Skessuhorn - 24.05.2017, Qupperneq 26
MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 201726
„Hvað er það
besta við vorið?“
Spurning
vikunnar
(Spurt í Ólafsvík)
Svanfríður Þórðardóttir:
„Þegar verður bjart og fallegt
og allt fer að taka við sér, bæði
gróðurinn og ég.“
Olga Heiðarsdóttir:
„Krían, það er gaman þegar hún
kemur.“
Björn Hilmarsson:
„Sumarið er að nálgast, veðrið
að batna og birtan eykst.“
Jóhannes Ólafsson:
„Þegar allt lifnar við, bæði gróð-
urinn og ekki síst dýralífið.“
Ruth til liðs við ÍA
Rétt fyrir lok
f é l a g a s k i p t a -
gluggans hér-
lendis náðu Fylkir
og ÍA samkomu-
lagi um að Ruth
Þórðar Þórðar-
dóttir myndi spila
með ÍA á láns-
samningi í sumar.
Þetta eru nokkuð stór tíðindi fyrir ÍA því
Ruth er reynslumikill leikmaður í efstu
deild kvenna. Ruth hefur spilað allan
sinn feril með Fylki ef frá er talað stutt
stopp hjá Þrótti árið 2010. Leikir Ruthar
eru 206 talsins með Fylki og í þeim hefur
hún skorað 63 mörk. Ruth á án efa eftir
að hjálpa Skagakonum mikið sem ætla
sér aftur upp í deild þeirra bestu eftir
að hafa fallið úr henni í fyrra. Skagakon-
ur hafa farið vel af stað í sumar og hafa
unnið báða leiki sína í deildinni.
-bþb
Þrjár í landsliðs-
hópnum
VESTURLAND: Búið er að velja þá tólf
leikmenn sem munu skipa landslið Ís-
lands, hjá konum og körlum, á Smá-
þjóðaleikunum sem fara fram í San Mar-
ínó dagana 30. maí til 3. júní. Þetta eru
17. leikar smáríkja Evrópu sem haldnir
eru annað hvert ár. Síðustu leikar voru
haldnir hér á landi fyrir tveimur árum
þar sem bæði lið Íslands höfnuðu í öðru
sæti.
Landslið kvenna er skipað öllum þeim
bestu leikmönnum sem leikfærir eru. Af
Vesturlandi koma þrjár orkumiklar kon-
ur. Þar sem Gunnhildur Gunnardóttir er
nú barnshafandi verður hún fjarri góðu
gamni. Systir hennar Berglind Gunnars-
dóttir er í hópnum sem og Hildur Björg
Kjartansdóttir sem einnig kemur úr
Snæfelli. Þá er Sigrún Sjöfn Ámunda-
dóttir úr Skallagrími einnig í hópnum.
Enginn af vestlensku körlunum skipa
landsliðshópinn að þessu sinni.
-mm
ÍA mætir Gróttu í
bikarnum
KNATTSPYRNA: Dregið var í 16 liða
úrslitum Borgunarbikars karla í knatt-
spyrnu á föstudaginn. ÍA var eitt vest-
lenskra liða í pottinum, en Skagamenn
báru sigurorð af Fram í ótrúlegum leik
á Akranesi á miðvikudagskvöld, 4-3.
Skagamenn drógust á móti 1. deildar
liði Gróttu og mætast liðin á Akranesvelli
þriðjudaginn 30. maí næstkomandi. Bik-
armeistarar Vals taka á móti Stjörnunni,
en viðureignir 16 liða úrslita má nálgast í
heild sinni á heimasíðu KSÍ.
-kgk
Kári féll úr
bikarnum
KNATTSPYRNA: Káramenn hafa lokið
keppni í Borgunarbikar karla í knatt-
spyrnu að þessu sinni. Þeir mættu 1.
deildar liði Selfoss í 32. liða úrslitum
þriðjudaginn 16. maí og máttu sætta
sig við 3-2 tap. Alfi Conteh Lacalle kom
Selfyssingum yfir á 13. mínútu og tveim-
ur mínútum síðar bæti James Mack við
öðru marki heimamanna. Andri Júlíus-
son minnkaði muninn fyrir Kára á 21.
mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Á
61. mínútu jafnaði Kári með marki Arn-
órs Snæs Guðmundssonar. Það var síðan
Elvar Ingi Vignisson sem tryggði Selfyss-
ingum sigur þegar tvær mínútur lifðu
leiks. Lokatölur 3-2. Káramenn mega
hins vegar vel við una, því þeir leika
tveimur deildum neðar en Selfoss.
