Skessuhorn


Skessuhorn - 12.07.2017, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 12.07.2017, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 12. júlÍ 20172 Það er skammt stórra högga á milli í stór- viðburðum á sviði íþrótta í vikunni. Skaga- konurnar Hallbera Guðný Gísladóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir verða báðar í sviðs- ljósinu. Valdís Þóra, atvinnukylfingur hjá GL, mun fyrst Íslendinga spila á Opna bandaríska risamótinu í golfi og er þar um stórviðburð að ræða. Hallbera Guðný mun svo taka þátt í sínu öðru stórmóti fyrir hönd Íslands í knattspyrnu þegar EM kvenna hefst í Hollandi í næstu viku. Á morgun verður hæg breytileg átt, skýj- að með köflum og smáskúrir, hiti 10 til 17 stig. Á föstudag; suðaustan 5-15 m/s og rigning, hiti 10 til 18 stig. Á laugardag; suð- vestlæg átt 3-8 m/s og víða skúrir, hiti 7-13 stig. Á sunnudag er spáð norðvestlægri átt 5-13 m/s og stöku skúrum, hiti 7 til 17 stig. Á mánudag; vestlæg átt og þykknar upp, hiti 10 til 20 stig. Á þriðjudag er út- lit fyrir suðaustanátt með rigningu, hiti 10 til 20 stig. Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns: „Hvernig gistingu kýst þú helst þegar þú ferðast?” Flestir kjósa að gista á hóteli eða 37%, næst á eftir er tjaldsvæði með 24%, 18% segja gista hjá vinum og/eða ættingjum, 9% kjósa dýrari gistingu s.s. farfuglaheim- ili, 9% segja „Annað“ og aðeins 3% velja Airbnb íbúð. Í þessari viku er spurt: Ert þú hlynnt/ur því að nota lúpínu til landgræðslu? Háönn er í ferðaþjónustu á Íslandi um þessar mundir. Þar stendur fólk í ströngu við móttöku, leiðsögn og þjónustu við ferðafólk. Harðduglegt ferðaþjónustufólk er Vestlendingar vikunnar. Spurning vikunnar Til minnis Veðurhorfur Vestlendingur vikunnar Langveik stúlka í heimsókn AKRANES: Í maí setti Mar- grét Inga Gísladóttir stöðu- færslu á Facebook þar sem hún óskaði eftir hugmynd- um að ódýrum ferðum til að sýna erlendum gestum sem myndu dvelja á Íslandi 6.-9. júlí. Ástæða færslunnar var sú að langveik stúlka frá Banda- ríkjunum, Emily, ásamt móð- ur sinni var á leið til lands- ins. Emily er með sjaldgæfan sjúkdóm, Cystic Fibrosis, sem veldur því að lungun skemm- ast smám saman og er Emily langt leidd af sjúkdómnum. Eins árs dóttir Margrétar er með sama sjúkdóm og hefur Margrét kynnst ýmsum for- eldrum annarra barna með sama sjúkdóm í gegnum netið. Þegar Margrét komast að því að Emily hafði lengi dreymt um að komast til Íslands vildi hún hjálpa til við þá ferð með- an Emily væri enn ferðafær. Ferðaþjónustuaðilar víðs veg- ar að brugðust við færslu Mar- grétar og var Emily boðið í hinar ýmsu ferðir um landið. Einn af stöðunum sem Emily fór og skoðaði var Akranesviti ásamt móður sinni og systk- inum en vitann skoðuðu þau síðastliðinn föstudag. „Heim- sóknin gekk eins og í sögu og allir voru himinlifandi,“ segir Hilmar Sigvaldason, sem tók á móti hópnum. Á meðfylgj- andi mynd er Emily lengst til vinstri í grænni peysu. -bþb Malbikað í Melasveit HVALFJ.SV: Í síðustu viku var þjóðvegurinn í Melasveit í Borgarfirði, frá Fiskilæk og langleiðina í