Skessuhorn


Skessuhorn - 24.05.2017, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 24.05.2017, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 20172 517.609 kr. en fara upp í 564.988 kr. sem er tæplega 50.000 kr. hækk- un á mánaðarlaunum. Í samningn- um var bónuskerfið auk þess lag- fært. Orlofs- og desemberuppbæt- ur hækka um 21.000 krónur hvor fyrir sig. „Orlofs- og desemberupp- bætur hjá stóriðjunum á Grundar- tanga eru langtum hærri en gengur og gerist á hinum almenna vinnu- markaði,“ segir í frétt VLFA um nýja saminginn. Elkem skólinn Í þessum samningi var einnig sam- ið um svokallaður Elkem skóla sem er starfstengt tvískipt nám, annars vegar grunnnám og hinsvegar fram- haldsnám og spannar hvort nám- ið fyrir sig þrjár annir. Að aflokn- um skólanum munu starfsmenn fá 5% hækkun fyrir hvort námið fyrir sig eða samtals 10% sem þýðir að þegar starfsmenn hafa lokið bæði grunn- og framhaldsnámi þá mun það skila þeim uppundir 60.000 kr. launahækkun á mánuði. mm Nú er íþróttasumarið komið á fullt. Vest- lendingar eiga marga frábæra íþrótta- menn og hvetjum við fólk til þess að fara og styðja sitt fólk. Framundan eru t.d. leik- ir bæði hjá meistaraflokki karla og kvenna í knattspyrnu hjá ÍA og Víkingi Ólafsvík um helgina, Líflandsgæðingamót hesta- manna í Borgarnesi verður einnig um helgina og Akranesleikarnir í sundi eru handan við hornið. Á morgun (uppstigningardag) verður suðaustan- og austanátt 5-10 m/s, skýj- að og rigning á köflum og víða rigning um kvöldið. Hiti 6-12 stig. Á föstudag; hæg suðaustan eða breytileg átt, skýj- að að mestu og dálítil væta á köflum. Hiti breytist lítið. Á laugardag er spáð hægari suðvestlægri átt og rigningu með köfl- um. Sunnudagur; austlæg átt ríkjandi og væta, hiti 7-15 stig. Á mánudag má bú- ast við hægum vindi og dálítilli vætu. Hiti breytist lítið. Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns: „Hefur þú verið stöðvaður/stöðvuð fyrir of hraðan akstur?“ Svo virðist sem Vestlend- ingar séu siðprútt fólk svona upp til hópa því 48% sögðust aldrei hafa verið stöðv- aðir. 24% sögðu að þeir hafi verið stöðvuð nokkrum sinnum, 24% einu sinni og 4% höfðu verið stöðvuð oft eða mjög oft, sem er ekki gott. Í þessari viku er spurt: Telur þú að Costco muni hafa varanleg áhrif á verðlag á Íslandi? Afmælisbarn dagsins Guðrún Ester Magn- úsdóttir á Fossi í Saurbæ er 100 ára í dag. Hún er Vestlendingur vikunnar. Lesa má nánar um áfanga hennar í frétt hér ofar á síðunni. Spurning vikunnar Til minnis Veðurhorfur Vestlendingur vikunnar Samþykkti breytt aðalskipulag BORGARNES: Á fundi byggð- arráðs Borgarbyggðar í síðustu viku var lagt fram til kynning- ar bréf Skipulagsstofnunar frá 12. maí þar sem stofnunin stað- festir breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 7. apríl síðastliðinn. Auglýsing um staðfestingu Skipulagsstofnun- ar mun birtast í B-deild stjórn- artíðinda. Umrædd ákvörðun snýr að breytingu vegna skipu- lags í miðbæ Borgarness, en hót- elbygging þar var stöðvuð í vet- ur þar sem hún stangaðist á við gildandi skipulag. Samkvæmt heimildum Skessuhorns er því stutt í að byggingarleyfi verði gefið út að nýju. -mm Framkvæmdir við Kirkjufellsfoss GRUNDARFJ: Bæjarstjóra Grundarfjarðarbæjar hefur ver- ið falið að undirrita samning milli Grundarfjarðarbæjar og Framkvæmdasjóðs