Skessuhorn


Skessuhorn - 12.07.2017, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 12.07.2017, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 12. júlÍ 201720 Á Vesturlandi er ótalmargt á döfinni sem tengist menningu og listum í sumar. Öflugt velmenntað fólk kemur með nýja sýn og áherslur í menningarlíf Vesturlands sem státar af ein- stökum menningararfi. Þá er einnig gaman að fá tækifæri til þess að hlusta á okkar fólk, sem alla jafnan býr erlendis við störf og nám. Guðrún Ingimarsdóttir og Elmar Gilbertsson koma á heimaslóðir með píanóleikaranum Önnu Guðnýju Guð- mundsdóttur. Þá eru einnig ungir listamenn sem eru að ljúka framhaldsnámi í tónlist erlendis sem halda tónleika á heima- slóðum. Reynir Hauksson gítarleikari hefur nýlokið tónleika- röð á Vesturlandi, Sigrún Björk Sævarsdóttir óperusöngkona mun halda tónleika í Stykkishólmskirkju í haust og Unn- steinssons Quartet sem Örn Ingi Unnsteinsson leiðir heldur tónleika í Grundarfirði og víða á Snæfellsnesi. Það hefur verið áhugavert að fylgjast með Snorrastofu í Reykholti í gegnum árin, staður sögulegrar menningar og framundan er verið að skipuleggja mikil hátíðarhöld. Reyk- holtskirkja gegnir miklu menningarhlutverki. Þar fara fram fjölbreyttir tónlistarviðburðir enda hljómburður hennar ein- stakur. Orgel kirkjunnar sögulegt og hljómfagurt. Þá eru steindir gluggar kirkjunnar einstök listaverk eftir Valgerði Bergsdóttur. Framundan í Reykholti eru tvær stórhátíðar í júlímánuði; Snorrahátíð 15. júlí og Reykholts tónlistarhátíðin 28.- 30. júlí. listasafn Páls Guðmundssonar á Húsafelli er sannarlega gaman að heimsækja, einstök list Páls sem tengist oft sveit- ungum hans og Húsafelli sterkum böndum. Uppbyggingin á Húsafelli og nágrenni er mjög mikil og ótal ævintýri í menn- ingartengdri ferðaþjónustu að skapast þar. Í Dalasýslu, hefur Minjavernd gert einstakt samkomulag við ríkissjóð um endurreisn bygginga og menningarlandslags í Ólafsdal við Gilsfjörð. Í Ólafsdal hefur Ólafsdalsfélagið hald- ið Ólafsdalshátíð á sumrin og rekið kaffihús. Mjög skemmti- leg listsýning er í húsinu í sumar, Dalir og hólar 2017, þar sem allir þátttakendur sýna list sína, en einnig eru listsýningar vítt og breitt um „Dali og hóla“. Sýningarstjórar eru listamenn- irnir Þóra Sigurðardóttir (Nýp á Skarðsströnd) og Sólveig Aðalsteinsdóttir. Á Nýp er fræðasetur og aðstaða fyrir lista- menn að vinna að skapandi störfum, hönnun og myndlist. Í Stykkishólmi er ein fallegasta vinnustofa á landinu; Tang og Ris, en þar verður í sumar listsýningin Dirrindí, samstarfs- verkefni eigandans Ingibjargar H. Ágústsdóttur og Sigríðar Erlu Gunnarsdóttur, sem einnig rekur vinnustofu og listsýn- ingarsal í Stykkishólmi. Verkstæði hennar leir-7 og verkstæði láru Gunnarsdóttur sem heitir Smáfuglar, er sannarlega vert að heimsækja. Nýr listsýningarsalur hefur verið tekinn í notk- un í Stykkishólmskirkju. Haraldur jónsson listamaður er með listsýningu í listasal kirkjunnar, en hann er sonur jóns Har- aldssonar arkitekts kirkjunnar. Sýningin stendur yfir til 20. ágúst. Sýningar eru einnig í Norska Húsinu, Æðarsafninu og Eldfjallasafninu og í Vatnasafni eru listaverk Roni Horn. Frystiklefann í Rifi í Snæfellsbæ þarf ekki að kynna, en þar hefur verið einstök uppbygging þar sem Kári Viðarsson hefur eflt menningarlíf allra aldurshópa á svæðinu. Árið 2015 fékk Frystiklefinn Eyrarrósina, en það er viðurkenning sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðis- ins. Þar er stöðug þróun menningarverkefna. Nú stendur yfir leiksýningin journey to the center of the earth og er hún á ensku. Auk þess er fjöldi öflugra verkefna og viðburða á dag- skra í Rifi í sumar; leiksýningar, gesta-leiksýningar og tónlist- arhátíðin Rafmagnslaust. Í Borgarnesi og nágrenni verður í sumar Plan B listsýning ungra listamanna af svæðinu sem skipuleggja listahátíð nú í annað sinn í samstarfi við listamenn víða að úr heiminum. Hátíðin verður haldin helgina 11.-13. ágúst á þremur stöð- um í Borgarnesi en einnig rétt fyrir utan Borgarnes í Studio Mjólk í Einarsnesi. Tónlist, innsetningar, gjörningar og list- sýningar fara þar fram. Á Akranesi er fjölmennasta byggðin á Vesturlandi og þar er blómstrandi menning. Allt frá keltneskri sýningu á Safnasvæð- inu, lifandi safnaverkefnum svo sem eldsmíði og brennslu í rakúofnum. Kvikmyndahátíðir er í Bíóhöllinni. Þá má nefna tónlistarviðburði svo sem tónleika Kalmansfélagsins, fiðlu- sveitarinnar Slitinna strengja og jasshátíðir. Auk þess metnað- arfulla viðburði í bókasafni bæjarins og allt til einstakra verk- efna tónlistarskóla, skóla og leikskóla sem skapa framtíðar listamenn Vesturlands. Í haust verður á Akranesi barnamenn- ingarhátíð í samstarfi við Hvalfjarðarsveit. En þar er ekki bara verið að vinna vel að listsköpun yngra fólksins, heldur er þar árlega valinn listamaður Akraness sem er virðingarvert. Til hamingju Kolbrún Kjarval listamaður Akraness 2017. Elísabet Haraldsdóttir, menningarfulltrúi. Ljósmyndir úr safni Skessuhorns. Tónlistarsveitin Slitnir Strengir hefur getið sér gott orð á Akranesi og um allt land. Ljósm. Ómar B. Lárusson. Stiklur um menningarstarf á Vesturlandi í sumar Guðrún Ingimarsdóttir og Elmar Gilbertsson munu koma fram á heimaslóðum með píanóleikaranum Önnu Guðnýju Guðmunds- dóttur. „Uppbyggingin á Húsafelli og nágrenni er mjög mikil og ótal ævintýri í menningartengdri ferðaþjónustu að skapast þar.“ Hér eru tveir hags- leiks- og listamenn. Unnsteinn Elíasson hleðslumeistari og Páll Guðmundsson á Húsafelli. Mjög skemmtileg listsýning er í gamla skólahúsinu í Ólafsdal í sumar, Dalir og hólar 2017.“ Fjölbreyttar listsýningar eru í Stykkishólmi allt árið og þangað er vert að koma. Í Frystiklefanum í Rifi hefur verið einstök uppbygging þar sem Kári Viðarsson hefur eflt menningarlíf allra aldurshópa á svæðinu. Verk sem listakonan Katorina Pling vann að í tengslum við listsýningu ungs fólks á hátíðinn Plan B í Borgarnesi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.