Skessuhorn - 12.07.2017, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 12. júlÍ 201720
Á Vesturlandi er ótalmargt á döfinni sem tengist menningu
og listum í sumar. Öflugt velmenntað fólk kemur með nýja
sýn og áherslur í menningarlíf Vesturlands sem státar af ein-
stökum menningararfi. Þá er einnig gaman að fá tækifæri til
þess að hlusta á okkar fólk, sem alla jafnan býr erlendis við
störf og nám.
Guðrún Ingimarsdóttir og Elmar Gilbertsson koma á
heimaslóðir með píanóleikaranum Önnu Guðnýju Guð-
mundsdóttur. Þá eru einnig ungir listamenn sem eru að ljúka
framhaldsnámi í tónlist erlendis sem halda tónleika á heima-
slóðum. Reynir Hauksson gítarleikari hefur nýlokið tónleika-
röð á Vesturlandi, Sigrún Björk Sævarsdóttir óperusöngkona
mun halda tónleika í Stykkishólmskirkju í haust og Unn-
steinssons Quartet sem Örn Ingi Unnsteinsson leiðir heldur
tónleika í Grundarfirði og víða á Snæfellsnesi.
Það hefur verið áhugavert að fylgjast með Snorrastofu í
Reykholti í gegnum árin, staður sögulegrar menningar og
framundan er verið að skipuleggja mikil hátíðarhöld. Reyk-
holtskirkja gegnir miklu menningarhlutverki. Þar fara fram
fjölbreyttir tónlistarviðburðir enda hljómburður hennar ein-
stakur. Orgel kirkjunnar sögulegt og hljómfagurt. Þá eru
steindir gluggar kirkjunnar einstök listaverk eftir Valgerði
Bergsdóttur. Framundan í Reykholti eru tvær stórhátíðar í
júlímánuði; Snorrahátíð 15. júlí og Reykholts tónlistarhátíðin
28.- 30. júlí.
listasafn Páls Guðmundssonar á Húsafelli er sannarlega
gaman að heimsækja, einstök list Páls sem tengist oft sveit-
ungum hans og Húsafelli sterkum böndum. Uppbyggingin á
Húsafelli og nágrenni er mjög mikil og ótal ævintýri í menn-
ingartengdri ferðaþjónustu að skapast þar.
Í Dalasýslu, hefur Minjavernd gert einstakt samkomulag
við ríkissjóð um endurreisn bygginga og menningarlandslags
í Ólafsdal við Gilsfjörð. Í Ólafsdal hefur Ólafsdalsfélagið hald-
ið Ólafsdalshátíð á sumrin og rekið kaffihús. Mjög skemmti-
leg listsýning er í húsinu í sumar, Dalir og hólar 2017, þar sem
allir þátttakendur sýna list sína, en einnig eru listsýningar vítt
og breitt um „Dali og hóla“. Sýningarstjórar eru listamenn-
irnir Þóra Sigurðardóttir (Nýp á Skarðsströnd) og Sólveig
Aðalsteinsdóttir. Á Nýp er fræðasetur og aðstaða fyrir lista-
menn að vinna að skapandi störfum, hönnun og myndlist.
Í Stykkishólmi er ein fallegasta vinnustofa á landinu; Tang
og Ris, en þar verður í sumar listsýningin Dirrindí, samstarfs-
verkefni eigandans Ingibjargar H. Ágústsdóttur og Sigríðar
Erlu Gunnarsdóttur, sem einnig rekur vinnustofu og listsýn-
ingarsal í Stykkishólmi. Verkstæði hennar leir-7 og verkstæði
láru Gunnarsdóttur sem heitir Smáfuglar, er sannarlega vert
að heimsækja. Nýr listsýningarsalur hefur verið tekinn í notk-
un í Stykkishólmskirkju. Haraldur jónsson listamaður er með
listsýningu í listasal kirkjunnar, en hann er sonur jóns Har-
aldssonar arkitekts kirkjunnar. Sýningin stendur yfir til 20.
