Skessuhorn


Skessuhorn - 12.07.2017, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 12.07.2017, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 12. júlÍ 201728 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Leiguakstur á Akranesi sem og á öllu Vesturlandi Ari Grétar Björnsson Sími: 864-2100 Email : taxar@simnet.is Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30 Sími 437-2030 - v.v@simnet.is DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK LAUSNIN HÖFÐASELI Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00 alla virka daga Kokteilakeppnin Stykkishólmur Cocktail Weekend fór fram í annað skipti um liðna helgi. Hátíðin gekk vel og var iðandi mannlíf á götum og börum bæjarins þar sem fólk gekk á milli og smakkaði á kokteil- um í leit að þeim besta. Sex barir tóku þátt í keppninni og hönnuðu þeir allir kokteil í tilefni helgarinn- ar; Fosshótel Stykkishólmur, Skúr- inn, Narfeyrarstofa, Hótel Egilsen, Slowly Kaffi og Sjávarpakkhús- ið. Hátíðinni var slitið á Fosshót- el Stykkishólmi á laugardagskvöld- inu og þar var sigurvegari keppn- innar krýndur. Það var Narfeyrar- stofa sem hlaut titilinn „Kokteil- bar Stykkishólms 2017.“ Sigurkok- teillinn inniheldur hundasúrukrap- ís, jarðarber og romm og ber nafn- ið „Frú Möller“. Skipuleggjendur hátíðarinnar, þeir Ívar Sindri Karv- elsson og jón Viðar Pálsson, voru hæstánægðir með helgina. „Keppnin kom nú til bæði vegna þess að við höfum báðir mikinn áhuga á kokteilagerð og bjuggum saman og störfuðum í london við það fyrir nokkrum árum. Einnig vegna þess að okkur leiddist pínu- lítið og vildum bæta enn frek- ar við lífið hérna í bænum,“ segir jón Viðar og bætir við að keppnin væri einnig hvatning fyrir fólk til að prófa eitthvað nýtt, annað en bjór og einfaldari drykki. „Fólk er oft svolítið hrætt við að prófa nýja hluti, sérstaklega þar sem kokteilar eru ekki ódýrir hérna á Íslandi og við vildum hafa þarna marga í boði á mjög góðu verði og það var að ganga mjög vel. langflestir sýnd- ust mér smakka á öllum stöðum.“ jón Viðar segir helgina hafa geng- ið vonum framar og bendir á að allar athugasemdir séu velkomnar í gegnum Facebook síðu hátíðar- innar. Athugasemdir gesta frá því í fyrra auðvelduðu skipulagningu og umgjörð hátíðarinnar í ár og eru þeir jón Viðar og Ívar þakklátir fyr- ir það. Farandbikarinn sem hann- aður var fyrir keppnina í ár er með ártal til ársins 2025 og borða sem merktir verða sigurvegara hvers árs. Það er því ljóst að hátíðin er komin til að vera. jse Narfeyrarstofa hlaut titilinn Kokteilbar Stykkishólms 2017 Skipuleggjendur hátíðarinnar Jón Viðar (lengst til hægri) og Ívar Sindri (lengst til vinstri). Á milli þeirra eru starfsmenn Narfeyrarstofu þau Þorbergur, Tinni og Margrét og við hlið hennar er Benedikt Óskarsson, einn af meðlimum dómnefndar. Framlag Sjávarpakkhússins til keppn- inar, „En llamas.“ Hótel Egilsen bauð uppá „Lady Mar- malede“ eða „Marmelafði.“ Tinni starfsmaður Narfeyrarstofu með sigurkokteilinn og verðlaunagripinn, farandbikar hannaðan af Siggu í Leir 7. Stelpurnar á Slowly Kaffi með sinn kokteil; „Lautarferð.“ Addi og Svenni á Skúrnum kalla sinn kokteil „Sveitta gangavörðinn.“ Fosshótel Stykkishólmur hannaði þennan kokteil sem fékk nafnið „Katla.“

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.