Skessuhorn


Skessuhorn - 12.07.2017, Síða 12

Skessuhorn - 12.07.2017, Síða 12
MIÐVIKUDAGUR 12. júlÍ 201712 Umhverfis-, skipulags- og land- búnaðarnefnd Borgarbyggð- ar samþykkti á síðasta fundi sín- um fyrir sitt leyti tillögu að breyt- ingu á aðalskipulagi Borgarbyggð- ar 2010-2022 sem snýr að skotæf- ingasvæði í landi Hamars. Breyt- ingin á aðalskipulaginu felst í því að breyta landnotkun 16,7 hektara úr landbúnaði í íþróttasvæði þar sem skotæfingasvæðið er hugsað. Einn- ig þarf að skilgreina nýja reið- og gönguleið um 400 metra sunnan við svæðið auk þess sem nýr að- komuvegur verður lagður að svæð- inu frá Bjarnhólum sunnan efnis- tökusvæðis og mun samnýtt núver- andi reið- og göngustíg. Í bókun sem Björk jóhannsdóttir gerði við afgreiðsluna kemur fram að hún leggst gegn tillögunni. Rök- in sem hún nefnir eru svohljóðandi; „Ég leggst gegn þeirri breytingu á aðalskipulagi sem hér er gerð til- laga um. Fyrirhuguð staðsetning skotæfingasvæðis hefur ekki fengið faglega umfjöllun þar sem bornir eru saman ólíkir valkostir. Umrædd staðsetning er líkleg til að hafa áhrif á aðra aðila sem þegar hafa starfsemi á svæðinu og í grennd við það. Sé talið nauðsynlegt að breyta landnotkun á umræddum reit ætti frekar að gera hann að opnu svæði (sbr. grein 6.2 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013), enda ljóst að svæðið hefur mikið gildi sem útivistarsvæði nú og til framtíðar.“ Mál skotæfingasvæðisins hef- ur verið á borði sveitarstjórnar og nefnda um nokkra hríð og hefur vissulega verið umdeilt. Ákveð- ið var að boða til íbúakosningar um skotsvæðið, en frá því horfið í vor. Andstaða hefur verið við málið m.a. frá umsjónarfólki fólkvangsins Einkunna. Málið fer senn að skýr- ast en eftir samþykkt umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefnd- ar fer málið nú fyrir sveitarstjórn sem væntanlega tekur endanlegan ákvörðun í því. bþb Gera tillögu um að aðalskipulagi verði breytt vegna skotæfingasvæðis Sverrir Karlsson golfspilari í Grundarfirði var á föstudaginn að spila á Bárarvelli. Á fjórðu holu gerði hann sér lítið fyrir og fór holu í höggi. „Það var sælutilfinn- ing að sjá kúluna í holunni. Braut- in er 106 metrar. Ég notaði 7-tré,“ sagði Sverrir hinn ánægðasti. mm Sverrir fór holu í höggi Valdís Þóra fyrst íslenskra kylfinga á Opna bandaríska Valdís Þóra jónsdóttir, atvinnu- kylfingur í Golfklúbbnum leyni á Akranesi, er komin inn á Opna bandaríska mótið sem er eitt fimm risamóta í kvennagolfinu og það golfmót þar sem verð- launafé er hæst, eða hálfur millj- arður króna. Valdís Þóra var stödd á móti í Tælandi í síðustu viku þegar henni bárust tíðindin og reyndist það lán í óláni að þar datt hún úr keppni fyrir lokaum- ferðina. Því gat hún hraðað för til Bandaríkjanna og hafið und- irbúning fyrir US Open. Tíma- munur milli þessara staða er tólf klukkustundir. Opna bandaríska mótið fer fram á Bedminster í New jer- sey á velli sem er í eigu Donald Trump Bandaríkjaforseta. Sam- kvæmt heimildum golfchannes. com er talið líklegt að Donald Trump forseti mæti sjálfur á mót- ið um helgina og er þar vitnað í ferðaáætlun forsetans. US Open hefst á morgun fimmtudag og lýkur næstkomandi sunnudag. Þar munu allir fremstu kvenkylf- ingar heims verða meðal þátttak- enda. Valdís var fyrsti varamaður Evrópu inn á mótið og átti því möguleika á að verða fyrst Ís- lendinga til að keppa á risamóti. Ekki munaði miklu að svo yrði en Ólafía Þórunn Kristinsdóttir atvinnukylfingur úr GR varð þó fyrri til þegar hún fyrst íslenskra kylfinga lék á KPMG risamót- inu í síðustu viku sem er hluti af lPGA-mótaröðinni. leikið var í Illinos í Bandaríkjunum. bþb Skömmu fyrir jól hélt Golfklúbburinn Leynir, Golfsamband Íslands og Forskot afrekssjóður móttöku á Akranesi þar sem Valdís Þóra Jónsdóttir kylfingur var boðin velkomin heim eftir frækilega ferð til Marokkó. Tilefnið var að hún hafði þá tryggt sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni í golfi 2017. Valdís Þóra Jónsdóttir atvinnukylfingur verður fyrst Íslendinga til að keppa á US Open. Valdís Þóra mun leika á golfvelli í eigu Trump bandaríkjaforseta, en völlurinn heitir Trump National Golf Club, Bedminster. Völlurinn hefur verið valinn í hóp 100 bestu valla í Bandaríkjunum fjórum sinnum af Golf Magazine og hefur fengið fleiri viðurkenningar.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.