Skessuhorn


Skessuhorn - 12.07.2017, Page 17

Skessuhorn - 12.07.2017, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 12. júlÍ 2017 17 Í áratugi hefur það verið fastur lið- ur í sumarstarfsemi Ferðaþjónust- unnar á Húsafelli að kveikja varð- eld klukkan 21 á laugardagskvöld- um. Þangað streymir fólk af tjald- stæðunum og úr sumarhúsunum og nýtur útiverunnar; hlustar á trúba- dor og syngur með en börnin fá að steikja sykurpúða yfir grilli. Síðast- liðið laugardagskvöld spilaði á gítar og söng Orri Sveinn jónsson trúba- dor úr Borgarnesi. Varðeldur var kveiktur og eldfimum vökva bætt á eldinn þegar þurfa þótti undir styrkri stjórn Guðjóns A jónsson- ar starfsmanns í ferðaþjónustunni. Gestir áttu mjög notalega stund. mm Varðeldur hluti af skógarlífinu á Húsafelli neitað því að tilboðið freistaði. Þetta var samningur sem fáum kon- um í íþróttum býðst. Það væri auð- vitað frábært að geta spilað fótbolta og lagt fyrir í leiðinni. Ég hafnaði þó tilboðinu og þar skipti landslið- ið aftur sköpum. Ég vildi ekki eiga á hættu að missa landsliðssætið mitt. Ég þekki ekkert til kínverska bolt- ans og veit ekki hversu gott væri fyrir mig að fara þangað. Það var of margt óljóst í mínum huga; löng ferðalög í landsliðsverkefni auk þess sem landsliðsþjálfarinn hefði getað fylgst mjög takmarkað með hvernig ég væri að spila og standa mig. Ég vildi bara ekki fórna EM. Ef ég fengi sambærilegt tilboð eft- ir EM gæti ég vel skoðað það betur en þetta var ekki rétti tímapunktur- inn,“ segir Hallbera. Kvíðir ekki að hætta í fótbolta Hvað tekur við hjá Hallberu eft- ir EM veit hún ekki. Hún er samn- ingsbundin Djugården út árið og á möguleika á framlengingu samn- ingsins þá. „Það klárast ekki allt eftir EM. landsliðið heldur áfram og við hefjum leik strax í undankeppni fyr- ir Heimsmeistaramótið í haust. Þar erum við í sterkum riðli með Þýska- landi, Tékklandi, Slóveníu og Fær- eyjum. Það verður krefjandi verk- efni, það komast færri lið inn á HM og með Þýskaland í riðli þurfum við líklega að fara Krýsuvíkurleið ef við ætlum okkur á HM. Á meðan ég er í landsliðinu vil ég halda áfram. Að spila fyrir Ísland og Íslendinga er það skemmtilegasta sem ég geri og ég tala nú ekki um þegar vel gengur, þá er það besta tilfinning í heimi. Ég er keppnismanneskja og meðan ég er að spila í góðum liðum og standa mig þá vil ég halda áfram. Ég veit samt sem áður ekki hvort ég verði að spila er- lendis eða heima á næsta ári. Ég kvíði því ekki að hætta í fótboltanum þar sem ég er einnig spennt fyrir því að fara að vinna og skapa mér feril á því sviði,“ segir Hallbera. Hún segir að hún muni sakna félaganna í lands- liðinu einna mest þegar hún hættir. „Það eru auðvitað forréttindi að fá að spila fótbolta og upplifa svona hluti eins og EM með tuttugu vinkonum. Við erum þéttur og góður hópur og eyðum miklu tíma saman.“ Hallbera vill ekki gefa upp hvar landsliðið mun enda á EM. „Við finnum fyrir miklum meðbyr og stemningu í kringum landsliðið. Maður hefur tilfinningu fyrir því að eitthvað stórt sé að fara að gerast og við höfum trú á því. Með stuðn- ingi Íslendinga, þar sem við fáum upp stemningu í líkingu við þá sem karlalandsliðið fékk í fyrra, eru okk- ur allir vegir færir. Við viljum bæta árangur Íslands og okkur hlakkar til að sýna hvað í okkur býr,“ segir Hallbera að endingu. bþb Hér er Hallbera í leik með Breiðabliki í fyrrasumar. Hér fer hún framhjá Grétu Stefánsdóttur og Bergdísi Fanneyju Einars- dóttur í leiknum. Ljósm. gbh.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.