Skessuhorn


Skessuhorn - 29.06.2016, Side 27

Skessuhorn - 29.06.2016, Side 27
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2016 27 Krossgáta Skessuhorns Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfang- ið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánu- dögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (athugið að póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verður úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshaf- inn bókargjöf frá Skessuhorni; „Pétrísk íslensk orða- bók með alfræðiívafi,“ eftir sr. Pétur Þorsteinsson. Alls bárust 52 lausnir við krossgátunni í blaðinu í síðustu viku. Lausnin var: „Sólgleraugu.“ Vinningshafi er: Torfi Guðlaugsson, Hvammi í Hvítársíðu, 311 Borgarnes. Hellir Gild Þaut Konung- ur Píla Skíman Amboð Að fullu Gabb Þegar Lagleg Útlimir Vex Skel Grjót Annars Hafrót Þreytt Glaður Þys Klókur Áleitni Lappir Óregla Skel Mátar 51 Uppá- koma Skaði Sand- bakka 7 Rolla Gömul Spurn 21 Hóf- leysi Ótti 12 10 Tveir Man óljóst Málmur Tölva 5 16 Svall Hlass Átölur Leiðsl- an Sonur Aldur Drykkur Hól Vangi Rúm Slæptar Róa 18 Hliðar- halli Ráðrík 20 8 Ósk 2 Sverta Spjall Mjaka Dynur 1001 1 Óvissa Hnútur Króin Friður 7 Sam- hljóðar Vitund Reisn Temja Tónn Veisla Rasa Fjar- stæða 14 Læti Hnoða Hljóta Aðstoð Mar- flatt Skar Hraði Flan Óttast Flakk Býsn 19 Upphr. Ógn 9 Faldi Valdi Gelt Sáð- land Fimm 13 Slá Gólf Ætla Varpa Sk.st. Tíndi 4 Bónus Rimla- kassi 3 Draup Terta Hryðja Klampa Jurta- seyði Endaði Snúið Spilið Tónn 11 Erna Krot Lota 17 6 15 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 Þjóðbúningahátíð verður hald- in í tólfta skipti í Stykkishólmi dag- ana 1.-3. júlí nk. Það var Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla, Norska húsið í Stykkishólmi, sem bryddaði upp á þeirri nýjung fyrir ellefu árum að hvetja fólk sem átti í fórum sín- um þjóðbúning, að klæða sig upp og þiggja kaffi og pönnukökur í Norska húsinu. Skapaðist strax góð stemning í kringum þennan viðburð og komu gestir víða að uppábúnir. Viðburður- inn hefur vaxið í tímans rás og fyrir tveim árum fékk viðburðurinn nafn- ið Skotthúfan og jafnframt ákveðið að taka heila helgi undir hann. Und- anfarin ár hefur dagskráin vaxið og atriði eins og tónleikar, langsspils- smiðja, þjóðdansakennsla, búninga- handverk og fyrirlestrar sem tengjast þjóðbúningunum bæst við. Þannig hafa fleiri komið að undirbúningi há- tíðarinnar á undanförnum árum. Ber þar helst að nefna Vinnustofuna Tang & Riis í Stykkishólmi, Listvinafélag Stykkishólmskirkju, Eldfjallasafnið í Stykkishólmi og Heimilisiðnaðarfé- lag Íslands. Í ár er sjónum beint að Jörundi Hundadagakonungi. Sigrún Helga- dóttir rithöfundur og Margrét Gunn- arsdóttir sagnfræðingur munu fjalla um Jörund en saga íslensku búning- anna tengist honum að vissu leyti. Margrét fjallar um ævi Jörundar og Sigrún fjallar um tengls íslenska þjóð- búningsins við Jörund, en hún hef- ur rannsakað íslenska faldbúninginn sérstaklega. Þessir fyrirlestrar verða í gömlu kirkjunni í Stykkishólmi. Í vinnustofu Tang & Riis veit- ir Þjóðbúningastofan 7 í höggi ráð- gjöf um búninga og búningavörur og verða sýnishorn á staðnum frá Heim- ilisiðnaðarfélagi Íslands og Dóru Jónsdóttur gullsmið. Í gömlu kirkjunni mun Arndís Hulda Auðunsdóttir, þjóðfræðingur, fjalla um Sigurð Breiðfjörð í erindinu: Lítil sköpun þroska nær. Mansöngv- ar Sigurðar Breiðfjörðs. Pétur Húni Björnsson kvæðamaður og þjóðfræð- ingur flytur efni eftir Sigurð. Þjóðdansahópurinn Sporið sýnir þjóðdansa við Amtsbókasafnið. Í Norska húsinu verður upp- áklæddum gestum boðið upp á kaffi og pönnukökur. Upphaf hátíðarinnar verður á Eld- fjallasafninu þar sem sýndir verða þættirnir Þið munið hann Jör- und Sjónvarpsgerð af leikriti Jón- asar Árnasonar í leikstjórn og leik- gerð