Skessuhorn - 29.06.2016, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 201618
Á Írskum dögum fyrir ári síðan var í
fyrsta skipti efnt til keppni um „írs-
kasta húsið“ á Akranesi. Var mark-
miðið með keppninni að fá bæj-
arbúa til að skreyta hús sín í írsk-
um fánalitum til að gera bæinn sem
glæsilegastan. Verðlaunin fyrir best
skreytta húsið féllu í hlut Petrúnar
Sveinsdóttur sem býr við Álmskóga
á Akranesi, ásamt eiginmanni sínum
Grímari Teitssyni. Þetta var þó ekki
í fyrsta skipti sem Petrún skreytti
heimili sitt fyrir bæjarhátíðina en
hún hefur í gegnum árin lagt mikinn
metnað í að skreyta vel í kringum sig
með írskum litum þegar Írskir dagar
renna upp. Blaðamaður Skessuhorns
heimsótti Petrúnu og ræddi við hana
um skreytingarstemninguna á Írsk-
um dögum.
Þurftu að hella
af diskunum
Að sögn Petrúnar byrjaði fjölskyld-
an að taka þátt í Írskum dögum
fyrir þrettán árum. Þá bjuggu þau
við Reynigrund og yngsta dóttir
hjónanna tók þátt í hátíðarhöldunum
í gegnum vinnuskólann. Krakkarn-
ir í vinnuskólanum fóru í búninga,
trommuðu niður allan bæ og end-
uðu á fótboltaleik. Petrún var með í
för og skemmti sér konunglega. Hún
segir fyrsta götugrillið svo hafa ver-
ið haldið árið eftir. „Það var svona
fyrsta orginal götugrillið. Við buðum
tíu manns með okkur og vorum með
sameiginlegt grill með þeim sem voru
í götunni. Grillum, stólum og borð-
um var bara safnað saman. Árið eft-
ir var ausandi rigning og við buðum
engum með okkur út af veðrinu. Það
var nú samt grillað en við þurftum
að hella vatninu af diskunum,“ segir
Petrún og hlær. „Við vorum reyndar
mjög fá en þetta gekk samt vel og var
alveg ferlega skemmtilegt. Við höf-
um líka verið í kuldagöllum á götug-
rillinu, með teppi og flutt okkur inn í
bílskúr ef það hefur verið mikil rign-
ing. Þannig að við erum ekki alltaf
heppin með veður. En fólk vill ekki
sleppa þessu, þetta er svo gaman.“
Klipptu niður poka
Petrún fór fljótlega að huga að
skreytingum fyrir götugrillin. „Okk-
ur fannst við þurfa að skreyta fremst
í götunni og settum upp borða sem
stelpurnar útbjuggu úr gömlu laki
sem var strengdur á milli ljósastaur-
anna. Svo var skrifað á hann,“ út-
skýrir Petrún. Hún varð strax frum-
leg í skreytingum og notaðist mikið
við heimatilbúið skraut. „Fyrst var
ekkert til í búðunum hérna þann-
ig að maður bjó til dæmis til slauf-
ur í írskum litum. Eitt af því fyrsta
sem við bjuggum til af skrauti voru
blóm úr plastglösum. Þá spreyjaði ég
plastglösin í réttu litunum, klippti í
þau og setti þau á grillpinna. Svo
stakk maður blómunum niður.“ Með
hverju árinu bættist við írska skrautið
hjá Petrúnu og Grímari. Þau fluttu
í Álmskógana 2008 og Petrún hefur
haldið sínu striki í skreytingunum.
Henni leist strax vel á stemninguna
í Álmskógunum og segir nágrann-
ana hafa verið mjög virka í skreyt-
ingamálum, þó það hafi dottið að-
eins niður undanfarin ár. „Við söfn-
uðum til dæmis innkaupapokum í
réttum litum úr Hagkaup, Olís og
Einarsbúð og klipptum þá í renninga
og settum á band. Núna er ég með
írskar gardínur í stofunni, eldhúsinu
og stóran fána utan á bílskúrshurð-
inni. Ég reyni að bæta við reglulega.
Í fyrra setti ég diska utan á húsið og
Grímar bjó til kall sem var látinn sitja
úti. Ég gæti aldrei skreytt svona án
Grímars. Hann er aðalmaðurinn í
þessu, enda færi ég ekki að klifra upp
í ljósastaura eða upp á húsþak,“ segir
Petrún og hlær.
Þarf að vera
eitthvað að sjá
Petrún er ekki einungis hrifin af
skreytingum fyrir Írska daga. Hún
segist líka vera hálf skreytingasjúk í
kringum jólin. „Ég er með jólaljós í
öllum gluggum en er farin að skreyta
minna inni. Helst myndi ég vilja
búa í Ameríku, þar sem alls staðar
eru jólaljós, líka á þökum húsanna.“
Varðandi Írsku dagana mælir hún
með að sem flestir taki þátt og skreyti
hjá sér. „Mér finnst þetta skipta máli.
