Skessuhorn - 24.05.2017, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 2017 23
Nú standa yfir framkvæmdir við
sparkvöllinn í Grundarfirði þar sem
að verið er að skipta um gervigras
á vellinum. Nýjasta kynslóð gervi-
grass verður sett á völlinn og verða
foreldrar í bænum eflaust fegnir að
losna við svarta gúmmíkurlið sem
hefur gert þeim lífið leitt undanfar-
in ár. tfk
Skipt um
gervigras á
sparkvellinum
Golfklúbburinn Vestarr í Grundarfirði var að vinna við að fjarlægja gamla
gervigrasið þegar myndin var tekin í síðustu viku, en til stendur að endurnýta það í
göngustíga á golfvellinum.
Starfsmenn Altis eru hér að setja nýja grasið á sparkvöllinn í blíðviðrinu fyrir helgina.
Síðastliðinn sunnudag fór fram
á Hvolsvelli mót í ringói. Sex lið;
tvö frá Borgarbyggð, tvö úr Mos-
fellsbæ, eitt úr Kópavogi og eitt frá
HSK mættu til leiks.
Eftir skemmtilega og oft fjör-
uga keppni fór svo að HSK sigr-
aði með tíu stig, í öðru sæti hafn-
aði FAMOS með sex stig og í þriðja
sæti UMSB-A með 6 stig. Næsta
mót í ringói verður í Hveragerði
á Landsmóti UMFÍ 50+. Mótið
verður haldið dagana 23.-25. júní
næstkomandi.
fj/ Ljósm. Sigríður Bjarnadóttir.
Kepptu í ringói
ÍA klifrarar nýttu sér veðurblíðuna
um helgina og fjölmenntu í Akra-
fjallið ásamt stórum hópi höfuð-
borgarbúa sem skoðuðu nýju leið-
irnar sem Klifurfélag ÍA býður upp
á. Nokkur klifurafrek voru unnin
og margir sem klifruðu sína fyrstu
leið utandyra. Gyða Alexanders-
dóttir klifraði „Sæta álfinn“ í of-
anvaði, Sylvía Þórðardóttir leiddi
„Varðmenn spýjunnar,“ Brimrún
Eir Óðinsdóttir leiddi nýja leið;
„Mulning“ í fyrstu tilraun, Kol-
beinn Brynjólfsson klifraði „Varð-
menn spýjunnar“ í ofanvaði og Est-
er Guðrún Sigurðardóttir, sem er
einugis sjö ára ÍA klifrari, fór hálfa
leið upp „Sæta álfinn“ og „Varð-
menn spýjunnar“ í fyrstu tilraun í
ofanvaði.
Daginn eftir gerði Brimrún Eir
sér ferð í Valshamar í Hvalfirði
ásamt þjálfara sínum og setti þar
tvær nýjar leiðir í bókina hjá sér,
„Náttgagnið“ og hina klassísku
„Eilífur er ekki hér,“ sem er með
skemmtilegri klifurleiðum á suð-
vesturhorninu.
Sumarið byrjar vel og það hefur
verið góð þátttaka og mikill áhugi
hjá ÍA klifrurum fyrir útiklifri enda
klifuraðstaða félagsins í Akrafjalli
hin besta og stutt í önnur svæði.
Lengri æfingaferðir eru á döfinni
með sumrinu.
þs
Klifurfólk nýtti góða
veðrið í þaula
Hér fer Sylvía Þórðardóttir „Varðmenn spýjunnar“ í Akrafjalli.
Á miðvikudagskvöldi í liðinni viku
kom ungt fólk úr Borgarbyggð saman
og hélt svokallaða ungmennaveislu í
Hjálmakletti. Það var Ungmenn-
aráð Borgarbyggðar sem boðaði til
samkomunnar fyrir fólk á aldrinum
16-25 ára. Í boði var fræðsla frá völv-
unni, bingó, umræður um hvernig er
að vera ungmenni í sveitarfélaginu og
þá gæddu gestir sér á pizzum.
Ungmennaráðið samanstendur af
blönduðum hópi ungmenna allsstað-
ar úr Borgarbyggð. Markmið þess er
að búa til vettvang fyrir fólk á þess-
um aldri og koma skoðunum sínum á
framfæri. Um kvöldið voru sex spjöld
uppi með ýmsum spurningum þar
sem ungmenni gátu tjáð sig um hvað
mætti betur fara og hvað væri gott
fyrir ungmenni á aldrinum 16-25 ára.
Fram kom að næsta skref væri að taka
hugmyndirnar sem komu eftir kvöld-
ið, hitta fræðslunefnd Borgarbyggðar
en áætlað er að halda sérstakan fund
tileinkaðan Ungmennaráði. Fram
kom í ungmennaveislunni að efla á
virkt félagsstarf þessa aldurshóps og
var veislan fyrsta skref í þá átt.
mm/glh. Ljósm. Gunnhildur Lind
Hansdóttir.
Ingigerður Bjarndís Ágústsdóttir og
Inga Björk Bjarnadóttir fluttu erindi
á vegum völvunnar með umræðu um
píku.
Héldu ungmennaveislu
í Hjálmakletti
Ungmenni fylgjast með dagskrá.
Menn lögðu misjafnlega mikið á sig
til að verða viðstaddir þegar Víking-
ur í Ólafsvík tók á móti ÍBV síðast-
liðinn sunnudag í leik í Pepsideild-
inni. Af þeim 480 sem sóttu leikinn
kom í það minnsta einn áhorfandi
alla leið frá Skotlandi en hann heit-
ir Marc Boal. Boal er mikill áhuga-
maður um íslenska knattspyrnu og
gefur reglulega út tímarit ytra sem
fjallar um íslenska knattspyrnu.
Mikil stemning var fyrir leikinn í
Ólafsvík og söfnuðust stuðnings-
menn beggja liða saman á kaffihús-
inu Kaldalæk þar sem vel var tekið
á móti Boal.
bþb
Erlendur gestur á leik Víkings Ólafsvík
Kátt var á hjalla fyrir leik hjá stuðningsmönnum beggja liða. Ljósm. Alfons Finnsson.