-kgk
Víkingur Ó. mætti liði Selfoss í
annarri umferð 1. deildar kvenna
í knattspyrnu á föstudagskvöld.
Leikið var á Ólafsvíkurvelli og
máttu heimakonur sætta sig við
tap, 0-4.
Gestirnir frá Selfossi áttu al-
gjöra draumabyrjun í leiknum.
Þær komust yfir strax á 11. mínútu
með marki frá Barbáru Sól Gísla-
dóttur og aðeins fjórum mínútum
síðar skoraði Karitas Tómasdótt-
ir. Selfoss komið tveimur mörkum
yfir og aðeins korter liðið af leikn-
um. Fleiri mörk voru hins vegar
ekki skoruð í fyrri hálfleik. Staðan
í hléinu því 0-2, Selfossi í vil.
Þegar 17 mínútur voru liðnar
af síðari hálfleiknum kom þriðja
mark leiksins. Kristrún Rut Ant-
onsdóttir skoraði og kom Selfossi í
3-0. Gestirnir létu síðan kné fylgja
kviði og bættu fjórða og síðasta
marki leiksins við aðeins þremur
mínútum síðar, á 65. mínútu og
þar var Barbára aftur á ferðinni.
Lokatölur á Ólafsvíkurvelli urðu
því 0-4 fyrir Selfoss.
Úrslit leiksins þýða að Víkingur
situr í 7. sæti deildarinnar með eitt
stig eftir fyrstu tvo leikina. Næst
leika Víkingskonur sunnudag-
inn 28. maí þegar liðið heimsækir
Þrótt R.
kgk/ Ljósm. Víkingur Ó.
Víkingskonur lágu fyrir Selfossi
Í síðustu viku fóru fram 32ja liða
úrslit í Borgunarbikar karla í knatt-
spyrnu. Aðeins ein viðureign var
milli liða í efstu deild, en Víking-
ur Ólafsvík fékk heimaleik gegn
Valsmönnum og fór sá leikur fram
á fimmtudagskvöld. Það var ljóst
fyrir leikinn að Víkingum beið erf-
itt verkefni í ljósi þess að Valsmenn
hafa verið það lið sem leikið hafa
hvað best í upphafi knattspyrnu-
sumarsins. Þrátt fyrir mikla baráttu
Víkinga lauk leiknum 1-0 Val í vil.
Mikið jafnræði var með liðunum
í leiknum og lítið um færi. Víking-
ar voru þéttir og gáfu Valsmönnum
fáa möguleika. Allt virtist stefna í
markalausan fyrri hálfleik en undir
lok hálfleiksins náði Andri Adolp-
hsson að koma boltanum í net-
ið eftir fyrirgjöf Bjarna Ólafs Ei-
ríkssonar. Þetta reyndist vera eina
markið sem skorað var í leiknum.
bþb
Víkingar luku leik í bikarnum
Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu. Ljósm. af.
Seinni hluti Íslandsmótsins í hóp-
fimleikum fór fram á Akureyri um
liðna helgi. Fimleikafélag Akra-
ness sendi sjö lið til keppni undir
merkjum ÍA. Allt tóku því um 80
ungar og efnilegar fimleikastúlkur
frá Akranesi þátt í mótinu. Kepptu
þær í 3., 4. og 5. flokki og stóðu sig
með stakri prýði.
Félagið sendi eitt lið til keppni
í 3. flokki C og hafnaði ÍA þar í 6.
sæti með 28.333 stig.
Tvö lið tóku þátt í 4. flokki C.
Þar bar ÍA-1 sigur úr býtum með
31.999 stig, en ÍA-2 hafnaði í 4.
sæti með 25.699 stig. ÍA-3 stóð
sömuleiðis uppi sem sigurvegari í
4. flokki D með 25.765 stig.
Í 5. flokki sendi ÍA þrjú lið til
keppni. Lið ÍA-1 hafnaði í 7. sæti
með 21.316 stig, ÍA-2 í 8. sæti með
19.683 stig og ÍA-3 fékk 18.583
stig og endaði í 9. sæti.
kgk/ Ljósm. FIMA.
Gerðu gott
mót á
Íslandsmóti í
hópfimleikum
Lið ÍA 1 sigraði í 4. flokki C.
Lið ÍA 3 stóð uppi sem sigurvegari í 4. flokki D.