ágúst. Sýningar eru einnig í Norska Húsinu, Æðarsafninu og
Eldfjallasafninu og í Vatnasafni eru listaverk Roni Horn.
Frystiklefann í Rifi í Snæfellsbæ þarf ekki að kynna, en þar
hefur verið einstök uppbygging þar sem Kári Viðarsson hefur
eflt menningarlíf allra aldurshópa á svæðinu. Árið 2015 fékk
Frystiklefinn Eyrarrósina, en það er viðurkenning sem veitt er
framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðis-
ins. Þar er stöðug þróun menningarverkefna. Nú stendur yfir
leiksýningin journey to the center of the earth og er hún á
ensku. Auk þess er fjöldi öflugra verkefna og viðburða á dag-
skra í Rifi í sumar; leiksýningar, gesta-leiksýningar og tónlist-
arhátíðin Rafmagnslaust.
Í Borgarnesi og nágrenni verður í sumar Plan B listsýning
ungra listamanna af svæðinu sem skipuleggja listahátíð nú í
annað sinn í samstarfi við listamenn víða að úr heiminum.
Hátíðin verður haldin helgina 11.-13. ágúst á þremur stöð-
um í Borgarnesi en einnig rétt fyrir utan Borgarnes í Studio
Mjólk í Einarsnesi. Tónlist, innsetningar, gjörningar og list-
sýningar fara þar fram.
Á Akranesi er fjölmennasta byggðin á Vesturlandi og þar er
blómstrandi menning. Allt frá keltneskri sýningu á Safnasvæð-
inu, lifandi safnaverkefnum svo sem eldsmíði og brennslu í
rakúofnum. Kvikmyndahátíðir er í Bíóhöllinni. Þá má nefna
tónlistarviðburði svo sem tónleika Kalmansfélagsins, fiðlu-
sveitarinnar Slitinna strengja og jasshátíðir. Auk þess metnað-
arfulla viðburði í bókasafni bæjarins og allt til einstakra verk-
efna tónlistarskóla, skóla og leikskóla sem skapa framtíðar
listamenn Vesturlands. Í haust verður á Akranesi barnamenn-
ingarhátíð í samstarfi við Hvalfjarðarsveit. En þar er ekki bara
verið að vinna vel að listsköpun yngra fólksins, heldur er þar
árlega valinn listamaður Akraness sem er virðingarvert. Til
hamingju Kolbrún Kjarval listamaður Akraness 2017.
Elísabet Haraldsdóttir, menningarfulltrúi.
Ljósmyndir úr safni Skessuhorns.
Tónlistarsveitin Slitnir Strengir hefur getið sér gott orð á Akranesi
og um allt land. Ljósm. Ómar B. Lárusson.
Stiklur um menningarstarf á Vesturlandi í sumar
Guðrún Ingimarsdóttir og Elmar Gilbertsson munu koma fram á
heimaslóðum með píanóleikaranum Önnu Guðnýju Guðmunds-
dóttur.
„Uppbyggingin á Húsafelli og nágrenni er mjög mikil og ótal ævintýri í menningartengdri ferðaþjónustu að skapast þar.“ Hér eru tveir hags-
leiks- og listamenn. Unnsteinn Elíasson hleðslumeistari og Páll Guðmundsson á Húsafelli.
Mjög skemmtileg listsýning er í gamla skólahúsinu í Ólafsdal í
sumar, Dalir og hólar 2017.“
Fjölbreyttar listsýningar eru í Stykkishólmi allt árið og þangað er
vert að koma.
Í Frystiklefanum í Rifi hefur verið einstök uppbygging þar sem Kári
Viðarsson hefur eflt menningarlíf allra aldurshópa á svæðinu.
Verk sem listakonan Katorina Pling vann að í tengslum við
listsýningu ungs fólks á hátíðinn Plan B í Borgarnesi.