norður að Hafn- ará, lagður nýju bundnu slit- lagi. Meðan framkvæmdir stóðu yfir var annarri akrein lokað og umferð stýrt með ljósum. Vegfarendur þurftu því að bíða í nokkrar mínút- ur meðan umferð var til skipt- is hleypt í sitthvora áttina. Verkinu lauk á fimmtudags- kvöldið. Vegurinn í Melasveit var orðinn illa farinn af mikilli umferð og því var þessi fram- kvæmd mjög tímabær. Það var Hlaðbær-Colas sem annaðist verkið. Eftir þessa framkvæmd er vegurinn orðinn mun betri en áður og ástæða til að þakka verktökum og Vegagerð fyrir vel unnið verk. -mm Ágætu sveitungar, frændfólk og vinir Þann 22.júlí verð ég áttræður og að því tilefni tek ég á móti gestum í Félagsheimilinu Þinghamri á afmælisdaginn milli 14 og 17. Kaffiveitingar. Gjafir eru vinsamlegast afþakkaðar en ég vonast til að sjá sem flesta Með kveðju, Sigurjón á Glitstöðum Héraðsdómur Vesturlands hefur sýknað eiganda jarðarinnar Sól- heimatungu í Stafholtstungum í Borgarfirði af kröfu sem sveitar- félagið Borgarbyggð höfðaði til greiðslu ógreidds fjallskilagjalds. Í málinu var þess krafist að stefnda yrði gert að greiða fjallskilagjald Í síðustu viku var á Akranesi hald- ið vinabæjamót Norræna félagsins og Akraneskaupstaðar. Mótið sóttu 68 erlendir gestir á vegum norræna félagsins og vinabæja Akraness; Bamble í Noregi, Närpes í Finn- landi, Västervik í Svíþjóð og Tøn- der í Danmörku. Mótið var sett á Bókasafni Akraness á miðvikudag- inn og lauk með morgunverði á sunnudaginn. Skipulögð dagskrá var fyrir gestina alla helgina m.a. skoðunarferðir um Akranes og Borgarfjörð. „Við vildum ekki hafa dagskrána of þétta því þetta snýst um að fólk myndi og efli tengsl sín á milli. Við settumst því sam- an á kaffihúsi á fimmtudagskvöldi og styrktum böndin,“ segir Hjör- dís Hjartardóttir, formaður Nor- ræna félagsins og einn skipuleggj- anda mótsins. Á mótinu var nýr vegvísir afhjúp- aður á Akratorgi sem vísar á alla vina bæi Akraness ásamt nöfnum bæjanna. „Í öllum hinum bæjunum er að finna tákn um samstarf þess- ara bæja og það var komin tími á að Akranes fengi einnig tákn,“ segir Hjördís. Mótið þótti heppnast vel og voru gestirnir ánægðir með heim- sóknina, en dvalið var í heimahús- um milli dagskráratriða. „Það voru margir sem komu að því að hjálpa til við mótið og voru gestirnir ánægð- ir með hversu hjálpsamir og vina- legir Skagamenn voru. Gestirnir voru mjög ánægðir með hvernig til tókst,“ segir Hjördís sem telur að slík mót hafi mikla þýðingu. „Þetta eru líkir bæir að því leyti að veru- leiki þeirra er ekki ósvipaður okk- ar. Þeir eru að fást við það sama og við. Við getum lært mikið af hvor öðrum og einnig unnið saman að því að bæta okkur. Ég tel að hægt sé að efla samstarfið enn frekar,“ segir Hjördís og nefnir í því sam- hengi að um ellefu manns í ljós- myndaklúbbi í Närpes hafi verið hér á landi og séu í samskiptum við ljósmyndaklúbbinn Vitann. ljós- myndaklúbburinn kom til landsins á sunnudaginn og opnaði Vitinn fyrir þeim Sementsverksmiðjuna á mánudaginn þar sem klúbbfélagar mynduðu saman. Í dag og út vik- una verður ljósmyndaklúbburinn frá Närpes