Skessuhorn - 12.07.2017, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 12. júlÍ 2017 27
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Auk þess birtum við lausn á
krossgátu síðustu viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á
netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánudögum. Athugið
að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa
aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Kirkjubraut
56, 300 Akranesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið
verður úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bókargjöf frá
Skessuhorni.
Alls bárust 54 lausnir við krossgátunni í blaðinu í síðustu viku. lausn-
in var: „Boltaleikur.“ Vinningshafi er Þóra S Einarsdóttir, Hamravík 6, 310
Borgarnesi.
Máls-
háttur
Örn
Rugl
Æst
Blika
Málar
Snifsi
Á fæti
Elskar
100
Varla
Ryk
Rekald
Sk.st.
Magn
Ílát
Sýl
Lokað
Örðug
Frjáls
Kjáni
Ara
Gætni
Afarnir
Engin
Sem
Lítinn
bor
Hlaup
Réttir
Hryssa
Gæfur
Venju-
legar
Þegar
Bindur
Tónn
Eink.st.
Grípa
Hvíldi
Land-
bára
Læða
Muldur
Elskaðir
2 6 Spann
Forfað-
irinn
Árás
Mauk
Elfan
Reykur
Reiður
Góða
Flíka
Grikk-
ur
4
Hvar-
vetna
Heppni
Óróa
Hælar
Mjúk
Finna
leið
Klæði Sjá
Væta
Dvel
Alandi
Trufl-
ar
1 Pípur
Sk.st.
Gæði
Fisk
Hópur
Spil
Ágæti
Fæða
Djarfur
Svik
Harð-
indi
Hætta
Frí-
stund
Fugl
Nabbi
Mæliein
Fæðir
Til
sölu
Upphr.
Sverta
Fjör
Tollur
Ískra
Tölur
3 Venda
Tónn
Tölur
Rölt
Gímald
Sá
Labb
Seðill
5
Þaut
Lok
Stöng
8
Ógn
Ögn
Haddur
Spurn
Hæla
Næði
Maður
Pers-
fornafn
Sam-
hljóðar
Stafur
Temur
Strax
Sögn
7
1 2 3 4 5 6 7 8
T I L B Ú I N N
N A R T N A U M
N R E L N A R Ó
L O K I I K T A
E K A M R A A R
R G A P I L D I
A N A N A S G A R R I E Ð A
U R J Á T L L Í N M J Ó
Ó Ð A M Á L A P L A T Í A
I Ð A L U L L A S V A R A
R A R A M L A H A K Ö Ó F
B L A U T Ú Ð I B A K
S Á R A R R I F R A U S N
O F Ó S K R A F T U R T Á
K E K K U R Á R F Á K
K N Ö R R Ó A R U Ú S V O
A G N Á R A R Ó S K S A N
R I D D A R I S A K A R L A
B O L T A L E I K U R
L
A
U
S
N
Ú
R
S
ÍÐ
A
S
T
A
B
L
A
Ð
I
Vísnahorn
Það er með þetta hefð-
bundna ljóðform okkar.
Margir eru nú enn að reyna
að halda sig við það þó mis-
jafnt gangi. Sömuleiðis er
það góður siður að vera árrisull og halda sig vel að
verki. Ekki man ég hver orti eftirfarandi en hef þó
grun um að sá hafi verið þingeyskur að kyni:
Öll þig flýja örlög grimm
og þér fylgir lukkan
ef að þú á fætur fimm
ferð þegar er klukkan.
Margt hefur gengið á í pólitíkinni á Íslandi bæði
fyrr og síðar og ekki trúlegt að því sé öllu lokið enn.
Eitt sinn var klofningsframboð úr Framsóknar-
flokknum í Þingeyjarsýslum og var Björn á Brún
þar í forsvari og efstur á lista ef ég veit rétt. Mað-
ur sem Helgi hét var mjög ákafur stuðningsmaður
Björns og um aðdáun hans kvað Egill jónasson:
Ef hann Helgi eignast börn
öll þau heita lætur
Björn, Björn, Björn, Björn, Björn, Björn, Björn.
Bæði syni og dætur.
Frekar má telja trúlegt að allir þeir Birnir hafi
verið framleiddir með hefðbundnum aðferðum og
væntanlega þá einhverjar verklegar æfingar stund-
aðar meðfram. Einhvern tímann mun þessi staka
hafa orðið til af einhverju mér óljósu tilefni:
Mærin segir sorgum hrelld
sveinn því muni valda.
Ég held, ég held, ég held, ég held,
ég held ég fari að halda.
Og eitthvað líkt hefur ástandið verið hjá þeim er
svo sagði frá þó sá væri annars kyns:
Ég álpaðist í ógáti
uppí rúm hjá kvenmanni
og í mesta meinleysi
manneskjuna barnaði.
Ólafur Sigfússon í Forsæludal gekk á sinni tíð í
skóla eins og annað ungt fólk og ekki vitað annað en
það hafi allt farið vel fram. Einni námsgrein sinni,
trúlega í heimavistarskóla, lýsti hann svo:
Nóttin var góð og næðishlý.
