Skessuhorn - 29.06.2016, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 201628
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
Bifreiðaþjónusta Harðar ehf.
Smur og dekkjaþjónusta
Sala á dekkjum og olíuvörum
Borgarbraut 55 - 310 Borgarnesi
437 1192 / 847 8698 - midgardur@vesturland.is
Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness
Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar
Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga
kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30
Sími 437-2030 - v.v@simnet.is
DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK
LAUSNIN HÖFÐASELI
Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00
alla virka daga
Vélabær ehf.
Bæ í Bæjarsveit
Alhliða viðgerðarþjónusta
á bílum, dráttarvélum
og vélum tengdum
landbúnaði
Smur og hjólbarðaþjónusta
velabaer@vesturland.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
ÖLL ALMENN GARÐVINNA
• Fjarlægjum tré og kurlum
• Útvegum sand, mold og möl
• Sláum garða
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
Borgnesingurinn Þorsteinn Ey-
þórsson fór hjólandi hringveginn á
tveimur vikum. Hann lagði af stað
frá Geirabakaríi í Borgarnesi mið-
vikudaginn 8. júní og renndi aftur
þar í hlað miðvikudaginn 22. júní.
Steini, sem er 62 ára gamall, hefur
verið að hjóla í þrjú ár og var það
m.a. vegna umhverfissjónarmiða
en einnig til að bæta heilsuna. Að-
spurður hvers vegna hann hafi lagt
í hringveginn segir hann það fyrst
og fremst hafa verið áskorun á sjálf-
an sig. „Mig langaði að vita hvort
ég gæti þetta,“ segir Steini og hlær.
Hann bætir því svo við að ferðin
hafi verið aðeins erfiðari en hann
bjóst við en þó kláraði hann á und-
an áætlun. „Veðrið var ekki alltaf
hagstætt til hjólreiða. Þó það væri
oft gott veður var mikill mótvind-
ur, sérstaklega á hálendinu,“ seg-
ir hann. Við spurðum hvort ekki
þyrfti að vera vel búinn fyrir svona
ferð segir Steini það sjálfsagt geta
hjálpað. „Ég var ekki á besta hjól-
inu. Ég var bara á fjallahjóli og það
voru oft aðrir hjólamenn sem ruku
framhjá mér á góðum hjólum. En
maður þarf að passa upp á orkuna
og mataræðið og ég fékk ráðlegg-
ingar frá Herbalife sem hjálpuðu
mér mikið,“ segir Steini og bætir
því við að heilsan og skrokkurinn
sé í mjög góðu standi eftir ferðina.
Eitt rútufyrirtæki
bar af í tillitsemi
Aðspurður segir Steini það helst
hafa komið á óvart hvað rútubíl-
stjórar sýndu litla tillitsemi. „Ég
lenti oft í því að rúturnar tóku
framúr á mikilli ferð og án þess
að sveigja framhjá mér, jafnvel þó
að það væri annar bíll að koma á
móti. Það var samt áberandi að
eitt rútufyrirtæki sýndi mikla til-
litsemi og það voru rúturnar frá
Guðmundi Tyrfingssyni. Þær rút-
ur hægðu alltaf vel á og gáfu mér
nóg pláss.“ Steini segist mest hafa
hjólað á kvöldin og næturnar til
að vera laus við mestu umferð-
ina og þá gat hann notið kyrrð-
arinnar. „Þegar maður er að hjóla
svona getur maður ekkert verið að
njóta náttúrunnar eða slíkt, mað-
ur verður að fylgjast með vegin-
um. Ég naut þess samt að hlusta
á náttúruna þegar umferðaniður-
inn þagnaði,“ segir Steini og bros-
ir. „Ég náði reyndar að villast einu
sinni í Reykjavík. Ég ætlaði að fara
hjólastígana úr Reykjavík í Mos-
fellsbæ en lenti inni í Úlfarsárdal
en það mætti merkja hjólastígana.
Ég áttaði mig samt fljótt á því að
ég var að fara vitleysu og ákvað að
hjóla bara eftir veginum og rataði
þá út úr bænum,“ bætir Steini við
og hlær.
Safnaði fyrir ADHD
samtökin
Ferðina gekk áfallalaust fyrir sig
og fékk Steini mjög góðar mót-
tökur í Borgarnesi við heimkomu.
Þá tóku vinir hans úr slökkviliðinu
á móti honum með því að sprauta
yfir hann sigurboga og aðrir hjól-
uðu á móti honum og fylgdu hon-
um yfir Borgarfjarðarbrúna. Með
hjólaferðinni vildi hann jafnframt
vekja athygli á ADHD samtökun-
um. Margir hafa lagt samtökunum
lið og safnaði Steini rúmlega 620
þúsund krónum. Steina var boðið
sem heiðursgesti á Herbalife fund
á fimmtudagskvöldið þar sem hon-
um voru afhentar 56 þúsund krón-
ur í söfnunina.
arg
Steini Eyþórs hjólaði hringveginn á tveimur vikum
Steini var heiðursgestur á fundi hjá Herbalife og fékk þar afhentar 56 þúsund
krónur til styrktar ADHD samtökunum.
Þorsteinn Eyþórsson rennir í hlað hjá Geirabakaríi eftir að hafa hjólað hringveginn.