ferðamála- staða um styrk til framkvæmda við Kirkjufellsfoss á þessu ári. Styrkurinn er veittur til hönn- unar bílastæðis og lagfæringa á núverandi göngustígum við fossinn en úthlutað var úr sjóðn- um í marsmánuði síðastliðnum. Verkefnið þykir mikilvægt ör- yggis- og náttúruverndarverk- efni á sjálfsprottnum ferða- mannastað við mest myndaða fjall landsins, segir í rökstuðn- ingi stjórnar að styrkjum fram- kvæmdasjóðsins. Að sögn Þor- steins Steinssonar, bæjarstjóra Grundarfjarðarbæjar, verður styrkurinn nýttur á þessu ári. „Til verka á þessu svæði fengust sjö milljónir króna til undirbún- ings framkvæmdum og hönn- unar á bílastæði við Kirkjufells- foss. Jafnframt á fjárveitingin að nýtast til lagfæringa á göngu- stígum og merkinga á svæðinu. Hönnunar- og skipulagsvinna hefur farið af stað og þarf henni að ljúka áður en nýframkvæmd- ir hefjast,“ segir Þorsteinn. -grþ Fundað um ferðaþjónustu AKRANES: Akraneskaup- staður býður til hádegisfund- ar föstudaginn 26. maí næst- komandi frá kl. 12 til 13:30 í Tónbergi, sal Tónlistarskól- ans á Akranesi. Fundarefnið er ferðaþjónusta á Akranesi. Þar munu fulltrúar Eimskips og Faxaflóahafna mæta og kynna m.a. fyrirhugaðar ferjusigling- ar milli Akraness og Reykjavík- ur og komu skemmtiferðaskipa til Akraness. Einnig mun Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri fara yfir það sem Akraneskaupstað- ur leggur til málaflokksins. Að lokum verður boðið uppá létt- ar veitingar í anddyri tónlistar- skólans. Fundurinn er hugsaður fyrir alla áhugasama hagmuna- aðila um uppgang ferðaþjón- ustu á Akranesi. -mm Guðrún Ester Magnúsdóttir frá Fossi í Saurbæ er 100 ára í dag. Guðrún hefur undanfarið dvalið á heimili dóttur sinnar í Reykjavík en verður í þessari viku í hvíldarinn- lögn á hjúkrunarheimilinu Mörk. Til stendur að halda upp á afmæl- ið með ættingjum og vinum næst- komandi laugardag. Guðrún Ester hefur alla tíð búið í Saurbæ og kveðst una sér best þar. Hún fæddist á Saurhóli 24. maí 1917. Foreldar hennar voru Magn- ús Árnason og Lára Lárusdóttir og var hún elst barna þeirra. Móð- ir hennar smitaðist af berklum og dó þegar Guðrún var fimm ára og kveðst hún lítið muna eftir henni. Ellefu ára flutti hún að Tjalda- nesi í sömu sveit en 1937 fór hún að Fossi og hóf búskap með Hirti Guðjónssyni manni sínum. Á Fossi hefur Guðrún búið fram undir þetta, síðustu árin með Steingrími syni sínum. Í viðtali við Skessuhorn fyrir jólin 2011 kom m.a. fram að nægjusemi er aðalsmerki Guðrúnar á Fossi. Hún og fjölskyldan komst af með lítið. Veikindi hafa sett strik í reikn- inginn hjá Guðrúnu undanfarið ár og þá hefur hún að auki dottið og meitt sig. Segist af þeim sök- um hafa verið um tíma í Búðardal, á sjúkrahúsinu á Akranesi en auk þess á hjúkrunarheimilinu Mörk. Upp á síðkastið hefur hún svo búið hjá dóttur sinni á Njálsgötunni í Reykjavík. Guðrún og Hjörtur á Fossi eignuðust fimm börn og eru þrjú þeirra á lífi. Barnabörn henn- ar eru sjö, langömmubörnin 13 og langalangömmubörnin eru tíu. Hjört mann sinn missti Guðrún árið 1989. Í stuttu spjalli við blaðamann Skessuhorns kveðst Guðrún vera sæmilega hress. „Ég heyri ekkert of vel en sé vel, fór í laseraðgerð á augum og fékk auk þess nýja auga- steina og get lesið ef ég hef gler- augun.