á Snæfellsnesi og stefnir Vitinn að hitta klúbbinn aftur þar. „Það eru ýmsir möguleikar til að styrkja samstarfið,“ segir Hjördís að endingu. bþb Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraness, og Ólína Jónsdóttir, ötull félags- maður Norræna félagsins á Akranesi í gegnum árin, afhjúpuðu vegvísinn á Akratorgi. Vel heppnað vinabæjamót á Akranesi Jarðareigandi sýknaður af kröfu um greiðslu fjallskila vegna jarðarinnar fyrir árin 2012 til 2014, sem lagt hafði verið á sam- kvæmt heimild í lögum um afrétt- armálefni, fjallskil og fleira. Fjall- skilanefnd Borgarhrepps, Stafholts- tungna og Norðurárdals, sem fer með fjallskilamál á Bjarnardal í um- boði stefnanda, lagði fjallskilagjald- ið á eiganda jarðarinnar. Í stefnu kemur fram að fjallskilanefndin hafi nýtt sér heimild í fjallskilasam- þykkt fyrir Mýrasýslu til að leggja hluta fjallskila á landverð jarða, þ.e. fasteignamat lands, og hafi sam- kvæmt því verið lagt á stefnda fjall- skilagjald fyrir umrædd ár, alls um 150 þúsund krónur fyrir umrædd þrjú ár. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að sveitarfélaginu væri ekki heimilt að innheimta fjallskil af fjárlausri jörðinni með þessum hætti, en ekki hefur verið búið þar með fé síðan 1998. Núverandi eig- andi keypti jörðina 2012. Gera má ráð fyrir að ef dómur þessi stend- ur, verði um fordæmisgefandi nið- urstöðu að ræða, en víða um land hafa jarðir farið úr ábúð. Ekki ligg- ur fyrir hvort Borgarbyggð muni láta málið ganga áfram til æðra dómstigs. Í niðurstöðu héraðsdóms seg- ir m.a. að sveitarfélaginu sé ekki heimilt að krefja jarðareiganda um greiðslu fyrir fleiri þætti en vinnu og kostnað við fjallskil. „Óumdeilt er að stefndi stundar ekki fjárbú- skap á jörðinni Sólheimatungu og telst því ekki fjallskilaskyldur að- ili.“ Síðar í niðurstöðu sinni segir í dómnum: „Af þessu leiðir og að heildargjaldtaka má ekki vera um- fram þann kostnað sem fallið hef- ur til við þau fjallskil sem gjaldtak- an á að mæta. Enda þótt stefnandi hafi ekki gert skýrlega grein fyrir því við rekstur máls þessa hér fyr- ir dómi hver sá kostnaður var sem umræddri gjaldtöku var ætlað að mæta verður þó ráðið af stefnu að þar hafi meðal annars verið um að ræða viðhaldskostnað vegna girð- inga og rétta. Var þetta og stað- fest með framburði formanns fjall- skilanefndar Borgarhrepps, Staf- holtstungna og Norðurárdals við aðalmeðferð málsins, þar sem hann greindi frá því að gjald þetta hefði ekki verið lagt á til greiðslu á smöl- unarkostnaði heldur til að mæta kostnaði vegna viðhalds á mann- virkjum ýmiss konar, s.s. girðing- um, réttum og leitarmannakofum. Að virtu framangreindu verður að fallast á það með stefnda að hin umdeilda álagning fjallskilagjalds á stefnda eigi sér ekki fullnægjandi lagastoð í 42. gr. laga nr. 6/1986. Verður því þegar af þeirri ástæðu að sýkna stefnda af kröfum stefn- anda.“ Borgarbyggð var gert að greiða eiganda Sólheimatungu 900.000 krónur í málskostnað. mm Sólheimatunga og Sigmundarnes í Stafholtstungum. Ljósm. Mats Wibe Lund.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.