Skessuhorn - 24.05.2017, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 201716
Samband stjórnendafélaga færði
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
í Stykkishólmi um síðustu helgi
gjöf úr sjúkrasjóði sambandsins.
„Við fengum höfðinglega gjöf til
HVE í Stykkishólmi að andvirði
rúmlega ein milljón króna,“ seg-
ir Brynja Reynisdóttir, yfirhjúkr-
unarfræðingur HVE í Stykkis-
hólmi, í samtali við Skessuhorn.
Samband stjórnendafélaga, sem
áður hét Verkstjórafélag Íslands,
hélt sambandsþing sitt í Hólm-
inum um liðna helgi. Hefur það
verið siður sambandsins um langt
skeið að láta fé af hendi rakna úr
sjúkrasjóði til sjúkrastofnana þar
sem þingið er haldið hverju sinni.
„Þetta er okkar hlutverk og við
höfum gert þetta í áratugi. Stofn-
anirnar finna sjálf tækin sem þeim
hentar og miðast við þessa upp-
hæð og við afhendum gjöfina,“
segir Skúli Sigurðsson, forseti
Sambands stjórnendafélaga.
Góð viðbót
„Það sem okkur var fært að gjöf
var heilmikið. Meðferðarljós til
meðhöndlunar fólks með húð-
sjúkdóma fékk heilsugæslan að
gjöf. Mun það bæta mjög með-
ferðarmöguleika. Ljósið verður
staðsett á heilsugæslunni og fólk
getur fengið meðhöndlun með
því að bóka tíma að því gefnu
að það hafi tilvísun frá húðsjúk-
dómalækni,“ segir Brynja. Hún
vill þó koma því á framfæri að
þeir sem hafa sótt meðferð í eldra
ljósi þurfa að útvega sér nýja til-
vísun húðsjúkdómalæknis til að fá
rétta meðhöndlun í nýja meðferð-
arljósinu.
Önnur gjöf var færð sjúkraþjálf-
uninni í Stykkishólmi; meðferðar-
hjól fyrir hendur og fætur, æfinga-
stigi til að þjálfa fólk með skerta
hreyfigetu og körfuboltaspjald til
að hengja á rimla, auk körfubolta
og pumpu. „Við erum alsæl með
þessar gjafir. Þetta er góð viðbót
við það góða starf sem við erum
að reyna að vinna, við að sinna
þeim sem hingað koma, bæði og
skjólstæðingum göngudeildar og
sjúkrahúss. Við viljum senda kær-
ar þakkir til Sambands stjórn-
endafélaga fyrir gjafirnar,“ segir
Brynja Reynisdóttir að endingu.
kgk
Fulltrúar HVE í Stykkishólmi og Sambands stjórnendafélaga við afhendingu
gjafarinnar. Ljósm. sá.
Færðu HVE í
Stykkishólmi gjöf
Síðustu vortónleikar Tónlistarskóla
Snæfellsbæjar voru haldnir 16. maí
síðastliðinn. Bæði var spilað á píanó
og harmonikku ásamt söng. Þar
komu fullorðnir nemendur tónlist-
arskólans fram. Hinir síungu sungu
einnig nokkur lög. Stóðu fullorðn-
ir nemendur sig með prýði og voru
tónleikarnir hinir skemmtileg-
ustu. Þeim lauk svo með fjöldasöng
bæði nemenda og gesta. Nemend-
ur fengu svo vitnisburð vetrarins
áður en þeir ásamt tónleikagestum
gæddu sér á veitingum. þa
Hinir síungu sungu fyrir
nemendur tónlistarskólans
Félagsmenn í Skíðaráði Snæfellsness
voru önnum kafnir við frágang þeg-
ar að fréttaritari Skessuhorns leit við
hjá þeim á dögunum í brekkunum í
Grundarfirði. Þá var verið að ganga
frá í skíðaskálanum, taka niður diska
í lyftunni og fara yfir búnaðinn eftir
