Skessuhorn - 23.08.2017, Síða 12
MIÐVIKUDAGUR 23. áGúST 201712
SKÓLABLAÐ SKESSUHORNS
Brekkubæjarskóli á Akranesi var sett-
ur í gærmorgun, þriðjudaginn 22.
ágúst, í íþróttahúsinu við Vestur-
götu. Kennsla hófst síðan samkvæmt
stundaskrá í morgun, miðvikudag-
inn 23. ágúst. Alls eru 450 nemendur
skráðir í skólann fyrir komandi haus-
tönn og er það um það bil sami nem-
endafjöldi og síðasta vetur, að sögn
Arnbjargar Stefánsdóttur skólastjóra.
„Við útskrifuðum 49 nemendur síð-
astliðið vor og það er 41 nemandi að
hefja skólagöngu sína í 1. bekk. Þar
fyrir utan eru nokkrar nýskráningar
og nemendur að flytja í burtu. Það
eru því nokkurn veginn jafn margir
nemendur skráðir í vetur og voru í
fyrravetur,“ segir hún.
Starfsmenn Brekkubæjarskóla
verða í kringum 80 á komandi vetri.
Hlutfall kennara með kennsluréttindi
er mjög hátt, en aðeins einn kennari
er ekki með leyfisbréf á grunnskóla-
stigi. Arnbjörg segir nokkrar breyt-
ingar á starfsmannaliði skólans. „Já,
það eru nokkrar breytingar eins og
eðlilegt er í stórri stofnun. Það er
alltaf ákveðin endurnýjun og ráðn-
ingar vegna fólks sem komið er á eft-
irlaun og afleysingar vegna fæðingar-
og námsorlofa. Í haust koma fjórir
nýir kennarar og þroskaþjálfari inn
og nokkrir aðrir starfsmenn,“ segir
hún. „Ekki hefur gengið eins vel að
ráða starfsfólk fyrir þetta skólaár og
undanfarin ár, þegar við höfum þurft
að hafna fjölmörgum umsækjend-
um með kennsluréttindi. Við höf-
um búið við það lúxusvandamál hér
á Akranesi að geta alltaf valið úr um-
sóknum, hvort sem um er að ræða
kennara eða annað starfsfólk,“ segir
Arnbjörg skólastjóri.
Áherslurnar eru
sérkenni skólans
Arnbjörg segir Brekkubæjarskóla
vera lífsleikniskóla þar sem áhersla
er lögð á manngildi og að nemend-
um þurfi að líða vel til að nám eigi
sér stað. „Unnið er með dygðir eða
þemu sem eiga að vera rauði þráð-
urinn í skólastarfinu,“ segir hún. „á
þessu skólaári vinnum við með fyr-
irgefningu og virðingu. Hápunktur-
inn í þessari vinnu eru stórar morg-
unstundir sem haldnar eru í íþrótta-
húsinu við Vesturgötu fjórum sinn-
um yfir skólaárið. Þar sjá nemend-
ur um skemmtidagskrá með söng og
hljóðfæraleik, dansi, leik og fleiru
ásamt því að veittar eru viðurkenn-
ingar til nemenda. Það má í raun-
inni segja að við höldum árshátíð
fimm sinnum á ári,“ bætir hún við.
„Einnig leggjum við mikla áherslu
á umhverfismál og erum Grænfána-
skóli. Í umhverfismálum eru marg-
ir þættir komnir í mjög gott lag,
þannig að við höfum gott svigrúm
til að taka nýtt inn og verður áhersl-
an í vetur á neyslu og samgöngur.“
Skólastjórinn segir þessar áherslur
skólans vera hans helsta sérkenni.
„Einnig er öflug stoðþjónusta í skól-
anum. Brekkubæjarskóli er gam-
all skóli með mörgum og góðum
gömlum hefðum og öflugum starfs-
mannahópi sem getur haldið í það
sem gott er og er óhræddur að bæta
nýju inn,“ segir hún.
Heppin að vera í litlu
samfélagi
Arnbjörg hefur orð á því að nem-
endur, starfsfólk og aðrir aðstand-
endur skólans séu heppnir að búa
í tiltölulega litlu samfélagi, þó svo
að það hafi vaxið mikið undanfar-
in ár. „Hér eru einungis fjórir leik-
skólar, tveir grunnskólar, félagsmið-
stöð, tónlistarskóli og framhalds-
skóli. Þessi stærð gerir okkur kleift
að vinna mikið saman og er heilmik-
ið samstarf milli allra þessara stofn-
ana enda er það sameiginlegt verk-
efni okkar að lífsgæði allra barna og
ungmenna á Akranesi séu góð og
skiptir þá ekki máli í hvaða húsi þau
eru hverju sinni. Samstarf okkar við
Grundaskóla og aðrar stofnanir sem
vinna með börnum og ungmenn-
um hefur aukist verulega á síðustu
árum. Er það að mínu mati einstak-
lega gott og skiptir heilmiklu máli.
Meðal annars var að ljúka Erasmus
verkefni þar sem Brekkubæjarskóli,
Grundaskóli, Þorpið og skólaskrif-
stofan unnu saman ásamt skólafólki
í Þýskalandi og Svíþjóð. Verkefnið
snýst um skóla margbreytileikans og
hófum við þetta skólaár á málþingi
um þetta málefni með öllu starfsfólki
þessara stofnana. Þar fengum fólk
sem er framarlega á þessu sviði til að
deila þekkingu sinni og reynslu með
okkur. Við væntum mikils af þessari
vinnu í framhaldinu og hlökkum til
að fara inn í skólaárið.“
Engar kúvendingar í
skólastarfinu
Arnbjörg segir áherslur skólastarfs-
ins ekki hafa breyst mikið frá fyrra
ári. „Skólastarf er þess eðlis að það
tekur breytingum með þeim nem-
endahópi og starfsmönnum sem
setja mark sitt á starfið hverju sinni.
