Skessuhorn - 29.06.2016, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 201622
með æfingasvæði við hliðina á kirkj-
unni. Það var skilti við æfingasvæð-
ið sem stóð á, í lauslegri þýðingu:
„Það er betra að byggja upp börn en
að laga fullorðna.“ Í æskulýðsstörf-
um er þetta nokkuð góður boðskap-
ur. Við erum alltaf að reyna bæta og
þroska krakkana, þetta er í raun bara
mannræktarstarf.“
Lögð áhersla á
kristin gildi
Sumarbúðirnar í Vatnaskógi eru,
og hafa verið frá upphafi, kristi-
legar. „Undirstaðan í okkar starfi
er kristni. Við reynum að miðla til
barnanna að þau eru sköpuð og elsk-
uð af Guði og þannig séum við dýr-
mæt. Þessir krakkar eru á viðkvæm-
um aldri og sjálfsmyndin oft ekki
góð og því er það mikilvægt fyrir
þau að þekkja þennan boðskap. Við
reynum að kenna þeim út á hvað
kristin trú gengur og hver Jesú var.
Við byrjum alla morgna á biblíu-
lestri og á kvöldi eru kvöldvökur
þar sem bæði eru skemmtiatriði og
einnig er hugleiðing þar sem sagð-
ar eru Biblíusögur. Við erum einnig
með opnar bænastundir í kapellunni
sem er hérna og strákunum er frjálst
að mæta í hana. Kapellan hérna
er einstök og það tala mjög marg-
ir sem hafa verið í Vatnaskógi um
að kapellan standi upp úr í minn-
ingunni. Þegar ég var í framhalds-
skóla og það barst í tal að ég væri að
vinna í Vatnaskógi þá sagði kennar-
inn við mig að allir þeir sem hefðu
einhvern tímann verið í Vatnaskógi
þyrftu að koma þangað aftur og
eiga stund í kapellunni.“
Ný viðbygging
Vikuna sem Þráinn starfar sem for-
stöðumaður er hópur 12 – 14 ára
drengja í Vatnaskógi. Að þessu
sinni telur flokkurinn 80 stráka en
mest geta sumarbúðirnar tekið á
móti 95 strákum. „Það er mjög góð
aðsókn eins og undanfarin ár. Við
erum núna að byggja við Birkiskála
sem hefur verið aðalgistirýmið
okkar frá því um aldamótin. Elsta
húsið á staðnum, sem má segja að
sé andlit staðarins, var byggt árið
1943 og er komið til ára sinna. Við
viljum helst ekki að það verði gist
í því áfram en það verður notað í
kvöldvökur og slíkt. Eftir sumar-
ið áætlum við að vera komin með
90 rúm í Birkiskála og þá munu
allir gista í sama húsnæðinu sem
er mikið þægilegra og einfaldara.
Við munum halda sama hámarks-
fjölda og ekki stækka sumarbúðirn-
ar með viðbyggingunni. Við höfum
fengið fjárstyrk frá einstaklingum,
fyrirtækjum og Þjóðkirkjunni. Það
hafa einnig fjölmargir sjálfboðalið-
ar komið að þessari uppbyggingu.
Við gætum ekki haldið úti þess-
um sumarbúðum ef ekki væri fyrir
alla þá sjálfboðaliða sem gefa vinnu
sína í viðhald og uppbyggingu hér
á svæðinu.
Vatnaskógur á
góðri vegferð
Fækkun í Þjóðkirkjunni hefur verið
síðustu ár en Þráinn segir það ekki
hafa haft áhrif á aðsóknina í Vatna-
skóg. „Það hefur vissulega verið
kergja í garð Þjóðkirkjunnar en ég
tel það aðallega vera gegn yfirstjór-
ninni. Ég held að fólk sé almennt
ánægt með sína kirkju og sína sókn.
Við höfum ekki fundið fyrir breyt-
ingum hér í Vatnaskógi en það
starf sem hér fer fram held ég að
ríki almenn ánægja um. Þjóðkirkj-
an er á góðri vegferð þegar kemur
að félags- og æskulýðsstörfum fyrir
yngri kynslóðina, það má alltaf gera
betur en við erum samt að gera
mjög góða hluti. Það er ekki síst því
magnaða starfsfólki að þakka sem
vinnur hérna. Það ríkir alltaf góður
andi í starfsfólki og metnaðurinn er
gríðarlega mikill. Það er varla hægt
að vinna á betri stað,“ segir Þráinn
að endingu.
bþb
Árið 1923 ákváðu nokkrir drengir
að ganga frá Reykjavík og til Vatna-
skógar í Svínadal til þess að tjalda.
Þessir drengir voru á vegum KFUM
og KFUK. 93 árum síðar eru sum-
arbúðirnar enn í fullum gangi og
hundruð drengja sækja sumarbúð-
irnar ár hvert. Sumarbúðirnar eru
aðallega fyrir stráka og þeim skipt í
flokka eftir aldri. Yngstu krakkarn-
ir eru níu ára og elstu sautján en í
elsta flokknum, sem er 14 – 17 ára,
eru einnig stelpur. Einnig koma
fermingarbörn í Vatnaskóg á vet-
urna.
