Skessuhorn - 29.06.2016, Side 32
ÚTSALA 40% afsláttur af öllum útsöluvörum
Útsalan hefst fimmtudaginn 30. júni . ATH kvöldopnun 20-23.
Norðurálsvöllur
Allir á völlinn
ÍA - Stjarnan
Miðvikudaginn 29. júní kl. 20.
Mætum öll gul og glöð
Aðalstyrktaraðili leiksins er:
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
6
MEISTARAFLOKKUR KARLA:
CLARVISTA
STURTUGLER
FYRIR
VANDLÁTA
COOL - LITE
SÓLVARNARGLER
ispan@ispan.is • ispan.is
M
ynd: Josefine Unterhauser
Landsmót hestamanna hófst á mánu-
daginn á Hólum í Hjaltadal. Keppni
hófst á B-flokki gæðinga og í kjölfar-
ið og næstu daga fylgir hver viðburð-
urinn á fætur öðrum. Hámarki nær
mótið á laugardaginn þegar öll úr-
slit verða. Á sunnudeginum verða þó
ýmsir hestatengdir viðburðir í gangi
en mótinu lýkur síðar þann dag.
Mótshaldarar búast við allt að tíu þús-
und gestum í skagfirsku sveitasæluna
í Hjaltadalnum, en keppnis- og sýn-
ingarhross verða hátt í 800. Gríðar-
mikil uppbygging hefur átt sér stað á
Hólum og ber þar hæst gerð nýs kyn-
bótavallar. Háskólinn á Hólum hef-
ur myndað sér sérstöðu og má segja
að þar sé nú miðstöð fyrir rannsókn-
ir og kennslu í hrossarækt og hesta-
mennsku og því vel við hæfi að stað-
inn sæki heim sem flestir til að kynn-
ast betur því sem þar er í gangi.
Vestlendingar geta vænst góðs ár-
angurs knapa og hrossa úr landshlut-
anum. Sem dæmi má nefna að efsti
hesturinn í A-flokki af úrtökumótum
fyrir mótið er Sólonssonurinn Skýr frá
Skálakoti, en Jakob Svavar Sigurðs-
son sýnir hann og keppir fyrir hesta-
mannafélagið Dreyra. Jakob Svavar
sýnir alls um tvo tugi hrossa á mótinu.
Efsti hestur úr forkeppni í B-flokki er
einnig úr vestlenskri ræktun, Steggur
frá Hrísdal sem Siguroddur Péturs-
son frá Snæfellingi sýnir. Þá má bú-
ast við að börn og unglingar af Vest-
urlandi geti blandað sér í toppbarátt-
una á mótinu, en mörg þeirra stóðu
ofarlega eftir úrtaksmótin. Loks má
búast við að kynbótahross úr lands-
hlutanum eigi eftir að vekja athygli á
mótinu. Meðal annars sex vetra hryss-
an Hamingja frá Hellubæ sem stóð
efst eftir forsýningar, auk fjölmargra
annarra hryssa og stóðhesta.
mm
Landsmót hestamanna hafið á Hólum
Svipmynd frá Hólum á fyrsta degi. Ljósm. Sveinbjörn Eyjólfsson.
Íslandsmót golfklúbba 2016 fór
fram um liðna helgi. Mótið hófst
á föstudegi og lauk á sunnudag-
inn. Mótið hlaut nýtt nafn í vor
en áður hét það Sveitakeppni GSÍ.
Flestir af bestu kylfingum lands-
ins kepptu á mótinu og marg-
ar hörkuviðureignir litu dagsins
ljós. Keppt var í fjórum deildum
í karlaflokki og tveimur deildum í
kvennaflokki.
Golfklúbbur Borgarness keppti
í fyrstu deild karla á mótinu og
var keppt á Korpúlfsstaðavelli.
GB lenti í sjöunda sæti, eða næst
neðsta, og féll því úr fyrstu deild
niður í aðra. Í annarri deild karla
lék Golfklúbburinn Leynir. Stóðu
karlarnir sig vel á mótinu og sigr-
uðu. Þeir munu því leika í fyrstu
deild á næsta ári.
Í annarri deild kvenna lék Golf-
klúbburinn Leynir. Líkt og í karla-
flokki sigruðu konurnar keppnina
og komust því upp í fyrstu deild.
Í fjórðu deild spiluðu Golf-
kúbbarnir Mostri í Stykkishólmi
og Vestarr í Grundarfirði í karla-
flokki. Hólmarar gerðu sér lítið
fyrir og sigruðu og fara því upp
um eina deild. Vestarr varð í sjötta
sæti í deildinni.
bþb/ Ljósm. golf.is
Golfklúbburinn Leynir komst upp
um deild í karla- og kvennaflokki
Sigursveit Leynis ásamt mótsstjóra.
Sigursveit Leynis: Frá vinstri: Þórður Emil Ólafsson, Kristján Kristjánsson, Willy
Blumenstein, Alexander Högnason liðsstjóri, Davíð Búason, Ingi Fannar Eiríksson,
Axel Fannar Elvarsson, Hróðmar Halldórsson og Stefán Orri Ólafsson.