“ Guðrún segist hafa fóta- vist alla daga en sé orðin hálf löt. Hún kveðst hæfilega spennt fyrir að halda upp á þessi tímamót, en hlakkar þó til að hitta ættingjana þegar afmælinu verður fagnað á laugardaginn. mm Guðrún á Fossi er hundrað ára í dag Guðrún Ester Magnúsdóttir húsfreyja heima í eldhúsinu sínu á Fossi. Ljósm. Ölvir S Sveinsson. Verkalýðsfélag Akraness hefur náð nýjum kjarasamningi við Elkem Ís- land fyrir hönd starfmanna fyrir- tækisins. Samningurinn er að mati Vilhjálms Birgissonar formanns VLFA mjög góður og í anda þess samnings sem gerður var fyrir hönd starfsmanna Norðuráls. Ofngæslu- menn eru til dæmis að hækka um 9% í heildarlaunum á fyrsta ári samningstímans. Heildarlaun ofn- gæslumanns með tíu ára starfs- reynslu voru fyrir samninginn, fyrir utan desember- og orlofsuppbætur, Telja góðan samning hafa náðst fyrir starfsmenn Elkem Ofngæslumenn að störfum hjá Elkem. Ljósm. úr safni. Jón Gunnarsson samgönguráð- herra hefur nú svarað nokkrum af þeim fyrirspurnum sem Bjarni Jónsson varaþingmaður VG lagði fyrir hann í vor, þegar hann tók sæti á Alþingi. Fyrirspurnirnar snerust m.a. um Hvalfjarðargöng, þjóðveg um Hvalfjörð og rekstur Spalar. Fram kemur í svörum ráð- herra að innheimt veggjöldin frá opnun ganganna 1998 til ársloka 2016 hafi numið 18.454 milljónum króna án virðisaukaskatts. Tekjur af veggjöldum voru langmestar á síð- asta ári, eða 1,4 milljarðar króna. Samkvæmt því eru tekjurnar orðn- ar 19 milljarðar króna um þessar mundir. Komið hefur fram að inn- heimtu veggjalda verður hætt um mitt næsta ár þegar Spölur hefur greitt upp síðustu lán vegna fram- kvæmdarinnar. Þá mun ríkið taka við rekstri ganganna samkvæmt samningi. Ráðherra gat ekki svarað spurn- ingu um árlegan kostnaður vegna innheimtu veggjalda undanfarin tíu ár. „Ekki liggur fyrir nákvæm sund- urgreining á innheimtukostnaði, enda skiptast ýmsir kostnaðarliðir á fleiri rekstrarþætti. Líta verður á rekstur ganganna, kostnað vegna verktaka og skrifstofu- og stjórn- unarkostnað saman þar sem ýms- ir kostnaðarliðir tengjast og eru óskiptir í bókhaldi,“ segir í svari ráðherra. Þá spurði Bjarni um hver meðal- biðtími eða töf vegfarenda hafi ver- ið vegna innheimtu veggjaldsins. „Engar mælingar hafa átt sér stað og ekki hefur verið talin þörf á því,“ segir ráð- herra. „Verði tafir við innheimtu, þá er það nær ein- göngu um helg- ar og að sumar- lagi. Undanfarin ár hefur verið lít- ið kvartað undan biðtíma. Veru- legar tafir eiga sér fyrst og fremst stað þegar óhöpp eða slys verða, mengun verður of mikil í göngunum og ef veita þarf forgangsakstur í neyðartilvikum, fyrst og fremst sjúkrabílum.“ Loks telur ráðherra það litlu skipta um afköst Hvalfjarðarganga á álagstímum þegar hætt verður að innheimta veggjalds. „Slíkt mundi litlu breyta. Umferð í Hvalfjarð- argöngum nálgast viðmið fyrir há- marksumferð sem er átta þúsund ökutæki að meðaltali á dag. Eftir því sem fleiri ökutæki eru í göng- unum aukast líkur á tíðari sjálfvirkri lokun vegna mengunar. Aukinni umferð fylgja einnig fleiri óhöpp og slys, en þeim fylgja mestu tafirn- ar,“ segir ráðherra. mm Tekjur af veggjöldum eru 19 milljarðar frá opnun Hvalfjarðarganga Jón Gunnarsson ráðherra telur litlu skipta um tafir á umferð þegar gjald- heimtu verður hætt. Bjarni Jónsson lagði fyrirspurnir fyrir ráðherra.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.