Skessuhorn - 23.08.2017, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 23. áGúST 2017 21
Mánudaginn 21. ágúst hófst skóla-
starf vetrarins í Landbúnaðarhá-
skóla Íslands á Hvanneyri hjá bú-
fræði- og háskólanemum en garð-
yrkjunemar hefja nám mánudag-
inn 28. ágúst. Um 370 nemendur
eru skráðir í skólann í ár og skipt-
ist nemendafjöldi svo; 183 í starfs-
menntanám, 139 í BS námi og 42
í framhaldsnámi; flestir á meistara-
stigi en fáeinir í doktorsnámi. Við
skólann starfa rúmlega 80 manns
og eru mannabreytingar ekki mikl-
ar frá síðasta vetri. Karen Björg
Gestsdóttir er nýr kennari í bú-
fræðideildinni og Kristín Péturs-
dóttir er nýr lektor í umhverfis-
skipulagi. Þá kemur Hamid Khaza-
ei til starfa um áramót sem lektor
í jarðrækt. „Búfræðin er fjölmenn-
ust af starfsmenntabrautunum og
búvísindin í BS náminu. Í endur-
menntunardeild er námsbrautin
Reiðmaðurinn fjölmennust en þar
stunda 74 nemendur nám í fjór-
um hópum, tveir í Borgarnesi, einn
í Mosfellssveit og einn á Króki í
ásahreppi,“ segir Björn Þorsteins-
son, rektor Landbúnaðarháskóla
Íslands, í samtali við Skessuhorn.
Jarðrækt vaxandi grein
Aðspurður segir Björn að engar
meiriháttar breytingar verði á starf-
semi skólans á næstunni þó það sé
alltaf einhver þróun. „Ljóst er að
leigusamningur um Mið-Fossa fer
að renna út og áformað er að byggja
einfaldari aðstöðu á Hvanneyri til
þeirrar kennslu sem þar hefur farið
fram. Þá eru vaxandi umsvif í jarð-
ræktartilraunum á Hvanneyri eftir
nokkra lægð í þeim efnum á liðnum
misserum, en skólinn eignaðist nýja
tilraunareitasláttuvél á liðnum vetri
sem stórbætir möguleika í jarð-
ræktartilraunum. Þá fékkst fjárveit-
ing á síðustu fjárlögum til að fara í
umfangsmikið viðhald og viðgerðir
á húsum skólans á Reykjum og er
það verk hafið,“ segir Björn.
Nánd skólans við náttúruna er
mikil og hjálpar það töluvert við
þá kennslu sem fram fer í skólan-
um. „Viðfangsefni skólans eru líf-
ið og landið og til þeirra verkefna
er skólinn vel staðsettur og getur
boðið óvenjugóða nánd við við-
fangsefnin m.a. í námsþáttum sem
tengjast vettvangi beint í verk-
legum námskeiðum. Þar má t.d.
nefna sumarnámskeið og náms-
þætti sem nýta náttúruna í kring-
um skólann eða búreksturinn á
staðnum. Skólinn er sá eini sem við
vitum um að sé staðsettur í miðju
fuglafriðlandi s.k. Ramsarsvæði
sem er alþjóðlega viðurkennt sem
mikilvæg náttúruverndarsvæði.“
Enn óljóst með
nýjan rektor
Björn Þorsteinsson baðst eftir
lausn frá starfi rektors fyrr á þessu
ári vegna persónulegra ástæðna.
Ekki náðist að ráða inn rektor fyr-
ir skólaárið sem nú var að hefjast.
Eini umsækjandinn sem hafið var
viðræður við í vor gat ekki tekið við
starfinu innan settra tímamarka.
Starfið mun því verða auglýst að
nýju. „Eins og staðan er nú er verð
ég áfram í starfi rektors á meðan
leitað er að nýjum rektor. Háskóla-
ráð og ráðherra eru að kanna þann
möguleika hvort hægt sé setja tíma-
bundið nýjan rektor þar sem um-
sóknarferli í störf sem þetta geta
verið mjög tímafrek. Tímasetning
mannaskipta í embættinu er því
enn óljós eins og staðan er nú. Ég
held því áfram mínu striki meðan
annað kemur í ljós og sinni starf-
inu af fullum hug. Það er spenna
og gleði fyrir komandi skólaári og
skólinn fer vel af stað,“ segir Björn
að endingu.
bþb
Landbúnaðarháskóli Íslands
Nándin við viðfangsefnið óvenjugóð
SKÓLABLAÐ SKESSUHORNS
Björn Þorsteinsson er sem stendur rektor Landbúnaðarháskóla Íslands en hann sagði starfi sínu lausu fyrr á árinu, enn á þó
eftir að finna eftirmann hans.
Nýnemar fóru í upphafi viku í gönguferð með brautastjórum sínum og heimsóttu
m.a. Hvanneyrarbúið. Ljósm. lbhí.
Frá spurningarkeppninni Viskukýrin sem nemendafélags skólans hélt fyrr á þessu
ári. Logi Bergmann Eiðsson var spyrill. Ljósm. Nemendafélag LbhÍ á facebook.
Frá Skeifudeginum í LbhÍ í ár sem er uppskeruhátíð í reiðmennsku við skólann.
Ljósm. úr safni Skessuhorns.