Nutum við hennar bæði.
Nú kann ég orðið nokkuð í
náttúru-landafræði.
Kannske þessi grein falli undir Samfélagsfræðina
nú orðið. Ísleifur Gislason heyrði á sinni tíð í út-
varpinu auglýst Hamborgarlæri og þótti nokkuð til
koma en þó ekki að fullu réttlátt ef engin stórborg
gæti eignast neitt af skepnunni nema þessi eina og
gerði sitt besta til að bæta úr því:
Hamborgarlæri hef ég étið
holl var sú fæða og nærandi.
Leningrads-hryggi lítils metið
Lundúna-bógum unnandi.
Oslóarsíður met þó mest
og magál kenndan við Budapest.
Ef ég man rétt er þessi líka eftir Ísleif og gæti vel
átt við umræður á feisbókinni stundum:
Lýðskrum, rógur, last og Gróusögur,
Ekkert hamlar útsölu
og allt á gamla verðinu.
Einhverjum kann að finnast undarlegt hvað ég
birti lítið af hestavísum og hef ég raunar fengið
aðfinnslur út af því. Verður að segjast að ég reyni
að gera mér far um að láta ekki mín persónulegu
áhugamál vera í neinum forgangi sem getur þá end-
að með því að þau lendi í undandrætti. Hvað um
það Dala-jói eða jóhann Kristjánsson frá Bugðu-
stöðum orti eftir skemmtilegan sprett á léttfærum
fola:
Ekki lenti af laginu.
Liggur fyrri dauður.
Festist ekki í flaginu
fótalipri Rauður.
Töluvert var til af snjöllum vísum eftir jóa bæði
um hesta og annað og lýsi ég hér með sérstaklega
eftir vísum hans þar sem ég óttast að þær séu í glat-
hættu. Ólafur frá Forsæludal hins vegar kvaddi fer-
fættan vin sinn með þessari stöku:
Eg skal glaður enda minn
ævi grýtta veginn
því að brúni blakkurinn
bíður hinumegin.
Meðan við dveljumst hér megin grafar þurfum
við þó að hafa ýmsar búksorgir sem við allavega
reiknum ekki með hinum megin. Guðmundur
Böðvarsson sendi Andrési í Síðumúla beiðni um vá-
tryggingu á nýju húsi svohljóðandi:
Hérna kemur hússins lýsing
handa þér minn góði vin.
Þetta er meira en meðalhýsing
og meira en almennt ,,húsakyn“.
Og svarið kom um hæl:
Öll eru tæki eldtryggð þar
íbúum i haginn
-En eru komnar yrkingar
upp í nýja bæinn?
Stundum er fólk eitthvað að ræða um hægð-
ir blessaðra ferðamannanna sem færa okkur björg
í bú, styrkja krónuna og bera á landið. Það var
reyndar löngu fyrir tíma ferðamannastraumsins
sem Halla Eyjólfsdóttir orti:
Áburður sem úti fraus
aftur berst að munni.
Efnabreyting endalaus
er í náttúrunni.
Ingvar Magnússon kvað hinsvegar um einn fé-
laga sinn fylgispakan á lífsgöngunni:
Áður fyrr hann verk sitt vann,
varð á sjaldan skyssa
en nú er ei hægt að nota hann
nema til að pissa.
Meðan Símon í Goðdölum bjó á Keldulandi á
Kjálka missti hann eitthvað af kindum úr orma-
veiki. Um vorið kom Símon einhverra erinda fram
að Gilsbakka og sér þá að Hjörleifur jónsson er að
draga dauða kind út úr húsunum og segir: „Guði sé
lof að það missa fleiri en ég.“ Þá orti Hjörleifur:
Þegar fjandinn horað hræ
hefur sett í stóra pottinn.
Símon fyrir sunnan bæ
sest og fer að lofa drottinn.
Öðru hvoru verða umræður um nauðsyn þess
að áfengi verði selt í matvörubúðum og sýnist sitt
hverjum um þau mál sem fleiri. Reyndar var mér
einhvern tímann sagt að þeir sem gætu ekki geymt
áfengi heima hjá sér ættu við vandamál að stríða og
þyrftu að leita sér hjálpar en ég er svosem ekki rétti
maðurinn til að dæma um það. Hvað sem því líður,
þegar Akurnesingar samþykktu í atkvæðagreiðslu
að áfengisverslun skyldi staðsett í bænum orti Val-
geir Runólfsson:
Akranesbúar óskað hafa
að áfengisbúð sé staðsett hér.
-Örfáir reyndar voru í vafa
hver velferðarauki að slíku er.
En allflestir þiggja eðalvín
svo alkóhól þörfin virðist brýn.
Velkomnir dagar víns og rósa
og velgengni hvert sem litið er.
Hver skyldi meiri munað kjósa
en margfaldan hvaða dag sem er.
Allir fá drukkið eftir lyst,
ekki finnst nokkur sála þyrst.
-- -- -- -
Hitt er aftur önnur saga
að einhver sagði mér
að víns og rósa dagar draga
dilk á eftir sér.
Með þökk fyrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Víns og rósa dagar draga dilk á eftir sér