Skessuhorn - 12.07.2017, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 12. júlÍ 20178
Banaslys í hlíð
um Kirkjufells
GRUNDARFj: Pólsk kona
hrapaði til bana í hlíðum
Kirkjufells við Grundar-
fjörð síðastliðinn föstudag.
Mikill viðbúnaður björg-
unarsveita og viðbragðs-
aðila var vegna slyssins.
Áhöfn þyrlu landhelgis-
gæslunnar tóks að hífa kon-
una og flutti á landspítal-
ann í Reykjavík. Þar var
hún úrskurðuð látin. Kon-
an hét Agata Bornikowski
fædd árið 1974. Hún var á
ferðalagi hér á landi ásamt
eiginmanni og öðru pari.
Slysstaðurinn er í sunnan-
verðum hlíðum Kirkjufells.
-mm/ ljósm. sk.
Emil ráðinn yfir
sálfræðingur HVE
VESTURlAND: Emil
Einarsson hefur verið ráð-
inn í starf yfirsálfræðings
Heilbrigðisstofnunar Vest-
urlands. Emil starfaði áður
sem sálfræðingur Félags-
og skólaþjónustu Snæfells-
ness. -mm
Aflatölur
fyrir
Vesturland
Tölur (í kílóum) frá
Fiskistofu:
Akranes, 14 bátar.
Heildarlöndun:
57.868 kg.
Mestur afli: Ebbi AK:
29.564 kg í 4 löndunum.
Arnarstapi, 16 bátar.
Heildarlöndun:
32.091 kg.
Mestur afli: Bárður SH:
10.297 kg í 3 róðrum.
Grundarfjörður,
14 bátar.
Heildarlöndun:
87.313 kg.
Mestur afli: Steinunn SF:
58.737 kg í einni löndun.
Ólafsvík, 31 bátur.
Heildarlöndun: 87.853 kg.
Mestur afli: Egill SH:
16.809 kg í einum róðri.
Rif, 25 bátar.
Heildarlöndun: 161.951 kg.
Mestur afli: Örvar SH:
50.439 kg í einni löndun.
Stykkishólmur, 37 bátar.
Heildarlöndun: 121.368 kg.
Mestur afli: Íris SH:
7.529 kg í 5 róðrum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Steinunn SF - GRU:
58.737 kg. 1. júlí
2. Örvar SH - RIF: 50.439
kg. 1. júlí.
3. Rifsnes SH - RIF:
49.579 kg. 4. júlí.
4. Egill SH - ÓlA: 16.809
kg. 4. júlí.
5. Klettur ÍS - AKR:
12.551 kg. 4. júlí.
-kgk
Íbúar í Hlíðarbæ á Hvalfjarðar-
strönd segjast langþreyttir á sí-
felldu hundagái sem er í hverf-
inu. Kristín Sigfúsdóttir, einn
íbúi á svæðinu birti myndband á
íbúasíðu Hvalfjarðarsveitar í lið-
inni viku. Í því má heyra mikið
hundgá. Eigandi hundanna, Páll
Tryggvi Karlsson hundaþjálfari,
segir að hann hafi reynt að koma
til móts við íbúa í hverfinu í gegn-
um árin. Hann hafi til dæmis fært
búr hundanna niður fyrir húsið
sem hann býr í, svo minna heyr-
ist í þeim.
Sleðahundar
með öll leyfi
Hundarnir eru af tegundinni
Alaskan Husky og eru þeir aldir til
að keppa í hlaupum og dragkeppn-
um sleðahunda. Alaskan Husky er
minni tegund en Siberian Husky,
sem er þekktari hér á landi. „Þetta
eru keppnishundar,“ segir Páll og
bætir við að hundarnir séu í við-
urkenndri girðingu sem sé tveggja
metra há. Þeir hafi auk þess aldrei
náð að stökkva yfir girðinguna og
honum finnst ólíklegt að það geti
nokkurn tímann gerst. Páll segir
að hann reyni að takmarka ónæð-
ið af hundunum, sem eru alls sjö í
girðingunni hjá honum núna. Þeir
góli mest þegar hann gefi þeim að
éta eða tekur einhverja þeirra út til
æfinga. Hann reynir að haga því
þannig að það sé gert þegar sem
fæstir eru heima í hverfinu.
Ný hundasamþykkt
frá 2016
Hlíðarbær flokkast sem íbúahverfi í
dreifbýli. Árið 2016 gekk í gildi ný
hundasamþykkt sem heimilar íbú-
um sveitarfélagsins að halda þrjá
hunda á heimili. Hundar Páls voru
skráðir áður en samþykktin tók gildi
og nær því ekki yfir aðstæðurnar.