Ef við erum á annað borð að halda
þessa hátíð, þá þarf að gera það al-
mennilega og taka þetta alla leið. Það
eru bæjarbúarnir sem skapa stemn-
inguna. Ef ég myndi til dæmis flytja,
þá myndi ég skoða hvernig stemn-
ingin er í kringum Írska daga. Það
skiptir mig máli,“ segir hún og bros-
ir. „Ég elska að keyra um bæinn og
skoða skreytingarnar. Það er verið
að hvetja fólk til að koma í bæinn, en
það þarf þá að vera gaman að skoða,
það þarf að vera eitthvað að sjá. Við
fórum nýverið á bæjarhátíð á Hvols-
velli og það var dásamlegt að sjá hvað
það var búið að skreyta mikið þar,“
bætir hún við.
Mest heimatilbúið
Petrún hefur aldrei misst af Írsk-
um dögum. Hún hefur alltaf tek-
ið þátt í hátíðinni, þrátt fyrir að hafa
einu sinni sleppt götugrillinu í sinni
götu og verið hjá dóttur sinni. „Ég
skreytti allt hjá mér samt,“ segir hún.
Aðspurð um hvort hún hafi einhver
ráð handa þeim sem ætli að skreyta
vel fyrir Írska daga segir hún að snið-
ugt sé að hafa skraut sem má rigna á.
„Það mætti alveg vera til meira skraut
í litunum í búðunum hér. Mest af
þessu sem við notum er heimatilbú-
ið. Það hefur verið hægt að fá skraut
í bókabúðinni og í Grundaval og það
er oft hægt að finna eitthvað snið-
ugt í Rúmfatalagernum, Megastore
og Partýbúðinni. Maður þarf bara
að vera vakandi allt árið og ef maður
sér eitthvað sniðugt, að grípa það.“
Meðal þess sem Petrún sjálf hef-
ur notað til skreytinga eru plastpok-
ar, plastglös og diskar, gerviblóm og
flugnaspaðar. „Svo spreyja ég ef þetta
er ekki í réttu litunum.“ Það fer svo
eftir veðri hvenær Petrún byrjar að
skreyta. „Á fimmtudeginum fer ég
að tína til dótið og setja upp gardín-
urnar. Ég skreyti úti á föstudeginum.
En ég hef gert það fyrr ef það er gott
veður.“
Kaka í írskum litum
Fyrir Petrúnu og fjölskyldu hennar
er götugrillið hápunktur Írsku dag-
anna. Þá koma vinir og ættingjar í
heimsókn á Skagann og hjónin Petr-
ún og Grímar bjóða til veislu. Petrún
er móðir Hjördísar Daggar Grímars-
dóttur sem rekur vefsíðuna mömm-
ur.is. Mæðgurnar eru löngu orðnar
þekktar fyrir fallega skreyttar kök-
ur og það ætti því engum að koma
á óvart að þær bjóða alltaf upp á vel
skreytta írska köku á Írskum dög-
um. „Við höfum meðal annars ver-
ið með marengs í réttu litunum, pav-
lovu með melónum í írsku litunum
og súkkulaðiköku með írskum litum.
Við höldum forpartý með alls konar
veitingum. Svo er farið á götugrillið
og svo aftur inn. Brottfluttum Skaga-
mönnum finnst þetta æðislegt. Það
er svo gaman að geta búið til tilefni
til að hittast og vera saman.“ Petrún
segir að oftast hafi úrbeinað læri og
kjúklingabringur verið á götugrills-
matseðlinum. „Við höfum oft verið
nokkrar fjölskyldur saman en í fyrra
ákváðum við að taka smá pásu og
njóta þess að vera aðeins færri og við
gerum það sama í ár,“ segir Petrún
Berglind Sveinsdóttir að endingu.
grþ
„Það eru bæjarbúarnir sem skapa stemninguna“
-segir Petrún Berglind Sveinsdóttir skreytingameistari síðasta árs á Írskum dögum
Petrún Berglind Sveinsdóttir komin í dress við hæfi.
Hús Petrúnar við Álmskóga var valið best skreytta húsið á Írskum dögum í fyrra.
Að launum hlaut hún bekk frá Húsasmiðjunni og í ár er hún að velta því fyrir sér
að nota bekkinn til skreytinga, jafnvel mála hann í írskum litum.
Það er vel hægt að skemmta sér á götugrilli þrátt
fyrir rigningu.
Grillunum raðað upp.Götugrill Skógarhverfisins var haldið á leik-
skólanum Akraseli fyrir tveimur árum. Hér er
Petrún að skera steikina.
Götugrill á Reynigrundinni.
Mæðgurnar í mömmur.is hafa bakað ýmsar sniðugar kökur í tilefni Írsku daganna.