Í liðinni viku settist Þráinn Har-
aldsson prestur á Akranesi í stól
forstöðumanns í Vatnaskógi en þó
bara þá einu viku. „Ég kom aldrei
hingað sem barn, var aldrei í sum-
arbúðunum. Ég var reyndar alltaf á
leiðinni en það varð aldrei neitt úr
því. Ég byrja síðan að vinna hérna
þegar ég var 15 ára og var þá að-
stoðarmaður í flokki. Það er bara
sjálfboðavinna og margir sem byrja
á því að vera hér sem aðstoðarmenn
verða síðan foringjar í flokki þegar
þeir eru orðnir 18 ára og mega fara
að starfa hér. Ég var einn af þeim og
byrjaði að starfa hérna í framhalds-
skóla. Ég vann hérna lengi og ber
virkilega sterkar taugar til Vatna-
skógar. Það var frábært að vinna
hérna á sumrin,“ segir Þráinn.
Ákvað í Vatnaskógi að
verða prestur
„Ég ákvað það eftir að hafa unn-
ið hérna að ég vildi verða prestur.
Ég hafði alltaf verið trúaður og tek-
ið þátt í ýmsu kristilegu starfi en
hafði aldrei hugleitt það alvarlega
að starfa á þeim vettvangi fyrr en
eftir árin mín í Vatnaskógi. Í fyrsta
lagi sá ég það að ég vildi fá að miðla
boðskap Jesú Krists en einnig vildi
ég fá að starfa með fólki. Að vinna
á svona stað er mjög gefandi. Það
gefur mér mikið að sjá hvað strák-
arnir hafa gaman að því að vera
hérna og sjá þá njóta sín í sveitinni.
Það getur verið erfitt að fara að
heiman svona í heila viku og sum-
ir fá mikla heimþrá en það er mik-
ill sigur þegar strákarnir komast í
gegnum vikuna og um leið mjög
þroskandi. Hér er lagt upp með að
strákarnir njóti sín í leik og starfi,“
segir Þráinn.
Upplifunin skiptir
miklu máli
Í Vatnaskógi er mikið líf og fjör og
Þráinn segir að alltaf sé nóg að gera.
„Við leggjum mikla áherslu á úti-
veru og íþróttir. Aðstaðan sem við
höfum til íþróttaiðkunnar er mjög
góð og strákarnir geta t.d. stundað
kúluvarp, spjótkast og slíkt sem þeir
fá kannski ekki að leika sér í annars
staðar. Það skiptir miklu máli fyrir
strákana að fá að upplifa. Við erum
alltaf að kenna börnum eitthvað
en þau fá sjaldan að upplifa hlutina
sjálf en við viljum að krakkarnir fái
að upplifa hér. Þegar ég vann sem
prestur í Noregi var íþróttafélag
„Ég ákvað það eftir að hafa unnið
hérna að ég vildi verða prestur“
Þráinn Haraldsson prestur á Akranesi ræðir um starfið í Vatnaskógi
Þráinn Haraldsson fyrir framan kapelluna í Vatnaskógi.
Nýja viðbyggingin við Birkiskála.
Það er líf og fjör í Vatnaskógi. Hér eru ungir drengir að róa en það er mjög vinsælt
í sumarbúðunum.
Nafn: Hallgrímur Ólafsson.
Fjölskylduhagir/búseta: Í sam-
búð og á þrjú börn.
Starfsheiti/fyrirtæki: Leikari/
verkefnastjóri.
Áhugamál: Golf og stangveiði.
Mánudagurinn 27. júní 2016
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Vaknaði kl 07:00 og kom
drengjunum mínum í leikskóla
og til dagmömmu.
Hvað borðaðirðu í morgun-
mat? Kaffi.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Lagði af stað upp á
Akranes kl. 08:00 frá Hafnar-
firði.
Fyrstu verk í vinnunni: Ég hitti
samstarfskonu mína, hana Ellu
Maríu, og við fórum yfir verkefni
dagsins.
Hvað varstu að gera klukk-
an 10? Ég var að tala við hljóm-
sveitastjóra Litlu lopapeysunnar
út af skipulagningu hennar.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Þá fórum við Ella María í mat á
Gamla kaupfélagið og fengum
plokkfisk hjá Gunna bróður.
Hvað varstu að gera klukkan
14: Þá var ég í símanum að tala
við Jón Bjarna pípara út af bíla-
sýningu sem verður á laugardag-
inn.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Ég
hætti ekki í vinnunni þessa dag-
ana, en ég fór niður á Gamla
Kaupfélag og horfði á leikinn.
Hvað gerðirðu eftir vinnu? Ég
fagnaði svo þessum stórkostlega
sigri með golfhring hjá Leyni.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Maður henti sér í ham-
borgara og aftur var það Gunni
bróðir sem eldaði.
Hvernig var kvöldið? Eitt
skemmtilegasta kvöld sem ég hef
upplifað!
Hvenær fórstu að sofa? Rúm-
lega miðnætti.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Burstaði tennur, minn-
ir mig.
Hvað stendur uppúr eftir
daginn? SIGUR ÍSLANDS Á
ENGLENDINGUM!
Eitthvað að lokum? Áfram
Írskir dagar eða eigum að hafa
það Íslenskir dagar í ljósi alls?
Dag ur í lífi...
Verkefnastjóra Írskra daga