Skessuhorn - 24.05.2017, Page 12
MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 201712
Útlit er fyrir að stórtjón hafi orðið á
lífríki Andakílsár í Borgarfirði í síð-
ustu viku þegar hleypt var þúsund-
um rúmmetra af aur og uppsöfnuð-
um setlögum úr uppistöðulóni ofan
virkjunarinnar og niður í ána. Ekki
er kunnugt um að hleypt hafi verið
úr lóninu áður í 70 ára sögu Anda-
kílsvirkjunar. Leirinn og setlög-
in sem safnast hefur fyrir í lóninu
á upptök sín á vatnasvæði Skorra-
dalsvatns, meðal annars framburð-
ur úr Skarðsheiði. Orka náttúrunn-
ar er eigandi og rekstraraðili Anda-
kílsvirkjunar. Fyrirtækið hafði í vet-
ur sótt um framkvæmdaleyfi til að
hefja mokstur úr botni lónsins, en
ekki fengið því úthlutað m.a. þar
sem veiðiréttareigendur við ána
töldu það varhugavert að moka upp
úr lóninu svo skömmu fyrir upp-
haf veiðitímabils. Því var einhverra
hluta vegna ákveðið í byrjun síðustu
viku að hleypa öllu vatni úr lóninu
en með þessum ófyrirsjáanlegu af-
leiðingum. Við þetta mikla aurflóð
er talið að seiði í ánni hafi drepist og
flestir af bestu veiðistöðum árinnar
eru einfaldlega ekki til lengur. Þeir
eru fullir af leir. Í stað þess að áður
sást ekki til botns á þekktum veiði-
stöðum er nú hægt að ganga þurrum
fótum yfir þá endilanga á leirhryggj-
um. Þetta umhverfisslys af manna-
völdum gæti þýtt að seiðabúskapur
árinnar sé hruninn og taki mörg ár
að koma honum á rétt ról að nýju. Í
versta falli gæti glatast náttúrulegur
laxastofn árinnar. Talið er að Orka
náttúrunnar kunni að hafa skapað
sér skaðabótaskyldu vegna þessa.
Sérfræðingar kallaðir til
„Staðan var sú að lítið inntakslón
ofan virkjunarinnar var að fyllast af
leir. Við höfum hleypt úr því reglu-
bundið en nú þurfti að tæma það.
Meira set barst því niður í farveg-
inn en alla jafna. Við erum að meta
stöðuna með veiðimálasérfræð-
ingum og leita leiða til að flýta því
að þetta skolist fram,“ sagði Eirík-
ur Hjálmarsson upplýsingafulltrúi
Orku náttúrunnar í fjölmiðlum um
helgina, eftir að málið komst í há-
mæli. Hann segir fyrirtækið hafi
kallað til sérfræðinga Hafrann-
sóknarstofnunar til að meta ástand-
ið í ánni og mögulegt tjón. Nið-
urstaðna úr þeim skoðunum er að
vænta í þessari viku.
Stofn árinnar í
raunverulegri hættu
Ragnhildur Helga Jónsdóttir, um-
hverfisfræðingur og bóndi í Ausu, er
í stjórn veiðifélags Andakílsár. Hún
segir að Orka náttúrunnar hafi ætl-
að að fara í framkvæmdir við stíflu-
garð lónsins í vetur og hugðist láta
moka upp úr lóninu. Það verk hafi
hins vegar dregist og að lokum ver-
ið ákveðið að tæma lónið til að meta
ástandið. Menn hafi hins vegar ekki
gert sér grein fyrir afleiðingunum.
Þegar vatnið hafi farið að grafa sig
niður í botn uppistöðulónsins hafi
áin borið með sér þúsundir rúm-
metra af seti og aur sem brotnuðu
úr bökkunum. Á augabragði hafi
áin orðið dökkmórauð eins og sjá
má á meðfylgjandi myndum frá því
á fimmtudaginn af fossinum og út-
hlaupi neðan við stíflu uppistöðu-
lónsins. Niðurhleyping vatnsins
hafi að líkindum staðið frá mánu-
degi og a.m.k. fram á fimmtudags-
kvöld í liðinni viku.
Ragnhildur Helga segir að veru-
leg hætta sé á að náttúruleg seiði í
uppeldi hafi drepist og þá eru næstu
fjögur ár ónýt í uppeldi laxfiska í
ánni. „Hins vegar ef við náum ekki
erfðaefni sem kemur úr sjó í sum-
ar er raunverulega hætta á að hinn
gamli stofn árinnar sé einfaldlega
hruninn. Það tjón væri óbætanlegt.
Við erum ekki með seiði í uppeldi
nú. Eina erfðaefnið sem eftir er úr
stofninum er sá fiskur sem kemur
úr hafi í sumar, ef hann kemur,“
segir Ragnhildur Helga. Hún bæti
við að þegar skýrsla fiskifræðinga
liggi fyrir muni veiðifélagið fá lög-
fræðing til að gæta hagsmuna veiði-
réttarhafa gagnvart Orku náttúr-
unnar.
Bíða átekta líkt og aðrir
Einungis mánuður er í að laxveiði-
tímabilið hefjist í Andakílsá. Það er
Stangveiðifélag Reykjavíkur sem
hefur ána á leigu og samkvæmt
upplýsingum Ragnhildar Helgu var
búið að selja öll veiðileyfi sumars-
ins. Forsvarsmenn SVFR, líkt og
Orka náttúrunnar og landeigendur,
bíða nú niðurstöðu rannsókna fiski-
fræðinga á umfangi tjónsins áður en
næstu skref verða ákveðin.
mm
Líkur taldar á að meiriháttar tjón hafi
verið unnið á lífríki Andakílsár
Hér má sjá hvernig áin gróf sig niður í botn lónsins og leirinn var að falla úr bakk-
anum. Ljósm. Guðrún Guðmundsdóttir.
Áin náði að grafa sig niður á botn uppistöðulónsins og ruddi með sér þúsundum rúmmetra af aur. Myndin er tekin síðastliðið
fimmtudagskvöld. Ljósm. Guðrún Guðmundsdóttir.
Dökkbrúnn fossinn þegar mikill aur rann úr uppistöðulóninu. Aurinn safnaðist
svo fyrir í veiðistöðum neðar í ánni og annað fór út í Borgarfjörð.
Ljósm. Guðrún Bjarnadóttir.
Þykkt lag af límkenndum leir er hvarvetna í botni árinnar. Við árbakkann sést að
vatn hefur hækkað um rúmlega hálfan metra þegar leirnum var hleypt niður.
Affallið neðan stíflu meðan enn var hleypt úr lóninu. Myndin var tekin sl.
fimmtudag. Ljósm. Guðrún Guðmundsdóttir.
Veiðimaður sem þekkir vel til árinnar skoðaði hana frá virkjun og niður um
helgina. „Allt var fullt af aur og hægt að ganga í miðri ánni alla leið. Þessi mynd er
tekin af veiðistað fjögur. Hann er besti veiðistaður í ánni og var svo djúpur að ekki
var hægt að sjá til botns. Nú er hægt að ganga eftir honum til enda.“ Ljósm. vr.