Skessuhorn - 29.06.2016, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 201614
„Það er ástæðulaust að breyta
miklu þegar eitthvað hefur gengið
vel, eins og hefur til dæmis sann-
ast með landsliðið núna. Þjóðhá-
tíð hefur líka verið eins í fjölda-
mörg ár,“ segir Hallgrímur Ólafs-
son, verkefnastjóri Írskra daga, í
samtali við Skessuhorn þegar hann
er spurður um fyrirkomulag bæj-
arhátíðarinnar í ár. Hann segist því
litlu ætla að breyta og að föst at-
riði verði áfram á dagskrá á Írskum
dögum, líkt og verið hefur und-
anfarin ár. „Eins og föstudagstón-
leikar, fjölskylduhátíðin í Garða-
lundi á sunnudeginum, sandkas-
talakeppnin, dorgveiðikeppnin og
tívolíið á Merkurtúni. Við ætlum
að gera aðeins meira úr því en verið
hefur og þar geta ungir listamenn
komið fram. Bílskúrsböndin hafa
þarna tækifæri til að koma sér á
framfæri,“ segir Hallgrímur. Hann
segir þó einhverjar smávægilegar
breytingar væntanlegar, svo sem á
staðsetningu viðburða. „Í fyrra var
öll kvölddagskráin á hafnarsvæðinu
en í ár ætla ég að færa hana aftur
upp á Akratorg. Það er mun flott-
ari umgjörð og um að gera að nýta
torgið betur. Þarna komast líka
fleiri fyrir, það var svolítið troðið
við höfnina í fyrra. Það myndast
svo flott stemning á útitónleikum
og verslanir í bænum verða með
opið. Við veðjum bara á að veðr-
ið sé gott,“ segir hann. Engir nýir
stórviðburðir eru á dagskrá í ár,
að undanskildum Hálandaleikum
sem haldnir verða við Garðakaffi
á laugardaginn. „Við verðum líka
aftur með keppni um best skreytta
húsið, líkt og var í fyrra, og núna
verða verðlaunin ferð til Dublin.
Með þessu viljum við hvetja bæjar-
búa til að vera með og skreyta vel í
kringum sig.“
Fyrst og fremst
fjölskylduhátíð
Hallgrímur segir undirbúning há-
tíðarinnar hafa gengið gríðarlega
vel. Auðvitað hafi þetta verið svo-
lítið mikið en að þetta hafist allt
tímanlega. „Írskir dagar eru allt-
af haldnir, sama hvað. Svo er æð-
islega skemmtilegt að sjá hvað all-
ir eru alltaf til í að hjálpa og vera
með.“ Hátíðin hefst annað kvöld
með fjölskylduskemmtuninni Litlu
lopapeysunni, sem einnig var á
dagskrá í fyrra. „Þar kemur hæfi-
leikafólk af Akranesi fram ásamt
stórhljómsveit á stóra sviðinu niðri
á torgi. Við ætlum að stækka þann
viðburð, það verður stærra og
meira en í fyrra. Á föstudagskvöld-
ið verða tónleikar á torginu með
Sturlu Atlas, Valdimar Guðmunds-
syni, Stefaníu Svavarsdóttur og
rúsínan í pylsuendanum er Björg-
vin Halldórsson. Þarna er breitt
tónlistarval, eitthvað fyrir alla.“
Hátíðin þótti heppnast afar vel
á síðasta ári og fjöldi fólks lagði
leið sína í bæinn. Hallgrímur seg-
ir að þrátt fyrir mikinn fjölda fólks
hafi allt gengið vel fyrir sig. „Bær-
inn var alveg troðinn, sérstaklega
á laugardeginum. Tjaldsvæðið var
smekkfullt og ekkert mál kom upp
í fyrra. Lögreglan er gríðarlega
ánægð með framkvæmdina á þessu,
enda á þetta fyrst og fremst að vera
fjölskylduhátíð. Ég stíla dagskrána
inn á það að það er eitthvað fyrir
alla og allir viðburðirnir eru þann-
ig að það er hægt að taka krakkana
með.“ grþ
„Við veðjum bara á að veðrið verði gott“
-segir Hallgrímur Ólafsson verkefnastjóri Írskra daga á Akranesi
Hallgrímur ásamt þeim Stefáni Rafnssyni og Frey Karlssyni á Írskum dögum í fyrra.
Staðsetning viðburða á Írskum dögum:
1. Tónlistaskólinn á Akranesi
2. Húsasmiðjan
3. Akratorg
4. Merkurtún
5. Túnið fyrir aftan Sementsverksmiðjuna
(Suðurgötu)
6. Akranesviti
7. Garðavöllur (golfvöllurinn)
8. Bryggjan (hafnargolf og dorgveiðikeppni)
9. Hafnarsvæðið – Lopapeysan
10. Svæði Byggðasafns
11. Akranesvöllur (Brekkusöngur)
12. Skógrækt
Ve
stu
rg
at
a
Ve
stu
rg
at
a
Ve
stu
rg
at
a
Ki
rkj
ub
rau
t
He
iða
rg
er
ði
Ka
lm
an
sb
rau
t
Ka
lm
an
sv
ell
ir
Garðabraut
Æ
gis
br
au
t
ra
ut
He
iða
rb
ra
ut
He
iða
rb
ra
ut
Br
ek
ku
br
au
t
Br
ek
ku
br
au
t
V
ra
ut
Da
lbr
au
t
Þjó
ðb
rau
t
Sk
arð
sb
rau
t
Vallarbraut
Þjó
ðb
rau
t
Eyr
As
pa
rsk
óg
ar
AsparskógarSeljuskógar
Viðjuskógar
Hlynskógar
Birkiskógar
Akralundur
Eyrarlundur
Blómalundu
r
Baugalundu
r
Be
yk
isk
óg
arEikarskógar
Álmskógar
Bja
rka
rgr
un
d
Bja
rka
rgr
un
d
Fu
ru
gru
nd
Fu
ru
gru
nd
Gr
en
igr
un
d
Gr
en
igr
un
d
Re
yn
igr
un
d
Re
yn
igr
un
d
Víð
igr
un
d
Le
yn
isb
rau
t
Ás
ab
rau
t
Vík
ur
bra
ut
Sm
iðj
uv
ell
ir
Esjubraut
Innnesvegur
Garðagrund
Innnesvegur
Einigrund
Le
rk
igr
un
d
Smára
Sk K
K
EspigrundEspigrund
Es
ju
V
Stekkjar
Skólabra
ut
MerkigerðiAkurgerði
Víði-gerði
La
ug
ar
br
au
t
Fax
abr
aut
Bárugata
Háteigur
Só
ley
jar
ga
ta
MelteigurVita-teigur
Suð
urg
ata
Má
na
Su
nn
ub
rau
t
Ak
ur
sb
ra
ut
Faxabryggja
Br
eið
ar
ga
ta
ra
ut
raut
Skagabraut
Jaðarsbraut
Jaðarsbraut
raut
Sandabraut
LANGISANDUR
vellir
GOLFSKÁLI
BYGGÐASAFNIÐ
Í GÖRÐUMSUNDLAUG
UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ
AKRANESKIRKJA
SJÚKRAHÚS
LÖGREGLAN
SÓLMUNDARHÖFÐI
LEYNIR
KRÓKALÓN
M
ERKU
RTÚ
N
KALMANSVÍK
GARÐALUNDUR
Þjó
ðve
gur
N
br
au
t
TJALDSVÆÐI
Þú ert hér
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.9.
10.
12.
11.
ÍRSKIR DAGAR Á AKRANESI
29. júní - 3. júlí 2016