Skessuhorn


Skessuhorn - 24.05.2017, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 24.05.2017, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 201722 Ég var að skoða svæðisskipulag Snæ- fellsness til ársins 2026. Þar kem- ur glöggt fram að fyrrum sveitar- félögin; Skógarstrandarhreppur og Kolbeinsstaðahreppur, eru hvergi nefnd á nafn sem hluti Snæfells- ness. Hálfur Álftafjörður er utan þess og áberandi fjöll og kennileiti s.s. Skyrtunna, Hestur og Sáta eru aðeins að hálfu leyti á Snæfellsnesi. Hvergi er minnst á Hnappadal en Heydalsvegur reyndar skilgreind- ur sem ,,rólegur” ferðamannavegur eins og leiðin yfir Jökulháls. Fyrir nokkrum árum var sam- þykkt með minnsta meirihluta bæði í Skógarstrandarhreppi og Kolbeinsstaðahreppi að sameinast í austur og suður. Skógarströnd til- heyrir nú Dalabyggð og Kolbeins- staðahreppur Borgarbyggð. Öldum saman voru þó þessir hreppar hluti Snæfellsness eins og konungurinn sjálfur – Snæfellsjökull. Það er því einfaldlega rangt að skilgreina nú Snæfellsnes án þessa hluta nessins. Sögulega, menningarlega og land- fræðilega eru Kolbeinsstaðahrepp- ur og Skógarstrandarhreppur hluti af Snæfellsnesi og svo á að sjálf- sögðu að vera áfram. Hvað segja íbúarnir í þeim hluta Snæfellsness sem nú er kallað Snæ- fellsnes? Finnst þeim þetta bara allt í lagi? Og hvað segja þeir sem nú eiga búsetu á Skógarströnd eða í Kolbeinsstaðahreppi? Finnst þeim allt í lagi að vera komnir suður í Borgarfjörð og inn í Dali? Og hvað segja hinir brottfluttu? Er bara allt í lagi að ræturnar séu fluttar í aðrar byggðir? Nú hafa ýmsir allt í einu upp- götvað að Skógarstrandarveg- ur sé ekki bílum bjóðandi. Lengst af var hann þó öllum ráðamönn- um gleymdur. En hvergi er samt minnst á Heydalsveg enda bara rólegur ferðamannavegur. Var þó á sínum tíma talinn kjörinn vetr- arvegur þegar Holtavörðuheiðin tepptist. Er ekki kominn tími til að Snæfellingar – ráðamenn sem aðr- ir, beiti sér af alvöru í að gera þessa vegi sambærilega við aðrar leiðir á Snæfellsnesi? Það er í raun ótrú- legt að Vatnaleiðin svokallaða sem kom í stað Kerlingarskarðsins, hafi í reynd klofið frá, eystri hluta Snæ- fellsness að stórum hluta! Þar með gleymdust Skógarstrandarvegur og Heydalsvegur. Löngum hafa stoltir Snæfelling- ar og Hnappdælir talið Eldborg til höfuðprýða Snæfellsness. Mótmælt var kröftuglega þegar einhverjir ut- anhéraðsmenn sögðu hana vera á Mýrum. Þeir sem áhuga hafa á jarð- fræði koma langan veg til að ganga á Eldborg og berja hana augum. Skiptir Eldborg ekki lengur máli þegar verið er að vegsama Snæfells- nesið í bak og fyr- ir? Er jarðfræði Hnappadals ins og allar eldstöðv- arnar þar, ekki einu sinni einnar messu virði? Og hvað með Bro- key og Öxney og allar hinar eyjarn- ar sem tilheyra Skógarströnd? Þar voru þó íslenskar söguslóðir Eiríks rauða. Og ýmislegt er í Landnámu og Eyrbyggju um Skógarströnd. Svona má lengi telja. Svæðis- skipulagið sem hér er vitnað til, nær til ársins 2026. Áður en kom- ið er að næstu skrefum – er ekki fyllsta ástæða til að endurskoða skilgreininguna – hvað er Snæ- fellsnes og skilja ekki Skógarströnd og Hnappadal eftir sem útrunna skika? Reynir Ingibjartsson, höfundur korta og gönguleiðarbókar um allt Snæfellsnes. Netfang: reyniring@internet.is. „Skiptir Eldborg ekki lengur máli þegar verið er að vegsama Snæfellsnesið í bak og fyrir?“ Ætla Snæfellingar að fórna Skógarströnd og Hnappadal? Pennagrein Hvítahúsið í Krossavík við Hellis- sand hefur fengið nýja eigendur. Það eru hjónin Elva Hreiðarsdóttir og Halldór Eyjólfsson sem keyptu húsið. Þau hyggjast hefja starfsemi í Hvítahúsi formlega um sjómann- dagshelgina 10.-11. júní. Í samtali við Skessuhorn segja þau margt spennandi á prjónunum varðandi húsið og starfsemina þar. Elva er fædd og uppalin í Ólafs- vík, dóttir hjónanna Svölu S. Thomsen og Hreiðars Skarp- héðinssonar. Þau Elva og Hall- dór eru búsett í Reykjavík en þar starfar hún sem myndlistarmaður og kennari. Halldór eiginmaður hennar starfar sem grafískur hönn- uður og rekur auglýsingastofu. Hvítahús, sem áður var íshús og nánast útveggirnir einir, var end- urbyggt af hjónunum Steingerði Jóhannsdóttur og Árna Emanú- elssyni en þau keyptu húsið árið 2010 og hófu uppbyggingu þess. Byggðu þau þar upp listamanna- setur þar sem listamenn gátu dval- ið og unnið í lengri eða skemmri tíma. Þar hafa einnig verið haldnar sýningar og alls kyns uppákomur. Hafa listamenn