Skessuhorn - 24.05.2017, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 2017 13
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Starfið er mjög fjölbreytt og snýst um flest annað en
bókanir, greiðslur og tollapappíra.
Sendið gjarnan umsókn og ferilskrá á info@thorverk.is.
Um Þörungaverksmiðjuna
Þörungaverksmiðjan rekur þurrkverksmiðju á Reykhólum, þar
sem þang og þari er þurrkaður í mjöl í háum gæðaflokki. Bæði
framleiðsla og hráefnisöflun fyrirtækisins hafa lífræna vottun.
Meginhluti framleiðslunnar er seldur á erlendum mörkuðum,
þar sem hún er m.a. nýtt í framleiðslu í lyfja- og snyrtivöru-
iðnaði auk framleiðslu á fóðurbæti, áburði og fleiru.
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Opinn kynningarfundur
um félags- og frístundastarf
fyrir 60 ára og eldri
Opinn kynningarfundur verður haldinn í Tónbergi 29. maí nk.
kl. 14:00 um félags- og frístundastarf fyrir 60 ára og eldri á
Akranesi. Amanda K. Ólafsdóttir, forstöðumaður félagsmið-
stöðva eldri borgara í Kópavogi og Baldur Þór Baldvinsson,
formaður félags eldri borgara í Kópavogi, munu kynna
fyrirkomulag félagsmiðstöðva fyrir eldri borgara í Kópavogi.
Að því loknu mun Heiðrún Janusardóttir, verkefnastjóri
æskulýðs- og forvarnarmála, kynna tilraunaverkefnið
frístundaráðgjöf fyrir 60 ára og eldri á Akranesi.
Kynningin er öllum opin og allir velkomnir.
Heitt verður á könnunni.
Landinu er skipt upp í fjögur svæði
á strandveiðum; A, B, C og D og
er ákveðinn kvóti á svæðunum
fyrir hvern mánuð. Svæði A nær
frá Eyja- og Miklaholtshreppi til
Súðavíkurhrepps og var því svæði
úthlutað 852 tonnum fyrir maí-
mánuð. Nú er sá kvóti búinn og
var síðasti dagur strandveiða þar
í gær, 23. maí. Svæði A getur aft-
ur hafið veiðar á strandveiðum 1.
júní næstkomandi og verður kvót-
inn 1.023 tonn í júní.
Tvö svæði ná yfir Vesturland og
enn er veitt á svæði D sem nær frá
Hornafirði til Borgarbyggðar, kvót-
inn þar í maí er 600 tonn.
bþb
Strandveiðum í maí lauk í gær á svæði A
Á leið til löndunar í Ólafsvík. Ljósm. af.
Jafnan þegar hlýna tekur í veðri
á sumrin fara allskonar óvenjuleg
farartæki að sjást á götum lands-
ins. Árni Guðjónsson í Borgar-
nesi var á ferðinni á þessu kín-
verska rafdrifna flutningatæki
þegar Þorleifur Geirsson ljós-
myndari varð á vegi hans um
helgina. Fínt að aka um á svona
tæki þegar hitinn var um tuttugu
gráðurnar.
mm
Á rafdrifnu flutningatæki um götu Borgarness
Sundfélag Akraness biðlar til fyr-
irtækja og velunnara félagsins um
stuðning til kostnaðarsams uppbygg-
ingarstarfs. Mikil aðsókn hefur verið
bæði í sundskóla félagsins og einnig í
starfsemi yngri hópanna. Í elstu ald-
urshópunum er sundfólk sem keppir
fyrir hönd félagsins en þar á með-
al er afreksfólk sem keppir fyrir Ís-
lands hönd á mörgum mótum, bæði
hér á landi og erlendis. Nú leitar
sundfélagið til fólks um aðstoð til að
stofna afrekssjóð innan Sundfélags
Akraness.
Afrekssjóðurnn stæði undir kostn-
aði vegna ferðalaga á sundmót, en
slíkur kostnaður getur verið mjög
mikill. Sem dæmi um slík útgjöld þá
er Ágúst Júlíusson, sundmaður úr
félaginu, að fara á Smáþjóðaleikana
fyrir hönd Íslands en kostnaður sem
fellur á félagið vegna þátttöku hans
er 58.000 krónur. Ágúst keppti að
auki á Norðurlandameistaramótinu í
sundi sem fram fór í Esbjerg í Dan-
mörku í desember sl. sem kostaði sitt.
Nýlega fór hópur afrekssundfólks
á sterkt sundmót í Bergen í Noregi
en slíkt er nauðsynlegt til að öðlast
reynslu í keppni við hina bestu. Þá er
ónefndur kostnaður sem hlýst m.a.
af Íslandsmeistaramótum sem haldin
eru bæði í 25 og 50 metra laugum en
sundfélagið þarf reglulega að greiða
akstur sundmanna suður í Hafnar-
fjörð þar sem æft er í 50 metra laug.
Bent er á að hægt er að leggja
inn á reikning Sundfélagsins
0186-15-380864. Kennitalan er
630269-4239.
mm
Biðla til almennings og fyrirtækja um
stuðning við afrekssjóð sundfólks
Þátttakendur Sundfélags Akraness á Íslandsmeistaramótinu í 50m laug í apríl síðastliðnum.