Óskars Jónassonar. Tónlist KK. Helstu hlutverk: Sigurður Sigurjóns- son og Bessi Bjarnason. Kvöldvaka verður á laugardags- kvöldið á vinnustofunni Tang & Riis. Þar verður boðið upp á tón- listardagskrá sem Eyjólfur Eyjólfs- son söngvari og langspilsleikari hefur sett saman og inniheldur meðal ann- ars vinsæla tónlist frá þeim tíma sem Jörundur var í Englandi áður en hann fer til Íslands. Fleiri tónlistar- menn stíga á stokk á kvöldvökunni og flytja meðal annars tónlist úr leikriti Jónasar Árnasonar, Þið munið hann Jörund. Allir viðburðir fara fram í hjarta gamla bæjarins í Stykkishólmi og svífur þjóðlegur andi yfir þegar sjá má prúðbúið fólk valsa á milli gömlu húsanna. Ókeypis er á alla viðburði á Skott- húfunni. Þess má geta að á sunnudegin- um verða tónleikar í Stykkishólms- kirkju kl. 17 en þar er á ferð Norræni djasskvartettinn Dorthe Hojland Group sem flytur frumsamda tónlist sem innblásin er af íslensku landslagi. -fréttatilkynning Þjóðbúningahátíðin Skotthúfan í Stykkishólmi um næstu helgi Í tilefni aldarafmælis Leikdeild- ar Ungmennafélagsins Skalla- gríms var leikdeildin með við- burð á Brákarhátíð sem fór fram í Samkomuhúsinu Óðali í Borgar- nesi. Efnt var til sýningar á völd- um myndum úr leiksýningum lið- inna áratuga. Einnig voru leik- skrár og handrit til sýnis og leikin var tónlist úr leikritum. Þá sungu félagar úr leikdeildinni nokkur lög úr sýningum. Danshópurinn Spor- ið heiðraði leikdeildina með heim- sókn og nokkrum dansatriðum. Alls mættu um 200 manns á þessa sýningu sem var opin laugardag og sunnudag. Vilja forsvarsmenn sýn- ingarinnar þakka öllum þeim sem aðstoðuðu við að koma þessari sýningu á laggirnar. tfk Sýning í Óðali í tilefni hundrað ára leikstarfs Konur taka lagið og myndum úr leiksýningum varpað á hvíta tjaldið. Karlar sungu nokkur vel valin atriði úr sýningum liðinna ára. Leikdeild Umf. Skallagríms hefur þrisvar sinnum fært upp leikritið Skugga-Svein. Fyrst leikárin 1917-1918, þá 1948-1950 og loks árið 2011-2012. Náttúrustofa Vesturlands í Stykkishólmi auglýsir eftir sérfræðingi í starf verkefnisstjóra umhverfisvottunar- verkefnis sveitarfélaganna fimm á Snæfellsnesi. Um er að ræða 80% stöðu, sem felur í sér vinnu að og umsjón með umhverfisvottun á starfsemi sveitar- félaganna, ásamt verkefnum henni tengdri. Upplýs- ingar um umhverfisvottunarverkefnið má finna á www.nesvottun.is og er áhugasömum umsækjendum bent á að kynna sér sérstaklega vel ritin „Skref í rétta átt“ og „Framkvæmdaáætlun Snæfellsness 2016-2020“. Starfið er spennandi, krefjandi og fjölbreytt og felur í sér tækifæri til að hafa víðtæk áhrif á sviði umhverfis- mála. Leitað er eftir kraftmiklum, skipulögðum, já- kvæðum og samviskusömum einstaklingi með mikinn áhuga á umhverfismálum, sem hefur góða samskiptahæfni og getur unnið sjálfstætt. Umsækjandi þarf að hafa lokið háskólanámi á sviði náttúruvísinda, s.s. í umhverfisfræði eða náttúrufræði. Færni í að miðla upplýsingum á rituðu og töluðu máli, góð enskukunnátta og góð tölvukunnátta er nauðsynleg. Um laun, réttindi og skyldur fer samkvæmt kjarasamn- ingum viðkomandi stéttarfélags og stofnanasamningi Félags íslenskra náttúrufræðinga og Náttúrustofu Vesturlands. Umsókn skal vera skrifleg og samanstanda af: 1) Náms- og ferilsskrá með mynd, 2) greinargerð um ástæður þess að umsækjandi telur sig hæfan í starfið og langi til að sinna því, 3) meðmæli frá tveim vinnu- veitendum, samstarfsaðilum eða kennurum, ásamt nöfnum tveggja annarra sem gætu gefið upplýsingar í síma. Umsóknir og fyrirspurnir skal senda í tölvupósti á net- fangið robert@nsv.is. Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna öllum umsóknum. Um- sóknarfrestur er til og með 1. ágúst 2016. Verkefnisstjóri umhverfisvottunar

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.