Hundaeftirlitsmaður Hvalfjarðar-
sveitar segir ekkert athugavert við
aðbúnað hundanna og eigandinn
sé með öll tilskilin leyfi. Hann geti
því lítið aðhafst þrátt fyrir kvartan-
ir nágranna. Matvælastofnun hefur
einnig tekið út aðbúnað hundanna
og samkvæmt þeirri úttekt er fylgt
öllum reglum og stöðlum. Páll hef-
ur því öll tilskilin leyfi fyrir hund-
unum og var með leyfi frá Hval-
fjarðarsveit fyrir þeim þegar hann
flutti inn í hverfið á sínum tíma.
Leikvöllur í nágrenni
við hundana
Íbúar í hverfinu hafa reglulega sent
kvartanir bæði til hundaeftirlits-
mannsins og sveitastjórnar vegna
ónæðis frá hundunum. „Við búum
hérna af því við viljum frið og ró.
Sú ró og sá friður var rofinn þegar
þessir hundar komu í hverfið,“ seg-
ir Þórdís Reynisdóttir, íbúi í Hlíð-
arbæ í samtali við Skessuhorn. „Við
erum í raun og veru bara að mót-
mæla þessum hávaða.“ Hún bætir
þó við að ónæðið sé ekki stöðugt.
Það sé mest þegar hundarnir fái að
éta og þegar þeir fari út til æfinga.
En það komi einnig fyrir að þeir
gjammi mikið þegar eigandinn er
ekki heima og þegar þeir heyra í bíl
hans þegar hann er á leiðinni heim.
„Mér finnst mjög skrýtið að þetta
skuli vera leyft í íbúðahverfi,“ segir
Kristín sem segir að hún sé hrædd
við hundana og að hún hafi orðið
skelfingu lostin eftir göngutúrinn
þegar hún tók myndbandið.
Kristín og Þórdís segja báðar að
fólk veigri sér við að nýta leikvöll-
inn í hverfinu. Ein lóð sé á milli
hans og hundabúranna og hund-
arnir byrji að gelta þegar þeir heyri
umgang.
Reynt verður að leysa
málið á friðsælan hátt
Björgvin Helgason oddviti Hval-
fjarðarsveitar staðfesti að ítrekað
hafi verið kvartað undan hundun-
um. Þá sérstaklega vegna láta frá
þeim og gelts. „Ég held að þetta
hljóti að verða skoðað,“ segir Björg-
vin. „Það liggur ljóst fyrir að þetta
veldur íbúum óþægindum. Þar af
leiðandi hlýtur að þurfa að skoða
þetta með viðeigandi stofnunum
eins og MAST, íbúum í hverfinu og
eiganda hundanna,“ segir Björgvin
að lokum.
kljPáll Tryggvi Karlsson ásamt sleðahundinum Kristal. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Hundagá veldur óánægju
meðal íbúa í Hvalfjarðarsveit
Mynd sem tekin var 2015. Síðan hafa hundagerðin verið færð fjær öðrum húsum í hverfinu.
Tíkin hafði það gott á lögreglustöðinni
á Akranesi á meðan leitað var að
eiganda hennar.
Ljósm. Margrét Helga Guðmundsdóttir
Fólk er stundum óþarflega hirðusamt um dýr annarra
Hundaeftirlitsmaður Hvalfjarð-
arsveitar fékk tík í hendurnar í
síðustu viku. Tíkin virðist hafa
gengið laus við þjóðveginn og var
tekin upp í bíl af ferðamönnum
og ekið með hana á lögrelgustöð-
ina á Akranesi. Samkvæmt upp-
lýsingum ferðafólksins hafði það
tekið tíkina upp í bíllinn rétt fyr-
ir utan Akranes, um tíu til fimm-
tán mínútna keyrslu frá bænum.
Eftirgrennslan lögreglu leiddi
ekki í ljós hver eigandi tíkurinnar
gat verið, þar sem enginn sakn-
aði hennar af bæjum í nágrenni
við Akranes. Þar sem talið var að
tíkin væri úr Hvalfjarðarsveit tók
hundaeftirlitsmaður sveitafélags-
ins tíkina að sér. En ekki fannst
eigandinn eftir mikla leit um allt
sveitarfélagið. Eigandinn fannst
ekki fyrr en auglýst var eftir hon-
um á Facebook, í fjöldahópi sem
tileinkaður er hundahaldi og
týndum dýrum, sem og á íbúas-
íðum. Þá kom í ljós að tíkin hafði
verið tekin upp í bílinn í Kjósinni
og ekið með hana á Akranes.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
ferðamenn hyggjast koma týndum
dýrum til aðstoðar. Nýlega var til
dæmis ekið með unga tík af bæ í
Stafholtstungum í Borgarnesi ofan
í Borgarnesi og til hundaeftirlits-
manns. Sú hafði verið í heimsókn
á næsta bæ þegar fólkið aumkaði
sig yfir hana. Þá eru nokkur dæmi
um að ferðamenn hafi komið með
búfénað eins og lömb og jafnvel
fullorðnar kindur og skilað heim
að bæjum vafalaust af einskærri
greiðasemi.
klj