem haldið er? Bjarni Felixson fyrrverandi íþróttafrétta- maður og sérfræðingur í knattspyrnu kvaðst aðspurður í viðtali á RUV á mánudagskvöldið ekki vera í vafa. Efnislega sagði hann að ástæðan væri sú að Bretar væru fyrir löngu hættir að hlúa að barna- og ung- lingastarfi í knattspyrnuhreyfingunni og leggðu alla áherslu á að kaupa erlenda leikmenn. Það bitnaði á möguleika þeirra sem væru að alast upp heima fyrir. Hér á landi, sagði Bjarni, væri hins vegar lögð áhersla á vel menntaða knattspyrnuþjálfara og alúð lögð við barna- og unglinga- starf. Allir fengju að vera með á jafnfréttisgrunni og ættu þar af leiðandi sína möguleika til frama í greininni. Við skulum taka þessi orð Bjarna trúanleg og sýna í verki að hann hafi rétt fyrir sér. Ég trúi því að ein- mitt rétti félagslegi andinn strax í upphafi geti skipt sköpum í árangri liðs, félags eða lands, hvort sem það er í knattspyrnu, öðrum íþrótta- greinum, uppbyggingu atvinnugreina eða andlegu ástandi fólks. Hóp- ur fólks, sem líður vel, er líklegri til að ná árangri en sá hópur sem feng- ið hefur röng skilaboð. „Trúðu á þig, sýndu hvað í þér býr, og þú munt uppskera eftir því,“ var boðskapur gamla sparkspekingsins. Takk fyr- ir þetta Bjarni. Það hefur sýnt sig að góður árangur í hópíþróttum þjappar íslensku þjóðinni saman. Þess vegna gleðst ég eins og aðrir á slíkum stundum. Ég geri hins vegar raunhæfar kröfur til aukins árangurs íslensku strák- anna úti í París á sunnudaginn. Í mínum huga eru þeir þegar orðnir þjóðhetjur og hafa lagt meira af mörkum til jákvæðrar athygli á landi og þjóð en nokkur hefur gert áður. Sama hvort átt er við Björk, Sigur Rós, sterkustu menn heims eða Eyjafjallajökul. Áfram Ísland! Magnús Magnússon. Leiðari Vegfarendur í Borgarnesi ráku upp stór augu síðastliðinn laug- ardag þegar sextán húsbílum var lagt í Brákarey. Samkvæmt lög- reglusamþykkt sem er í gildi fyrir Borgarbyggð má ekki gista í tjöld- um, húsbílum, hjólhýsum eða tjald- vögnum á almannafæri utan sér- merktra svæða. Ekki eru sérmerkt stæði fyrir húsbíla í Borgarnesi en þeim má leggja á tjaldsvæði bæj- arins í Granastaðalandi. Talsverð umræða hefur myndast um málið á samfélagsmiðlum þar sem mynd- inni hefur verið deilt og eru Borg- nesingar margir hverjir ósáttir með þróun mála á meðan aðrir fagna fjölgun ferðamanna í bænum, þrátt fyrir að þeir greiði ekki fyrir gisti- plássið. grþ Húsbílum lagt ólöglega í Borgarnesi Fjölmörgum húsbílum var lagt ólöglega í Brákarey síðasta laugardag. Ljósm. Óli Valur Pétursson. Umferðarslys varð á þjóðveginum skammt frá Stykkishólmi síðastlið- inn föstudagsmorgun. Samkvæmt heimildum Lögreglunnar á Vestur- landi fór bíllinn fjölmargar veltur. Ökumaður var einn í bílnum. Hann reyndist lítið slasaður og þykir það ótrúlegt miðað við hversu bíllinn var illa farinn. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur. bþb Umferðarslys skammt frá Stykkishólmi Bílinn var illa farinn. Á mynd- inni sést einnig lögreglubíll sem er staðsettur þar sem bíllinn fór út af veginum. Ljósm. LVL. Í liðinni viku var Bláfáninn við Langasand á Akranesi dreginn að húni fjórða árið í röð. Bláfáninn er alþjóðlegt umhverfismerki og tákn um markvissa og skilgreinda um- hverfisstjórnun. Til að öðlast Bláf- ánann þarf baðströndin á Langa- sandi að uppfylla 32 skilyrði sem lúta að vatnsgæðum, umhverfis- stjórnun, upplýsingagjöf og ör- yggi. Aðeins tvær aðrar íslenskar baðstrendur hafa fengið Bláfánann; Bláá Lónið og Nauthólsvík. Sér- staða Langasands er þó sú að um náttúrulega strönd er að ræða, en svo er ekki á hinum tveimur Bláf- ánaströndunum. grþ /Ljósm. mm Bláfáninn kominn á loft við Langasand Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavík- ur hélt aðra umferð Íslandsmóts- ins í rallý síðastliðinn laugardag. Ekið var um Tröllatunguheiði og Steinadalsheiði á Ströndum. Tíu áhafnir hófu keppni í góðu veðri en súld og þoka stríddu ökumönn- um á einstaka stað uppi á heið- unum. Ekið var um nýjar leiðir, grýtta vegi í bland við fínustu vik- urvegi. Voru keppendur ánægðir með áskoranirnar en átta áhafn- ir luku keppni. Baldur Hlöðvers- son og Hanna Rún Ragnarsdótt- ir urðu fyrir þvi að spindilkúla gaf sig á fyrsta sérleið og þeir félagar Gunnar Karl Jóhannesson og Ísak Sigfússon veltu bifreið sinni á næst síðustu sérleið. Systkinin Daníel og Ásta Sigurðarbörn óku bæði hratt og örugglega sem skil- aði þeim fyrsta sæti eftir keppn- isdaginn með öruggt forskot á næstu áhöfn. Félagarnir Guðni Freyr Ómars- son og Pálmi Jón Gíslason gerðu sér lítið fyrir og unnu nýliða- flokkinn en sá flokkur nær yfir lít- ið breyttar bifreiðar sem ekið er af einstaklingum á sínum fyrstu tveimur keppnisárum. Næsta umferð Íslandsmótsins verður í Skagafirði 22. – 23. júlí næstkomandi en sú keppni verð- ur í höndum Bílaklúbbs Skaga- fjarðar. gjg Óku um grýtta fjallvegi í þoku og súld

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.