En það eru engar kúvendingar frá
síðasta ári, enda störfum við alltaf
eftir sömu lögum og sömu nám-
skrá,“ segir hún. „Við höldum áfram
með þróun í nýtingu spjaldtölva í
námi og kennslu. Það er ekki nóg
að eiga tækin heldur þarf að leggja
heilmikla vinnu í hvernig þau nýtast
nemendum sem best. Við erum far-
in að nota Office 365 og stefnum á
að vera alfarið komin inn í það kerfi
um áramót. Nemendur vinna heil-
mikið í þessu kerfi nú þegar. Einn-
ig munum við auka notkun okkar
á Mentor með öllum þeim mögu-
leikum sem það býður upp á. Eins
er heilmikil þróun í stoðþjónust-
unni okkar í kjölfarið á verkefninu
um skóla margbreytileikans,“ bætir
hún við. „Þá er vert að minnast á að
í vetur verðum við í fyrsta skipti til
margra ára með list- og verkgrein-
ar á unglingastigi,“ segir Arnbjörg
Stefánsdóttir að endingu.
kgk
Brekkubæjarskóli á Akranesi
Unnið með dygðir sem verða rauði þráður skólastarfsins
Skólasetning Grundaskóla var í
gær, þriðjudaginn 22. ágúst, og
hófst skólastarf samkvæmt stunda-
töflu í dag. „Við gerum ráð fyrir
því að nemendafjöldi Grundaskóla
verði svipaður og í fyrra eða milli
630 og 640 nemendur,“ segir Sig-
urður Arnar Sigurðsson skólastjóri
í samtali við Skessuhorn.
Starfsmenn verða um 100 talsins
í misstórum stöðugildum á kom-
andi vetri. „Skólinn er ákaflega vel
mannaður, litlar mannabreyting-
ar og margar umsóknir hafa borist
um hvert auglýst starf. Allar kenn-
arastöður eru eins og mörg fyrri ár
mannaðar menntuðum kennurum,“
segir Sigurður Arnar. „Við eigum
enn eftir að ganga frá ráðningum
í stöðu skólaliða og stuðningsfull-
trúa vegna breytinga sem komu til
á allra síðustu dögum. Við munum
ráða í þessar stöður á fyrstu vikum
skólaársins,“ bætir hann við.
Spennandi skólaár
framundan
Aðspurður segir hann áherslur skól-
ans verða hinar sömu og síðustu ár.
„Við viljum reka fyrirmyndar skóla-
starf og höfum metnað fyrir að veita
nemendum framúrskarandi þjón-
ustu á öllum sviðum. Það er spenn-
andi skólaár framundan og nem-
endur og starfsmenn Grundaskóla
munu standa í stórræðum á ýmsum
sviðum, t.a.m. frumsýna nýjan söng-
leik. Þá munu nemendahópur fara
í skólaheimsókn til Svíþjóðar. Við
erum með fjölmörg þróunar- og
listaverkefni í gangi svo mætti lengi
telja,“ segir Sigurður Arnar.
Breytingar á
skólafrístund
Hann segir að í upphafi skóla-
ársins verði breytingar á skipu-
lagi skólafrístundar Grundaskóla.
„Til þessa hafa nemendur í 1.-4.
bekk verið saman í frístund og
hafa um 160 nemendur nýtt sér
þessa þjónustu. Til að koma bet-
ur til móts við þennan hóp hefur
verið ákveðið að skipta skólafrí-
stundinni upp og munu nemend-
ur í 1.-2. bekk vera áfram saman
í Grundaskóla en skólafrístund
3.-4. bekkjar færast í Þorpið. Með
þessum aðgerðum getum við bætt
þjónustu skólafrístundar Grunda-
skóla við bæði börn og foreldra,“
segir hann.
„Miklar endurbætur hafa verið
gerðar á skólalóð Grundaskóla og
ný leiktæki bæst við í Krúsinni. Þá
er unnið að umfangsmiklum end-
urbótum á smíðastofu og fyrir-
hugað að opna þar sérstaka lista-
smiðju sem leggur áherlsu á sam-
þættingu námsgreina og sköpun.
Þá haf verið gerðar margvísleg-
ar skipulagsbreytingar á húsnæði
yngsta stigsins s.s. að skipta út
skápaeiningum og bæta fatahengi
fyrir nemendur,“ segir Sigurður
Arnar Sigurðsson að endingu.
kgk/ Ljósm. Grundaskóli.
Grundaskóli á Akranesi
„Viljum reka fyrirmyndar skólastarf“
Reynt að fella skotmörk á karnivalinu. Ljósm. Arnbjörg Stefánsdóttir.
„Miklar endurbætur hafa verið gerðar á skólalóð Grunda-
skóla og ný leiktæki bæst við í Krúsina,“ segir Sigurður Arnar
skólastjóri. Tækin eru þegar farin að vekja lukku meðal barna
á Akranesi.
Kátir krakkar á hjóladögum í Grundaskóla.
Spurning vikunnar
Eyja Rós Sigþórsdóttir,
4. bekk
„Fá að hitta alla kennarana.“
Díana Rós Axelsdóttir,
4. bekk
„Hitta alla krakkana og fá nýja
stofu.“
Krissý van den Berg,
9. bekk
„Félagslífið.“
Brynhildur Björk Magnúsdóttir,
10. bekk
„Að komast aftur inn í fasta
rútínu.“
Hvað er skemmtilegast
við að byrja í skólanum?
(Spurt á Akranesi)