Skessuhorn


Skessuhorn - 12.07.2017, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 12.07.2017, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 12. júlÍ 201722 Pennagrein Nú fyrir skömmu varð hræðilegt slys í þessu fallega fjalli. Og við sem næst búum fyllumst sorg því feg- urð á ekki að vera banvæn. Því er tímabært að setjast niður og íhuga þær gríðarlegu breytingar sem hafa átt sér stað í nágrenni þessa fjalls og taka um þær umræðu. Sú um- ræða þarf að byggjast á skilningi sem stefnir málum í farveg sátt- ar með vitrænni umræðu. Til þess að slík umræða skili árangri þarf að fara fram mat á stöðunni og á þeim grundvelli að varpa fram hugmynd- um að lausnum. Við lestur þessa greinarkorns vakna eflaust spurn- ingar um hvað mér komi þetta við og hvort ég hafi eitthvert vit á við- fangsefninu. Það er eðlilegt, en að opna umræðuna getur leitt til sam- tals þar sem allir tala út frá einum punkti hvort sem þeir eru sammála eða ekki. Fyrst vil ég líta á þá hagsmuni sem þarna eru í húfi. Þar eru auð- vitað í fyrsta sæti hagsmunir land- eigendanna. Fólksins sem átti þar griðastað í fögru umhverfi og nýtti sér hin ýmsu gæði til að auðga líf sitt. Gæðalíf er það sem fólk reynir að skapa sér hvort sem það er að rölta um á túnum forfeðranna eða nytja landið til tómstunda á annan hátt svo sem með búfjárhaldi. Þetta fólk er ekki bara eigendur heldur vörslufólk lands og náttúru. Með innrás ferðamanna eru þessi gæði verulega skert. Aðrir hagsmunir eru svo þau gæði sem íbúar hafa notið átölu- laust með rölti um fallega sand- strönd, byggingu sandkastala, að tína skeljar og vaða í sjónum þeg- ar hann fellur upp á heitan sandinn á fögrum sumardegi. Þessi gæði hafa íbúum staðið til boða með börnunum í gleði. Og fræðslan og tengingin við náttúruna er mikil- væg öllum. Því öll elskum við og virðum þetta frábæra svæði. Síðan koma hagsmunir sem eru beint fjárhagslegir og snúa að ört vaxandi atvinnugrein, ferðaþjón- ustu. Þeir hagsmunir snúa að fjölda fyrirtækja og starfsmanna þeirra og ekki síst heildartekjum sveitar- félagsins. Fjöldi gisti- og veitinga- staða njóta hér af og ekki síður njóta allir íbúar með því að ýmis þjónustustarfsemi blómstrar vegna mikillar fjölgunar viðskiptavina. Þetta hvetur til meiri uppbygging- ar og áhrifin eru uppbygging svæð- is sem hafði búið við kyrrstöðu. loks eru það hagsmunir ferða- mannsins sem kominn er til landsins til að njóta sérstöðu þess og einstakrar fegurðar. Þar er Kirkjufell og svæðið þar í kring eitt af stóru kennileitum lands- ins. En hvernig má þetta allt fara saman? Það er spurningin sem við verðum að svara. Ef við leggjum gott eitt til og leggjum okkur eft- ir því að hlusta á mörg sjónarmið getum við náð niðurstöðu sem er ásættanleg fyrir alla. Fyrir lífs- gæði eigendanna, fyrir náttúru svæðisins og fyrir upplifun heima- fólks og gesta. En sporin hræða, við sáum ekki fyrir hver þróunin yrði og við höfum gert mistök. Með færslu þjóðvegarins yfir vaðalinn var allt í einu opnað fyrir aðgengi að þeim perlum sem þarna er að finna. Staðurinn er kynntur út um allan heim, í gegnum veraldarvefinn sem einn sá fegursti á jörðinni. Myndefni sem er einstakt og verður heims- frægt á örskömmum tíma. Ferða- menn fara að koma og það þarf að bregðast við. Viðbrögðin voru röng vegna þess að við sáum ekki fjölgunina fyrir. Viðbrögðin voru röng því menn áttuðu sig ekki á því hverju var verið að sækjast eftir. Gerð bílastæðis á röngum stað þýddi að allir þurftu að fara upp fyrir fossinn og sömu leið til baka. Gangandi umferð var því tvöfölduð. En hvað getum við gert? Þetta ástand mun aðeins breytast með aðgerðum sem hlífa landi og þeim lífsgæðum sem fólkið býr við og nefnd eru hér að framan. Eftir að hafa rýnt í myndir sem birtar hafa verið og staðsett ljós- myndarann út frá þeim er mín tillaga að stefnt verði að nýju að- komusvæði sunnan við vaðalinn á svæði sem lítt er nýtt og hef- ur nú þegar verið talsvert rask- að. Svæðið verði girt af frá reið- vegi og elsti þjóðvegurinn verði byggður upp sem gönguleið. Ef þessi leið verður farin verð- ur dvalartími á svæðinu styttur verulega og aðkoma auðveld- uð mjög. Þessi leið mundi einn- ig verða til þess að minnka álag á það svæði sem nýtt er af land- eigendum og líklegt til að skapa frið um svæðið. Á meðfylgjandi mynd set ég inn svæðið sem ég nefni hér ásamt örvum um helstu sjónarhorn ljósmyndara. Ég til- greini ekki þau sjónarhorn þar sem ljósmyndarar eru ekki stadd- ir á svæðinu eins og frá Hellna- felli og frá Grundarfirði annars- staðar. Um Kirkjufellið sjálft og för fólks á það verður að setja strang- ar reglur og jafnvel að banna upp- göngu án leiðsagnar eða leyfis. Þar erum við hins vegar komin að umræðu þar sem sveitarstjórn verður að kanna lagaleg skilyrði og leita lausna með landeigend- um og lögregluyfirvöldum. Það er von mín að þessi grein- arstúfur verði gagnlegur í um- ræðunni og hvetji til þess að málin verði skoðuð út frá vitleg- um forsendum. Við verðum að bregðast við, tala saman og leita lausna sem eru öllum hagfeldar. Ástandið er staðreynd. Ingi Hans Jónsson, Grundar- firði. Kirkjufell ­ Verkefni eða vandamál? Ingi Hans Jónsson Kirkjufell og Kirkjufellsfoss er í ýmsum ferðaritum nefnd sem fegursta svæði heims. Á meðfylgjandi mynd er sett inn svæðið sem greinarhöfundur nefnir ásamt örvum sem sýna helstu sjónarhorn ljósmyndara.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.