alls staðar að úr heiminum dvalið þar og stundað listina. Listagallerí og námskeið Að sögn Elvu kynntist hún Hvítahúsi og þeim hjónum þeg- ar hún kom og dvaldi þar í stutt- an tíma ásamt Soffíu Sæmunds- dóttur myndlistarkonu. Þær unnu þá að sameiginlegu verkefni. Átti Elva eftir að koma aftur og aftur bæði til þess að vinna sjálf að sinni myndlist en einnig til að halda námskeið. Fannst henni engu líkt að vinna þarna að listsköpun, fjarri öllum skarkala hversdagsins í þess- ari ómótstæðilegu náttúruparadís og „komin heim“ á vissan hátt eins og hún orðar það. Munu þau hjón Elva og Halldór reka húsið áfram líkt því sem verið hefur en hyggj- ast þó auka starfsemina lítillega. Í júní og júlí ætla þau að gera tilraun með að reka lítið listagallerí sam- hliða því að Elva ætlar að vinna að sinni myndlist á staðnum. Er ætl- unin að hafa opið almenningi frá klukkan 13:00 til 17:00 daglega. Einnig er stefnt að öflugu nám- skeiðahaldi fyrir listamenn. Mun Elva sjálf kenna á flestum nám- skeiðum til að byrja með, ásamt Soffíu Sæmundsdóttur, en í fram- tíðinni er ætlunin að fá fleiri lista- menn til samstarfs með listasmiðj- ur og námskeið af ýmsu tagi. Aðspurð hlakka þau hjón gríð- arlega til að takast á við þetta verkefni en það hefur lengi ver- ið draumur Elvu að setja svona rekstur á laggirnar, það er vinnu- stofu og námskeiðahald. Þar seg- ist hún geta unnið sameiginlega að því sem hún hefur lært og hefur mesta reynslu í. Elva er menntaður myndlistarkennari og hefur starfað við það í þrjátíu ár. Er hún full til- hlökkunar að geta kennt börnum og ungmennum myndlist í Hvíta- húsi. Er það ekki síst vegna þess að þegar hún var að alast upp voru fá tækifæri til þess að læra mynd- list á svæðinu. Langar hana að gefa börnum og unglingum með brenn- andi áhuga á listsköpun tækifæri til þess að efla sig á því sviði í sinni gömlu heimabyggð. Þó svo hún viti að möguleikarnir séu fleiri í dag. Hlakkar hana mikið til að koma til baka reynslunni ríkari og miðla til samfélagsins. Elva vildi einnig koma á fram- færi að í júlí verða námskeið í teikningu fyrir fullorðna sem hafa viljað læra að teikna en hafa ekki grunninn. „Þetta verður notalegt námskeið. Fólk hefur náð miklum árangri á þeim.“ Nánari upplýsingar má nálgast á Hvitahus og ElvaArt á Facebook. þa Nýir eigendur að Hvítahúsi í Krossvík Elva Hreiðarsdóttir. Hvítahús í Krossvík. Sjálfboðaliðar Rauða krossins á Akranesi hafa að undanförnu ver- ið að sauma fjölnota poka ætlaða til sölu sem fjáröflun fyrir deild- ina. Um fallega og vandaða vöru er að ræða og er efni sem berst í fata- söfnun deildarinnar sem og efni frá sjálfboðaliðum notað við gerð pok- anna. Á hvern poka er svo bróder- að merki Rauða krossins. „Það má segja að þetta sé okkar framlag til umhverfisverndar, fólk getur notað pokana sem innkaupapoka og sleppt því að kaupa nýjan plastburðarpoka í hvert sinn sem farið er út í búð. Pokarnir stuðla að minni plast- notkun,“ segir Sigrún Jóhanns- dóttir starfsmaður deildarinnar í samtali við Skessuhorn. „Mark- miðið með þessu verkefni okkar er fyrst og fremst hugsað sem fjáröfl- un fyrir deildina. Við erum einnig að laga gamlar lopapeysur og selja í sama skyni. Þá fáum við lopapeys- ur sem fólk telur ónýtar vegna þess að það er komið gat eða slíkt. Við lögum þá lopapeysuna og seljum hana, endurnýtum hana. Bæði fjöl- notapokana sem og lopapeysurnar er hægt að kaupa hjá okkur í hús- næði Rauða krossins á Akranesi,“ segir Sigrún. Akranesdeild Rauða krossins er með stærri deildum á landinu og skipta slíkar fjáraflanir deild- ina miklu máli. „Við erum með ýmis verkefni í gangi. Eitt af okk- ar stærstu verkefnum um þess- ar mundir eru fatapakkar sem við sendum reglulega til barna í Hvíta- Rússlandi. Í húsnæði okkar á Akra- nesi sitja sjálfboðaliðar í hverri viku og prjóna fatnað á börn þar. Við erum einnig með áfallateymi starf- andi ásamt því að halda alls kyns námskeið. Nú um þessar mundir erum við að halda fjölmörg nám- skeið í skyndihjálp og á föstudag- inn næsta verðum við með nám- skeið fyrir barnapíur sem ber heit- ið „Börn og umhverfi,“ segir Alda Vilhjálmsdóttir formaður Rauða krossins á Akranesi. bþb Sauma fjölnota poka og endurnýta gamlar lopapeysur Hér eru þær Alda Vilhjálmsdóttir formaður Rauða krossins á Akranesi og Sigrún Jóhannsdóttir starfsmaður ásamt hluta þess varnings sem verið er að selja.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.