Skessuhorn - 12.07.2017, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 12. júlÍ 2017 11
ÍSLENSKA KÍSILSTEINEFNIÐ
SEM HEFUR SLEGIÐ Í GEGN
Kísill er lífsnauðsynlegt steinefni og hefur oft verið kallað hið gleymda
næringarefni. geoSilica framleiðir 100% náttúrulegan íslenskan
jarðhitakísil, steinefni úr jarðhitavatni frá Hellisheiðarvirkjun.
geoSilica Iceland ehf. Grænásbraut 506, 235 Reykjanesbær - geosilica@geosilica.com - www.geosilica.com
Kísill stuðlar að:
• Styrkingu bandvefs • Styrkingu hárs og nagla
• Þéttleika í beinum • Betri myndun kollagens fyrir sléttari og fallegri húð
Apótek Hafnarfjarðar Apótek Vesturlands Apótekarinn Apótekið Austurbæjar Apótek
Fjarðarkaup Hagkaup Heilsuhúsið Hraunbergsapótek Lyf og heilsa
Lyfja Lyfsalinn Glæsibæ Nettó Siglufjarðar Apótek Urðar Apótek
20% afsláttur af Kísilsteinefni geoSilica í júlí á eftirfarandi sölustöðum
afsláttur
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Starfsmaður í
áhaldahús Borgarbyggðar
Borgarbyggð óskar eftir að ráða starfsmann
í áhaldahús Borgarbyggðar.
Starfið felst í vinnu við ýmsar verklegar framkvæmdir og umhirðuverk-
efni á vegum áhaldahúss, s.s. við gatnakerfi, opin svæði og veitur.
Bílpróf og vinnuvélaréttindi eru kostur svo og reynsla
af sambærilegum störfum. Hæfni og lipurð í mann-
legum samskiptum eru mikilvæg svo og sjálfstæð og
öguð vinnubrögð.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og
viðkomandi stéttarfélags. Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar
eru jafnt karlar sem konur hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélaginu.
Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí 2017.
Umsóknir skulu sendar rafrænt á borgarbyggd@
borgarbyggd.is merktar áhaldahús.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ámundi Sigurðsson, verkstjóri áhaldahúss
Borgarbyggðar í síma 892 5678 eða í tölvupósti, ahaldahus@borgarbyggd.is.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Hvað gera sjómenn þegar þeir eiga
sumarfrí? jú, þeir fara á sjóinn. Það
á að minnsta kosti við um Alex Pál
Ólafsson, skipverja á Örvari SH.
Skessuhorns hitti Alex fyrir í Stykk-
ishólmi síðastliðinn fimmtudag.
Hann hefur verið við grásleppu-
veiðar á yfirstandandi vertíð og
var að ganga frá netum í báti sín-
um, Denna SH, þegar blaðamann
bar að garði. „Þetta er minnsti
grásleppubátur á Íslandi. Ég veit
allavega ekki um neinn minni og
ekki einu sinni um bát sem er jafn
lítill,“ segir Alex léttur í bragði, en
báturinn er rétt rúmir sex metrar
að lengd og aðeins tveggja metra
breiður. Og hvernig eru aflabrögð-
in á minnsta grásleppubáti lands-
ins? „Ég hef verið að fá upp í tæpt
eitt og hálft tonn yfir daginn þeg-
ar best lætur. Ég er alveg sáttur við
það,“ segir Alex.
Hann segir veiðarnar hafia geng-
ið allt í lagi það sem af er vertíðinni.
„Þetta hefur verið svona la la hjá
mér en aftur á móti hefur gengið
mjög vel hjá þeim sem byrjuðu fyrr.
Ég lagði ekki fyrr en 17. júní og þá
voru öll svæði upptekin þar sem ég
ætlaði að vera,“ segir hann, en hefja
mátti veiðar á Breiðafirði svæði tvö
hinn 20. maí síðastliðinn.
Netin hefur Alex lagt á tveim-
ur stöðum; annars vegar norður í
Melavík við Klofning og hins veg-
ar í Kolgrafafirði. „Nú er ég að fara
að bæta við netum norður frá, við
Klofning,“ segir hann. Alex hefur
ýmist róið einn eða með syni sín-
um. „Sonur minn hefur komið með
mér þegar hann hefur komist vegna
sinnar vinnu,“ segir hann. „Sjálfur
er ég nú bara í sumarfríi. Ég er á
sjó allt árið á Örvari og grásleppu-
veiðarnar áttu bara að vera hobbý.
Konan minnti mig á það um dag-
inn, fannst ég eitthvað lítið hafa
verið heima í fríinu,“ segir Alex
léttur í bragði að endingu.
kgk
Alex Páll Ólafsson, skipverji á Örvari SH, veiðir grásleppu í sumarfríinu.
„Grásleppuveiðarnar áttu bara
að vera hobbý“
- Alex Páll rær á minnsta grásleppubáti landsins