veturinn. Á myndinni frá vinstri eru
þau Haukur Árni Hjartarson, Guð-
mundur Pálsson, Hólmfríður Hildi-
mundardóttir og Rut Rúnarsdóttir
önnum kafin. tfk
Vorverkin hafin á skíðasvæðinu
Umtalsverðar framkvæmdir standa
nú yfir á Arnarstapa á Snæfells-
nesi. Er það ferðaþjónustufyrir-
tækið Snjófell ehf. sem stendur að
uppbyggingu á svæðinu, en fyrir-
tækið á og rekur Arnarbæ á Arnar-
stapa sem og Hótel Arnarstapa. Á
síðasta ári var lokið við gerð ellefu
smáhýsa og nú er að hefjast loka-
spretturinn í byggingu 36 her-
bergja hótels til viðbótar, auk 300
fermetra þjónustumiðstöðvar og
veitingastaðar. „Að þessari viðbót
lokinni verða hér í heildina um 60
herbergi, að meðtöldum smáhýs-
unum sem reist voru í fyrra,“ seg-
ir Svanur Tómasson hjá TS véla-
leigu ehf. í samtali við Skessuhorn,
en fyrirtæki hans sér um alla jarð-
vinnu við framkvæmdina fyrir Hót-
el Arnarstapa. „Að uppistöðu til eru
þetta hús með fjórum herbergjum
hvert, en þar að auki eru fjögur 60
fermetra hús. Þau eru hugsuð til að
taka á móti fleirum í einu í gistingu
auk þess sem þar er aðgengi fyrir
fólk í hjólastól,“ segir Svanur.
„Þjónustuhúsið sjálft er á mjög
fallegum stað með góðu útsýni.
Núna er sól og blankalogn á Arn-
arstapa og alveg dásamlegt að vera
hérna,“ segir hann. „Þar eru ellefu
salerni sem eiga að geta þjónustað
rúturnar sem koma hér við. Það
vantaði nauðsynlega orðið klósett-
aðstöðu og ánægjulegt að brugðist
hafi verið við þeirri þörf.“
Vinnan gengið vel
Skóflustungan var tekin að þjón-
ustuhúsinu í byrjun júlí síðasta
sumar. Þá var vinna við smáhýsin
á lokametrunum. Vinna við þjón-
ustuhúsið og herbergin 36 hófst
síðan um haustið og hefur að sögn
Svans gengið að óskum. „Þetta hef-
ur gengið mjög vel og hjálpaði okk-
ur töluvert í jarðvegsframkvæmd-
um hvað veturinn var góður, ef frá
er talið svartasta skammdegið þeg-
ar var myrkur og ótíð. En heilt yfir
var tíðin góð og það flýtti fyrir allri
vinnu,“ segir hann.
Svanur segir að undanfarið hafi
verið unnið alla daga vikunnar,
enda farið að síga á seinni hluta
framkvæmdanna. Hann vill þó
ekki fullyrða hvenær vinnu lýk-
ur. „Lokahnykkurinn er að hefj-
ast þessa vikuna og síðustu daga
hafa verið hátt í 20 iðnaðarmenn á
svæðinu. Verið er að bera inn rúm
í herbergin þessum töluðu orðum,
ganga frá raf- og pípulögnum og
fleira slíkt. Við erum að klára fyrir
hellulögn og vinna að lóðafrágangi.
Í sumar kemur síðan malbikunar-
stöð á Nesið og þá verður planið
malbikað,“ segir Svanur Tómasson
að lokum.
kgk
Lokahnykkurinn að hefjast við hótelbyggingu á Stapa
- 36 herbergi og 300 fermetra þjónustuhús í byggingu
Húsin eru sunnan við veginn. Samtals eru þar 36 herbergi, auk 300 fermetra þjónustuhúss og veitingastaðar. Ljósm. hb.
Að uppistöðu eru fjögur herbergi í hverju húsi en auk þess eru fjögur 60 fermetra
hús þar sem hægt verður að taka á móti fleirum í gistingu.
Þannig var umhorfs á framkvæmdasvæðinu þegar Skessuhorn var á ferðinni fyrir
helgi.